Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 28.09.1981, Qupperneq 16

Dagblaðið - 28.09.1981, Qupperneq 16
16 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1981. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Vestur-þýzka knattspyman: Atli með og Dusseldorf vann sinn fyrsta leik! Frá Viggó Sigurðssyni, Leverkusen. Níu heimasigrar i niu leikjum og mörg athyglisverð úrslit, þar á meðal sigur Dortmund gegn meisturum Bayern. Leikmenn Hamburger hafa loks fundið réttu skóna því mark- vörður Duisburg mátti ssekja knöttinn 7 sinnum i netið eftir þá. 225.000 áhorfendur sáu leiki 8. umferðar og urðu vitni að 34 mörkum. Tvö lið unnu sina fyrstu sigra, Nurnberg með nýja þjálfarann Klug, og siðast en ekki sizt Fortuna Dusseldorf með nýja leik- manninn, Atla Eðvaldsson, sem lék mjög vel og fellur strax ágætlega inn i liðið. NUrnberg-Bielefeld 1 —0 (1 —0) Fyrsti sigur Nurnberg varð staðreynd á laugardag. Werner Dressel skoraði hið mikilvæga mark með skoti af 18 m færi á 21. min. Nilrnberg er samt í neðsta sæti deildarinnar með 3 stig. Áhorfendur 15.000. Dortmund-Bayern 2—011—0) Að þessu sinni var heppnin ekki með meisturunum. Dortmund skoraði strax á 12. mín. Bernd Klotz skoraði með skalla af 5 m færi og Walter Junghaus í marki Bayern átti ekki möguleika á að. verja. Bayern sótti meira og átti nokkur hættuleg færi. Paul Breitner skaut beint í fót Eike Immel, markvarðar Dortmund, af 8 metra færi á 23. mín., og skömmu síðar varði Immel tvivegis glæsilega í horn frá Karl-Heinz Rumm- enigge. Á 44. min. var Rummenigge enn á ferðinni, nú með skalla í stöng, knötturinn barst til Kurt Niedermayer sem skaut af 3 metra færi en aftur varði Immel, bezti maður Dortmund í leiknum. Paul Breitner kom ekki inn á eftir leikhlé vegna meiðsla og tók Ás- geir Sigurvinsson stöðu hans. En strax á 46. mín. kom náðarhöggið. Manfred Burgsmúller skoraði eftir að hafa leikið á Niedermayer. 2—0 fyrir Dortmund og Paul Breitner ekki með. Það var meira en meistararnir gátu yfirunnið og Burgsmiiller leyfði sér meira að segja að misnota vítaspyrnu. Skaut í stöng á 76. mín. Áhorfendur voru 54.000, upp- , selt á Westfalenstadion. | Hamburger-Duisburg 7—0 (3—0) j Sjö-núll, og Horst Hrubesch ekki imeð Hamburger! Hrubesch, sem er nærri 2 metrar á hæð, verður frá í tvær vikur vegna meiðsla og stöðu hans gegn Duisburg tók hinn smávaxni Júrgen |Milewski, sem er aðeins um 1.70 á — Hamburger skoraði 7 án Hrubesch! hæð. Hann átti stórleik, skoraði tvö mörk og undirbjó önnur tvö. Á 13. flíiB. var Milewski felldur innan víta- teigs og Manfred Kaltz skoraöi af öryggi úr vítinu. Milewski skoraði svo sjálfur á 16. mín. HSV sótti og sótti og William Hartwig og Lars Bastrup áttu sitt stangarskotið hvor, sitt í hvora stöngina! Á 44. mín. var Milewski enn á ferðinni, lék á tvo leikmenn Duis- burg, og gaf góða sendingu á Felix Magath sem skoraði. Staðan í hléi 3— 0. „Þið spilið sóknarleik áfram,” sagði Ernst Happel, þjálfari Hamburger, og hann var naumast setztur þegar Mil- ewski skoraði á 46. mín. Hraði Hamburger setti leikmenn Duisburg al- gerlega úr sambandi. Á 70. mín. sendi Kaltz fyrir markið frá hægri, beint á kollinn á Lars Bastrup — 