Dagblaðið - 28.09.1981, Side 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1981.
29
I
D
Menning
Menning
Menning
Menning
Mánudagsmynd Háskóiabíós:
ÓLEYST RÁÐGÁTA
Weir gerir fruntamynd u
Leikstjóri: PeterWeir.
Leikendur: Rachel Roberts, Heien Morse,
Dominic Guard.
Sýningarstaður: Hóskólabíó.
Mér hefur verið nokkuð tíðrætt
um kvikmyndagerð Ástralíumanna.
Uridanfarið ár hafa kvikmyndahús
borgarinnar sýnt talsvert af því bita-
stæðasta frá þessum heimshluta og er
ekki að efa að kvikmyndaáhugafólk
hefur lagt á minnið nöfn eftirtektar-
verðra leikstjóra, t.d. Bruce
Beresford.
Ég held að það sé eitt ár síðan Há-
skólabíó sýndi kvikmynd sem
nefndist ,,The Last Wave”. Kvik-
myndin vakti enga sérstaka athygli í
Reykjavík en ég ætla bara rétt að
vona að svo fari ekki um „Picnic at
Hanging Rock” eftir sama leikstjóra.
Það væri sorglegt ef fáir væru til að
sjá jafnmerkilega kvikmynd og raun
ber vitni. Það er ekki á hverjum degi
sem hægt er að sjá jafnfallega kvik-
mynd, gerða af innsæi og næmleika
sem skipa leikstjóra hennar á bekk
með fremri leikstjórum. Peter Weir
er nýtt leikstjóranafn, nafn sem
verðskuldar að gleymast ekki.
Ráðgáta sem
engin iausn er á
litlu efni
mun ofar í huga að kynna okkur fyrir
persónum, sem tengjast gátunni og
sýna okkur hvaða afleiðingar hin
ófyrirsjáanlegu mannshvörf hafa
fyrir þær.
Hvarf þriggja kvenna er meginat-
burður myndarinnar og fram að því
er myndin hæg og geysilega falleg á
að horfa. Frásögnin verður hins veg-
ar mun hraðari þegar rannsókn á
hvarfinu hefst. Gátan um hvarf
kvennanna er hreyfiafl myndarinnar
og ef svo má segja, gefur öllu orku
eða leysir úr læðingi. T.a.m. verður
hvarfið til þess að Appelyard kvenna-
skólinn leggst niður, skólastýran
missir allt innra öryggi og ennfremur
veldur það beinlínis dauða eins
nemanda skólans sem í sjálfu sér er
hörmulegri atburður heldur en
mannshvörfm.
Þrátt fyrir þessa atburði skyldi
enginn ætla að þeir gerist í lausu
lofti. Kvikmyndin er markviss,
nákvæm og þess vegna kemur hún
manni ekki beinlínis á óvart, en hún
er svo vel unnin að unun er að
fylgjast með framvindu mála. Kvik-
myndin er til fyrirmyndar hvað
varðar uppbyggingu og efnis-
meðferð.
efni myndin er í rauninni. Ég kýs hins
vegar að láta slíkar vangaveltur lönd
og leið og minnast frekar hversu vel
myndin er gerð.
Kvikmyndatakan er hreinasta
snilld. Alla myndina i gegn er kvik-
myndatakan áberandi falleg og er
með ólíkindum hversu landslag
„Hanging Rock” klettsins er áhrifa-
mikið og mikilúðlegt. Einnig vil ég
benda á óvenju áhrifamikið samspil
klippingar og kvikmyndatöku þegar
ungi pilturinn Michael er að horfa á
svaninn, sem síðan breytist fyrir
augunum á manni í fegurðardisina
Miröndu. Þetta ferli gengur reyndar í
hinaáttinalíka.
Eins og svo margir aðrir þættir
myndarinnar þá er tónlistin í ,,Picnic
at Hanging Rock” óaðfinnanleg og
vinnur sterkt með myndinni. Það
gera líka allir leikarar myndarinar,
þó get ég ekki stillt mig um að nefna
Rachel Roberts í hlutverki skóla-
stýrunnar, hún er frábær.
Eins og áður hefur komið fram er
ekki á hverjum degi sem okkur gefst
tækifæri til að sjá ástralska kvik-
myndagerð. En það er ekki megin-
málið, heldur hitt að það er alltof
sjaldan sem maður sér jafn góðar
kvikmyndir og „Picnic at Hanging
Rock” er. Þar sem mánudagsmyndir
Háskólabíós eru aðeins sýndar í tvo
mánudaga, þá er einungis einn
mánudagur eftir. Ekki missa af þess-
ari mynd.
Á yfirborðinu er „Picnic at
Hanging Rock” ráðgátumynd sem
hefur enga lausn, enda er Weir alveg
nákvæmlega sama um lausn á þeirri
gátu. Weir gefur að vísu möguleika á
yfirnáttúrlegri lausn en honum er
Ógleymanlega
myndræn
Ef eitthvað er til að fetta fingur útí
hvað varðar „Picnic at Hanging
Rock” þá er það helst hversu lítið
Kvik
myndir
VIDEO
Video — Tæki — Fiimur
Leiga — Sala — Skipti
Kvikmyndamarkaðurinn — Simi 15480.
Skólavörflustíg 19 (Klapparstígsmegin).
KVIKMYNDIR
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðsiustofa Kiapparstíg
Tímapantanir
13010
VERKFRÆÐINGAR
TÆKNIFRÆÐINGAR
Rafmagnsveita Reykjavíkur vill ráða raforkuverkfræðing
eða tæknifræðing til starfa við áætlanagerð fyrir raf-
orkuvirki.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá starfs-
mannastjóra, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu. Umsóknar-
frestur er til 8. október 1981.
RAFMAGNSVEITA
RE YKJAVÍKUR
ÚTBOЗRAFLAGNIR
Stjórn verkamannabústaða óskar eftir tilboðum í raflagnir
í 176 íbúðir í fjölbýlishúsum á Eiðsgranda.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu V.B. Suðurlands-
braut 30 gegn 500 kr. skilatryggingu frá þriðjudegi 29.
september.
Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 13. okt. kl. 15.00 á sama
stað.
•
Stjórn verkamannabústaöa í Reykjavík.
INNRITUN DAGLEGA FRÁ 10-12 og 13-19
l'SÍMUM 20345, 38126, 24956, 74444
Börn yngst 4 ára.
Barnadansar,
samkvæmisdansar
Freestyle dansar
(Disco, Disco
Jazz, Funky Jazz,
Hustle, Country og
western
dansar o.fl.)
KONU-BEAT -
Góð hreyfing fyr
dömur á
öllum aldri.
„Aerobic dancing'
það allra nýjasta
frá USA, kennt í
Freestyle
dönsunum og í konu-
beattímum. Rock'n Roll — Eitt \ '’ð vinsælasta í dag.
4 SIÐASTIINNRITUNARDA GUR ERIDA G! s.