Dagblaðið - 28.09.1981, Blaðsíða 32
íKefla-
vík ónýtt
eftireld
— Annar húsbnmi varft
íNjarðvíkálaugar-
dagskvöldið
Tveir húsbrunar uröu á
laugardagskvöldið og aðfaranótt
sunnudags. Leikur grunur á að í síð-
ara tilfeilinu hafi verið um íkveikju
að ræða, enda um mannlaust hús að
ræða sem ekki hefur lengi verið i
notkun.
Fyrri bruninn var í . bílskúr i
Njarðvík. Þar var unniö að bílavið-
gerð á niunda timanum. Komst eldur
í bílinn og brann hann taisvert að
innan áöur en tókst að ráða niður-
lögum eldsins.
Þeim er að bílviðgerðinni vann
tókst að ná út úr skúmum gaskút
áður en eldurinn náði til hans og
þykir ljóst að það hafi forðað frá
mun meiri eidi og skemmdum.
Kiukkan 1.09 um nóttina kom svo
upp eldur í gamla Duus verzlunarhús-
inu, en það hefur lengi staðið autt og
ónotað. Var þarna mikiö bál og tók
slökkvistarfið tæpa þrjá klukkutíma.
Húsið stendur enn uppi eftir eldinn
en er ónýtt talið. Grunur leikur á að
þarna hafi veriö um íkveikju að ræða
og sást til ákveðinna mannaferða.
Máiið er í rannsókn. -A.St.
slysadeild
eftirárekstur
Arekstur varð á gatnamótum Háa-
leitisbrautar og Kringlumýrarbrautar
um hádegisbilið í gær. Tveir fólks-
bílar voru á leið vestur Háaleitis-
braut og fóru báður yfir á grænu
ljósi. önnur bifreiðin beygði
skyndilega til vinstri og i veg fyrir
hina. ökumaður í öðrum bílnum var
fluttur á slysadeild en ekki var talið
að um alvarleg meiðsl væri aö ræða.
Grunur ieikur á ölvun hjá hinum
bílstjóranum. -ELA.
KeftaWk:
Ekiðábarn
Ekið var á 7 ára gamlan dreng i
Víkurbraut i Keflavík um fimmieytið
á laugardag. Drengurinn var fluttur á
sjúkrahúsið í Keflavík og var ekki vit-
að hvort meiösl hans væru mikil.
Ekki kunni lögreglan f Kefiavik skýr-
ingar á hvernig slysið varð.
-ELA.
Skólamálin íKópavogi:
Tillögu um
samstarfs-
nefnd vísað
til bæjarráðs
Á bæjarstjórnarfundi í Kópavogi á
föstudag kom fram tiliaga frá
Jóhanni H. Jónssyni, fulitrúa Fram-
sóknarflokksins, um að skipuð yrði
nefnd til þess að freista þess að finna
lausn á víðtækum grunni vegna
þeirra deilna sem orðið hafa um
skólamáiin i Kópavogi að undan-
förnu. Eins og fram hefur komið í
Dagbiaöinu að undanfömu, er deiit
um það hvort leggja beri Þinghóls-
skólann undir Menntaskóla Kópa-
vogs.
Tiilaga Jóhanns var þess efnis, að
bæjarráð, skólameistari MK, skóia-
stjórar Þinghólsskóla, Kársnesskóla,
formaður skólanefndar og skólafullt-
rúi skipuðu nefndina. Tillagan mætti
andstööu Alþýöubandalagsins og
lagði fulltrúi þess til aö henni yrði
vísað frá. Niðurstaðan varð sú að til-
lögunni var vísað til bæjarráðs.
Jóhann sagði i samtali við DB, að
með tillögunni hefði hann vonazt til
að leysa mætti málin fyrir næsta
bæjarstjómarfund.
-JH.
Nýjar aðferöir í
„gosstrídinu”?
—Belgískur útsendari athugar drykkjarvenjur íslendinga
—fékk 12 viðskiptaf ræðinema til liðs við sig—Hefur komið
hingað til lands í svipuðum erindagjörðum tvisvar áður
þar sem Frakka. DB hafði samband
við formann félags viðskiptafræði-
nema, Kjartan Gunnarsson, og kvað
hann þetta ekki vera í neinu samráði
við félagið eða deildina í Háskólan-
um.
Án þess að nokkuð sé í raun hægt
að fullyrða em taldar allar líkur að
Prat hafi verið hér i erindagjörðum
annað hvort Coca Cola eða Pepsi
stórfyrirtækjanna. Virðist því svo
sem „gosstríðið” margumtalaða hafi
hér með náð að teygja anga sina út
fyrirlandsteinana. -SSv.
Belgi, að nafni Michel Prat, hélt
héðan af landi brott á laugardag. í
samvinnu við 12 viðskiptafræðinema
hefur hann að undanförnu kannað
drykkjarvenjur íslendinga fyrir belg-
ískt markaðsrannsóknarfyrirtæki.
Mun aðaláherzlan hafa verið lögð á
gosdrykkjarvenjur islendinga, eftir
því sem DB kemst næst.
Þessar athuganir fóm eins leynt
fram og þess var frekast kostur.
Gengu viðskiptafræðinemarnir í hús
með spurningalista. Fengu þeir engar
upplýsingar frá Belganum þar sem
hann taldi að frekari vitneskja kynni
að hafa áhrif á niðurstöðurnar. Prat
hefur komið hingað til lands tvisvar
áður í svipuðum erindagjörðum.