5—0. Tveimur mínútum síðar skoraði Kaltz aftur úr víti og Thomas Von Hessen bætti sjöunda markinu við 5 mínútum fyrir leikslok. Hamburger er nú tveimur stigum á eftir Bayern og með betri markatölu eftir þennan stórsigur. Eftit þessa knattspyrnusýningu fyrir- gáfu hinir 17.000 áhorfendur leik- mönnum Hamburger þrjú töp í þremur síðustu leikjunum. Braunschweig-Darmstadt 3—0 (1—0) Innbyrðisleik tveggja nýliða í deild- inni lauk með öruggum sigri Braun- schweig. Ronald Worm á 22. mín. Reinhard Kindermann á 57. mín. og Michael Geiger á 65. mín. skoruðu mörkin í fremur slökum leik. Áhorf- endur 12.000. DUssaldorf-Bochum 2—1 (0—1) Atli Eðvaldsson lék nú í fyrsta skipti í nýja búningnum. Varla að hann sé byrjaður að æfa með liðinu en samt var hann settur beint í aðalliðið, og þakkaði fyrir sig með stórleik. Hann lék mið- framherja. Strax á 8. mín. áttí hann stórhættulegan skalla sem fór naum- lega framhjá. Dússeldorf lék betur en eins og svo oft áður skoruðu mótherj- arnir óvænt; Hans-Joachim Abel á 40. mín. úr vítaspyrnu. Strax á 49. mín. jafnaði Dússel- dorf. Josef Weikl skoraði. Rétt á eftir átti Atli aftur hörkuskalla aö marki Bochum en Reinhard Mager mark- vörður sló knöttinn naumlega framhjá. Á 65. mín. skoraði Thomas Allofs sigurmark Dússeldorf sem með sigri þessum slapp úr fallsæti, í bili að minnsta kostí. Áhorfendur 10.000. Franfcfurt-Stuttgart 4—1 (0—0) Áhorfendur urðu að bíða lengi eftir að eitthvað gerðist því ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik. En á 51. mín. kom fyrsta markið. Hinn 35 ára gamli Willi Neuberger skoraði hálfgert heppnismark fyrir Frankfurt. Werner Lorant, annar leikmaður á fertugs- aldri, skoraði tvívegis úr vítaspyrnum á 57. og 75. mín. og staðan orðin 3—0. Á 75. mín. fékk Stuttgart aukaspyrnu Rúmeninn Alexander Szatmari tók aukaspyrnu og sendi á kollinn á varnar- manni Frankfurt, Karl-Heinz Körbel. Hann skallaði tíl baka, beint á Frakk- ann Didier Six sem skoraði með við- stöðulaustu skoti af 12 metra færi. Kóreumaðurinn Bum-Kun Cha skoraði fjórða mark Frankfurt mínútu fyrir leikslok. Áhorfendur 25.000. Karlsruhe-Bremen 3—0 (3—0) öruggur sigur Karlsruhe í mjög góðum leik. Emanuel Gúnther skoraðii tvívegis, á 19. og 24. mín., og Martin Wiesner bætti þriðja markinu við á 34. mín. Áhorfendur 30.000. Köln-Mönchengladbach 3—0(1—0) í 8 ár hafði Köln ekki tekizt að sigra Gladbach á heimavelli. Klaus Allofs og Klaus Fischer áttu nú báðir stórleik með Köln. Allofs skoraði á 18. mín. með þrumuskoti eftir undirbúning Tony Woodcock. Pierre Littbarski skoraði annað mark Kölnar á 75. mín. Tony Woodcock, sem lék mjög vel, var aftur á ferðinni á 80. mín. Atti fallega sendingu á Fischer sem skoraði glæsi- legt mark. Áhorfendur 40.000. Kaiserlautern-Leverkusen 5—2 (4—0) Eftir aðeins fjórar mínútur var stað- an orðin 2—0, heimaliðinu í hag. Werner Melzer skoraði á 3. mín. með skoti frá vítateig og Erhard Hofeditz mínútu síðar með skoti af 25 metra færi. Xrieger jók svo forystuna í 3—0 á 13. mín. með skalla og leikmenn Leverkusen hugsuðu aðeins um að fá ekki stórskell eftir það. Fyrir hálfleik skoraði Kaiserslautern enn með lang- skoti, Hannes Bongartz beint úr auka- spyrnu af 18 metra færi. Arne-Larsen Ökland á 51. mín. og Júrgen Glowacz á 65. mín. löguðu stöðuna aðeins fyrir Leverkusen áður en Hofeditz bætti við sínu öðru og fimmta marki Kaiserslaut- erná 72. mín. Áhorfendur 14.000. Staðan að loknum Bundesligunni: 8 umferðum í Bayern 8 6 0 2 22- -13 12 Köln 8 5 1 2 15- -9 11 Hamburger 8 4 2 2 23- -11 10 Bochum 8 5 0 3 15- -11 10 Bremen 8 4 2 2 14—11 10 Gladbach 8 4 2 2 16—15 10 Kaiserslautern 8 3 3 2 20- -16 9 Frankfurt 8 4 1 3 18—15 9 Karlsruhe 8 3 2 3 16—14 8 Durtmund 8 3 2 3 11- -10 8 Stuttgart 8 3 2 3 11- -12 8 Leverkusen 8 3 2 3 11- -18 8 Duisburg 8 3 1 4 13- -20 7 Braunschweig 8 3 0 5 11- -12 6 Dússeldorf 8 1 3 4 10—16 5 Bielefeld 8 1 3 4 6—12 5 Darmstadt 8 1 3 4 11- -18 5 Niirnberg 8 1 1 6 7- 18 3 Markahæstu menn: Bieter Hoeness, Bayern 8 Manfred Burgsmúller, Dortmund 6 Paul Breitner, Bayern 6 Gerhard Bold, Karlsruhe 6 Horst Hrubesch, Hamburger 5 Friedhelm Funkel, Kaiserslaut. 5 Frank Mill, Gladbach 5 Rudolf Seliger, Duisburg - 5 í 2. deild gerði Fortuna Köln, lið Janusar Guðlaugssonar, jafntefli við Wattenscheid 09 á útivelli, 2—2. Mjög góður leikur 2ja liða sem komið hafa á óvart í vetur. Önnur úrslit: Stuttgart K.-H. Kassel 1—3, Offenbach-Hertha 3—2, Essen-Schalke 1—2, Aachen- Mannheim 2—1, Freiburger FC-Bayer- uth 3—2, Solingen-Hannover 96 2—3, 1860 Múnchen-Fúrth 3—1. Uerdingen- SC Freiburg 2—1, OsnabrúckiWorms 2—1. Staða efstu liða er þessi: HessenKassel 10 4 5 1 16—9 13 Kickers Offenb. 10 5 3 2 19—15 13 Fortuna Köln 10 5 3 2 18—14 13 Schalke 04 10 5 3 2 17—13 13 Hannover % 10 6 0 4 17—12 12 1860Múnchen 10 5 2 3 17—16 12 Wattenscheid 09 10 3 6 1 17—16 12 Viggó/VS. Lena Köppen eftir tapleikinn i Lundúnum sl. fimmtudag. Kínverjar bezta badmintonþjóðin —Voru sigursælir í meistara- keppniimi íLundúnum. Lenakomstíúrslitentapadi Kínverjar sönnuðu það i meistarakeppninni i badminton um helgina, að þeir eru fremsta badmintonþjóð heims. Margir höfðu reiknað með því en þetta er fyrsta stórmótið i Evrópu, sem Kinverjar taka þátt i. Keppninni lauk á laugar- dag. í einliðaleik karla sigraði Luan Jin, Kina, Prakash Padukone, Indlandi, i úrslitum 15—9 og 15—8. í úrslitum i einliðaleik kvenna sigraði Zhang Ailing, Kína, Lenu Köpp- en, Danmörku, 11—6, 11—12 og 11—6. Köppen sýndi mikla heppnishörku, þegar henni tókst að tryggja sér sæti í úrslitum, sigraði heimsmeistarann frá Indónesíu, Verawaty Wiharjo 11—2 og 11—7 á föstudag. í fyrstu umferð keppn- innar tapaði hún fyrir kínverskri stúlku eins og DB hefur áður skýrt frá. Þá sló Luan Jin Morten Frost, Danmörku, út í undanúrslitum 15—9 og 15—12. Padukone vann Han Jian, Kína, 11—15,15—13 og 15—8. í tviliðaleik kvenna sigruðu Lu Xia og Zhang Ailing,, Kina, Yoshiko Yonekura, Japan, og Gillian Gilks, Eng- landi, 15—10, 3—15 og 15—6. í tvíliðaleik karla sigruðu Mike Tredgett og Martin Dew Thomas Kilhström og Stefan Karlsson, Sviþjóð, 15—9, 2—15 og 15—10 í úrslitum. í tvenndarkeppni sigruðu Tredgett og Norah Perry, Eng- landi, Morten Frost og Lenu Köppen 15—5 og 15—5 í úr- slitum. Ekki eru allir ánægðir með þá þróun að Kínverjar leggi undir sig badminton-mótin. íþróttin þarfnast sterkra per- sónuleika, sem laða áhorfendur