Fyrst árið 1974 og síðan 1978. Hefur
hann verið í sambandi við viðskipta-
fræðing úti á landi sem aftur hefur
svo séð um að útvega honum
aðstoðarmenn úr röðum
viðskiptafræðinema.
DB náði í tvígang tali af Michel
þessum Prat en í hvomgt skiptið vildi
hann við nokkuð kannast. Prat hafði
aðsetur á Hótel Sögu, en skráði sig
Nýveiddur karfí með
fíugi á götur Boston
42 tonn af ferskum karfaflökum
voru flutt flugleiðis til Boston í
Bandaríkjunum frá Keflavíkurflug-
velli um helgina. Var hér um tilrauna-
sendingu að ræða á vegum Coldwater
Seafood en karfaflökin komu frá
Bæjarútgerð Reykjavíkur.
Með þessari tilraun er verið að
kanna hvort hagkvæmt sé og gerlegt
að taka upp ferskfískflutninga með
flugi til Bandaríkjanna í ríkari mæli
en hingað til hefur verið gert. Ferskur
fiskur hefur áður verið fluttur með
flugi til Bandaríkjanna en i litlu
magni.
flutningar í lofti eru minni á leiðinni
vestur yfir haflð en austur. Vélar á
leið frá Evrópu til Bandaríkjanna
þola því vel aukna nýtingu. -KMU.
Slökkviliðið áttifullt Ifangi með að slökkva eldinn sem kom upp I porti vamarliðsins. Þar vargeymt eldfimt efni sem olli
miklum sprengingum.
KVEIKT í VÖRUM í PORTI
SÖLUNEFNDARINNAR
— mikill eldur og sprengingar af völdum eldfims ef nis er þar var geymt
Eldur kom upp í vörum í porti Sölu-
nefndar vamarliðseigna á Grensásvegi
um tíuleytið i gærkvöldi. Innan um
vörurnar vom geymd eldfim efni og
myndaðist því mikill eldur og spreng-
ingar. Talið er að kveikt hafi verið í
vömnum. Töluverðar skemmdir urðu
afvöldum eldsins.
Þá var slökkviliðið kallað á ösku-
haugana um sama leyti. Þar logaði í
drasli. Er líklegt að glóð hafl myndazt í
spónum sem slökkviliðið siökkti í á
haugunum fyrir helgina. Erfitt reynist
að siökkva alveg eldinn með vatni þar
sem hann grefur sig undir draslið og
rauk því ennþá úr haugunum í morgun.
-ELA.
Fragtflugvél frá Flying Tiger var
notuð til flutninganna og er ætlunin
að önnur sams konar ferð verði farin
um næstu helgi. Ekki dregur þaö úr
hagkvæmni slikra flutninga að fragt-
Fiskverð
íhnút
Samningar um fiskverð eru í
algemm hnút. Allir aðilar að fiskverði
biðja rikisstjórnina um gengisfellingu.
Engin ákvörðun hefur enn verið tekin
um lækkun gengis, meðal annars vegna
þess að margir ráðherranna hafa verið
erlendis síðustu daga.
Fiskvinnsian treystir sér ekki til að
greiða neina hækkun á fiskverði.
Fiskvinnslumenn segjast vera í mínus
með rekstur sinn um þessar mundir og
biðja um gengisfellingu til að bæta hlut
sinn. Sjómenn segjast ekki una minna
en 8,92 prósent hækkun eins og fólk í
landi hafi fengið 1. september. Út-
gerðarmenn telja sig þurfa meiri
hækkun, 12—13 prósent.
Fiskverð á að vera tilbúið 1.
október. Oft hefur dregizt mjög
framyfir tímann að fiskverð væri
ákveðið.
Stjórnarliðar telja sér þó nokkurn
hag í að fiskverðið liggi fyrir áður en
Alþingi kemur saman. Ella gætu orðið
miklar deilur um það á þingi, segja
Þeir. -HH.
Banaslysá
Akureyri
Ung stúlka, Ólöf Rún Hjálmars-
dóttir, til heimilis að Glerárgötu 16,
Akureyri, beið bana í umferðarslysi um
hálfáttaleytið á föstudagskvöld. Óiöf
Rún var á gangi norður Skarðshlíð er
slysið átti sér stað. Skyggni var mjög
slæmt, dimmviðri og hvasst. Jeppbif-
reið kom akandi suður Skarðshlíðina
en ökumaður hennar sáÓlöfu ekki fyrr
en um það bil er slysið varð.
Skall hún framan á hægra framhorn
bílsins og er talið að hún hafi látizt
samstundis. -ELA.
Vinningur vikunnar
Tíugíra
reiðhjól frá
Fálkanum hf.
Vmningur I þessari viku er 10
glra DBS eða Raleigh reiðhjól frá
Fálkanum, Suðurlandsbraut 8 I
Reykjavlk.
1 vikunni verður birt, á þessum
stað I blaðinu, spurning tengdsmá-
auglýsingum Dagblaðsins. Nafh
heppins áskrifanda verður slðan
birt daginn eftir I smáauglýsingun-
um og gefst honum tœkifœri til að
svara spurningunnL Fylgizt vel
með, áskrifendur. Fyrir nœstu
helgi verður einn ykkar glœsilegu
reiðhjóli rikari.
hressir betur.