að mótunum, en kínversku keppendurnir virðast allir steyptir í sama mótið. Láta ekki í ljós nein geðhrif hvort sem þeir tapa eða vinna. -hsím. Frábær mílutími Maree Sydney Maree, suður-afríski blökkumaðurinn sem nú keppnir fy-ir Bandaríkin, bar sigurorð af mörgum af þekkt- ustu hlaupurum heims i míluhlaupi sem fram fór á Fimmta stræti (Fifth avenue) í New York á laugardag. Mike Boit frá Kenya varð annar og Vestur-Þjóðverjinn Thomas Wessinghage þriðji. Tími Maree var mjög góður, 3:47,52, aðeins tæpum 2/10 úr sekúndu iakari timi en heimsmet Sebastian Coe frá Bretlandi. Heimsmet hefði þó aldrei fengizt staðfest i þessu hlaupi þar sem það fór ekki fram á löggiltri hlaupabraut. Hvorki Coc né landi hans Steve Ovett tóku þátt i hlaupinu, en meðal keppenda voru Bandaríkja- mennirnir Craig Masback og Steve Scott og Bretinn efnilegi, Steve Cram. -VS. Jafntef li Vals og Kunsevo FH með eins marks mun Valsmenn unnu gott afrek i gær- kvöld í handknattleiknum á fjölum Laugardalshallarinnar. Þá léku þeir við Kunsevo, sem verið hefur hér í heimsókn i boði Vals. Jafntefli varð 22—22 og Kunsevo skoraði síðasta ogsovézkaliðiðvann mark leiksins. Á laugardag lék sovézka liðið við FH í Hafnarfirði og sigraði með eins marks mun, 29—28 eftir 14— 11 í hálfleik fyrir Kunsevo. Leikurinn í gær var mjög jafn allan tímann. Allar jafnteflistölur upp í 7— 7. Kunsevo komst í 9—7. Valur jafnaði í 10—10. Staðan í hálfleik 11 — 10 fyrir Kunsevo. í byrjun siðari hálfleiks náði Kunsevo 3ja marka forustu, 14—11. Valur jafnaði í 18—18 og eftír það var jafnt á öllum tölum. Þetta var sjöttí leikur Kunsevo á sex dögum. Jón Pétur Jónsson skoraði flest mörk Vals eða 9/2, Þorbjörn Jensson 5, Friðrik Jóhannsson 5/2. Þorbjörn Guðm., Gunnar Lúðviksson og Theódór Guðfinnsson eitt hver. Hjá Kunsevo var Manulenko markhæstur með 8 mörk. Belov skoraði 5/2. Pilippov 4. í leiknum í Hafnarfirði var Kristján Arason mjög atkvæðamikill í liði FH.‘ Skoraði 13 mörk, fimm vitaköst. Óttar Mathiesen skoraði fjögur. Hvorki John McEnroe né Jimmy Connors komust i undanúrslit i miklu tennismóti sem fram fer i San Francisco þessa dagana. Báðir voru slegnir út i 8 manna úrslitum á laugar- dag, en úrslit leikja þá urðu þessi: Töp hjá Bjama ogViggó Úrslit í vestur-þýzka handknatt- leiknum um helgina urðu þessi: Kiel-Grosswallstadt (miðvdag) 13—13 Kiel-Nettelstedt 26—19 Húttenberg-Dortmund 19—16 Gúnzburg-Leverkusen 27—18 Núrnberg-Gummersbach 10—17 Leverkusen tapaði i Gúnzburg þar sem Júgóslavinn Miljak skoraði 13 mörk fyrir heimaliðið. Viggó Sigurðsson skoraði 3 mörk fyrir Leverkusen. Bjarni Guðmundsson skoraði 2 mörk fyrir Nettelstedt i Kiel. -VS. Bill Scanlon— John McEnroe Brian Teacher— Jimmy Connors Eliot Teltscher— Tim Mayotte Vijay Amritraj— Pat Dupre 3—6 7—6 6—2 6—4 7—5 6—4 2—6 7—6 6—3 7—6 McEnroe hafði undirtökin gegn Scanlon framan af og virtist ailt benda til sigurs hans en í þridju iotunni hrundi ailt hjá honum og Scanlon komst áfram. Leikur Connors og Teacher stóð yfir í 100 mínútur og var mikið jafnræði með þeim ailan timann. Scanlon, Teacher og Teltscher eru allir frá Bandaríkjunum, Amritraj frá Ind- landi. -VS. Borg sigraði Björn Borg, Svíþjóð, sigraði í þriðja sinn á árinu í Grand Prix keppni. Vann þá opna tennismótið i Genf í Sviss, sigraði Tékkann Tomas Smid 6—4 og 6—3 í úrslitum. Greiðirstórféfyrir sendingartilsín! Frá Viggó Sigurðssyni, Leverkusen: Markheppni ítalans Giorgio Chinaglia, sem leikur með New York Cosmos, er ineð ólíkindum en kappinn er nú 38 ára gamall. Að sögn þýzka blaðsins Bild er nú fundin skýring á málinu. Markvörður Cosmos, Vestur- Þjóðverjinn, Hubert Birkenmeier, segir i viðtali við blaðið að Chinaglia, sem er orðinn mikill'auðkýfingur, greiði þeim leikmönnum sem gefi góðar sendingar á hann ríkulega fyrir, 1000 dolluia fyrir sendinguna. Birkenmeier hefur ekki verið settur hjá því eftir síðasta keppnistímabil gaukaði Chinaglia að honum 10.000 dollurum svo lítið bar á. Chinaglia er orðinn mjög áhrifamikill innan félagsins og sagt er að þjálfarinn Weisweiler fái pokann sinn mjög fljót- lega þar sem markakónginum og honum komi mjög illa saman. Júgóslavinn Ivan Buljan, áður Hamburger, nú Cosmos, ber félögum sinum í liðinu ekki vel söguna. Bujan leikur með landsliði Júgóslavíu og segist þurfa að æfa upp á eigin spýtur til að halda sér i æfingu. Félagarnir kvarti undan erfiðum æfingum en staðreyndin sé sú að þeir nenni ekki að æfa. Þá segir Buljan að mataræði leikmanna liðsins sé ekki til fyrirmynd- ar, þeir fái sér risamáltiðir rétt fyrir leiki, háttalag sem hvergi þekkist annars staðar. Cosmos tapaði um helgina meistaratitlinum til Chicago Stings og með slíku áframhaldi riðar stórveldið mikla i amerísku knatt- spyrnunni til falls, ekki vegna aukinnar getu andstæðinganna, heldur vegna innvortis meinsemdar! DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1981. 17 VETRARFERÐIR MEÐ FLUGLEIÐUM TIL ANNARRA LANDA VERÐ FRÁ 2.240.00 KRÓNUM Á hverjum íöstudegi í vetur frá 2. október verða íamar stórhelgaríerðir til Stokkhólms. Auk ílugíars, gistingar og morgunverðar er Nýja Stokkhólms- bókin inniíalin í verðinu. Nýja Stokkhólmsbókin er n.k. útfyllt ávísanaheíti sem gefur þér kost á alls kyns skemmtunum, ferðum og dœgrastyttingu fyrir ótrúlega lágt verð. Bókin inniheldur m.a.: — 32 aðgöngumiða að söfnum og öðmm merkum stöðum — 6 aðgöngumiða að danshúsum — 14sértilboðfráveitingahúsum — miða í hringíerð um borgina með rútu eða bát — 30 skr. aíslátt aí leigugjaldi hjá Interrent bíla- leigunni VERÐ FRÁ 2.647 KRÓNUM ‘VSIDKK HKLMUR Luxusrispur til Luxemborgar verða í boði í vetur, brottíarir verða á laugardögum írá. 1. nóvember og komið er heim aftur á þriðjudögum. Dvalist er á Sheraton Aerogolf, luxushóteli á íallegum stað rétt hjá úrvals golívelli. Luxemborg er kjörland matmanna. Matsölustaðir em margir og góðir. Þú getur valið um kínverska, ítalska og franska mat- KUSRISPA TTL LUXEMBORGAR sölustaði, og svo auðvitað staði sem bjóða Luxemborgarmat eins og Kachke's ost, sem er soðinn áður en hann er snœddur, eða Treipen, aíbrigði aí blóðmör sem framreiddur er með eplasósu og sterkri piparrót. Þú kemur heim saddur og ánœgður. VERÐ FRÁ 2.466 KRONUM r Vikuferð til New York er svo sannarlega vikunnar virði. Það er alveg ótrúlegt hvað haegt er að gera sér til ánœgju í New York. Leikhúsin em alltaf spennandi og amerísku söngleikimir em líka sérstakir. Um þessar mundir em bráðskemmtilegir leikir á fjölunum, m.a. Ain't Misbehavin' söng- leikur um Fats Waller, negrapíanistann og söngvarann frœga, The Best Little Whorehose in Texas, litríkur og íjömgur, Evita, um líf Evu Peron og svo má ekki gleyma Death Trap, leikritinu, sem fœr hárin til að rísa mátulega hátt. Jazzinn dunar hjá Condons og Palsson, ballet og tónleikar í Metropolitan, kabarett í Radio City Music Hall, upp- boð hjá Sotheby's o.s.frv. o.s.frv. Brottf arir í vetur verða vikulega á íöstudögum frá 16. október. VERÐ FRÁ 6.588 KRÓNUM. Til Miami verða famar örfáar sólskinsferðir í vetur. Brottíarardagar em 27. september, 18. og 31. október, 14. og 28. nóvember og svo sérstök jóla- sólskinsferð 19. desember. Allt em þetta 3ja vikna ferðir, sem þó er hœgt að lengja eða stytta. Hótelin sem í boði em, em öE úrvalsgóð og standa auðvitað Kaupmannahöín er áreiðanlega sú borg erlendis sem ílestir íslendingar haía komið til, — og þekkja. Enda er Kaupmannahöfn með afbrigðum þœgileg og skemmtileg íyrir íslendinga. Á hverju götu- homi í eldri hlutum borgarinnar f etum við í íótspor landa okkar sem gerðu garðinn frœgan á tímum Haínarstúdentanna. Við riíjum um dönskukunnátt- una úr skólanum og finnum að flestir hlutir em jctín aðeins rétt oían við flœðarmálið. Sem ábót á öll herlegheitin er svo hœgt að fara í nokkurra daga siglingu með glœsilegu skemmtiíerðaskipi um Karabískahaíið eða njóta helgardvalar í alheims- borginni New York (þessari sem allir segjast elska). VERÐ FRÁ 7.498 KRÓNUM einíaldir og viðráðanlegir og heima. Eí þú hefur aldrei komið til útlanda áður, skaltu spá í Kaupmannahöfn. Þú verður ekki í nokkrum vand- rœðum með að finna Amalienborg, Strikið og vaxmyndasafn Madame Tussaud's. Brottfarir verða á íöstudögum. gist á Apsalon Selandia, Imperial eða SAS Royal og komið heim á mánudegi. VERÐ FRÁ 3.396 KRONUM Ódýrustu skammdegisíerðimar sem Flugieiðir bjóða í vetur verða helgaríerðir til Oslóar. Um er að raeða 4ra eða 5 daga íerðir, brottfarir alla föstu- daga írá 1. október. Hœgt er að velja um Hotel Hall, ódýrt og vinalegt fjölskylduhótel spölkom frá miðborginni eða Hotel Scandinavia og Grand Hotel, sem em lúxushótel með veitingasölum, bömm, nœturklúbbum, sundlaugum, gufuböðum og tilheyrandi. VERÐ FRÁ 2.240 KRÓNUM Rúsínan í pylsuendanum er svo íréttin um ótrúlega ódýrar skíðaferðir til Austurríkis og ítölsku Alpanna. Fyrsta íerðin hefst 9. janúar 1982, en síðan verða vikulegar ferðir í janúar, íebrúar og mars. Flogið verður frá Keflavík til Luxemborgar þar sem ílugvél bíður hópsins og flytur hann Öll verð eru háð gengi islensku krónunnar Leitið frekari upplýsinga hjá söluskriistofum okkar. umboðs- mönnum eða ferðaskrilstofum. Ps. Engar helgarferðir verða 15. des. — 15. jan. Flugvallarskattur er ekki inniíalinn. til Innsbmck. Þaðan er aðeins u.þ.b. 1 1/2 kls. akstur til Kitzbúhl og Dolmiti. Hoegt er að velja um dvöl á gistiheimili eða hóteli og ferðimar geta verið hvort sem er einnar eða tveggja vikna langar. íslenskir íararstjórar verða hópunum til aðstoðar. VERÐ FRÁ 4.390 KRÓNUM FLUGLEIDIR SZ Traust tolk hja góóu télagi ÆL

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.