Dagblaðið - 07.11.1981, Side 1

Dagblaðið - 07.11.1981, Side 1
fifálst oháð dagblað 7. ÁRG. — LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER1981 - 254. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl II.—AÐALSÍMI 27022. Geysimikil loðnuveiði og allur flotinn við Kolbeinsey: FL0T1NN EREKKIAÐ VEDA SÍWJSHI70RFUNA —segir skipstjórinn á Jóni Kjartanssyni semfylltiskipiðítveimurköstum Frá Emil Thorarensen fréttaritara DB á Eskifirði: Jón Kjartansson kom inn til Eskifjarðar í gær með fullfermi af loðnu, 1100 tonn. Að sögn Þorsteins Kristjánssonar skipstjóra á Jóni Kjartanssyni fékkst loðnan austur af Kolbeinsey en loðnan er nú á austur- leið. Skipið fyllti sig í tveimur köstum. Loðnuskipaflotinn er nú við Kolbeinsey og segir Þorsteinn skip- stjóri að veiðin sé geysimikil. Til marks um það hve mikil loðna sé á svæðinu, nefnir Þorsteinn það að margar mílur séu á milli veiðiskip- anna. Það sé því ekki um það að ræða að allur fiotinn sé í hnapp að veiða síðustu torfuna. Sjómenn telja að væri loðnustofn- inn ekki nema 150 þúsund tonn þá ætti hann að vera búinn eftir mok- veiði síðustu daga. Þorsteinn sagðist bera fullt traust til sjávarútvegsráð- herra en plága væri orðin að farið væri eftir vafasömum rannsóknum. Hann vitnaði tii þess að Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur hefði sagt það í taistöð að síðasti loðnu- rannsóknarleiðangur væri misheppn- aður þar sem ekki var hægt að kanna svæðið vegna íss. Það hefði því komið sjómönnum á óvart þegar þeir lásu í fjölmiðlum að stofninn væri e.t.v. ekki nema 150 þúsund tonn. Sjómenti benda á að loðnuveið- arnar séu svo mikilvægur þáttur í at- vinnulífi okkar að loðnurannsóknir ætti að stunda af mikið meiri krafti en nú er gert. Þorsteinn sagði að loðnusjómenn fengju hroll i sig þegar þeir heyrðu t.d. Árna Gunnarsson alþingismann krefjast þess að loðnuveiðar yrðu stöðvaðar strax. Hann vildi þvi bjóða þingmanninum í næstu veiðiferð og skora á hann að þiggja það boð. Það væri ekki hagur sjómanna að eyðileggja stofnana. Ef þeir tryðu þvi að verið væri að veiða upp loðnu- stofninn yrðu þeir fyrstu menn til þess að hætta veiðunum, sagði skip- stjórinn á Jóni Kjartanssyni. -JH. Nemendur œfingadeildar Kennarahúskólans halda íþróttahátíð um J helgina og œtla meðal annars að slá íslandsmetið í maraþondansi. Þegar DB-menn litu þar inn, undir kvöld / gœr, var 25—30 unglinga \ hópur í hörkudansi ágólfinu og var engin þreytumerki að sjá á liðinu — a.m.k. ekkiþá, hvað sem nú er. DB-mynd: Einar Ölason. 5000 S0VETHI0SNARARIDANM0RKU Danski rithöfundurinn Arne Herlöv Petersen er enn í haldi í Kaup- mannahöfn, sakaður um njósnir í þágu Sovétríkjanna. Talið er liklegt að hann verði látinn laus í dag. Petersen hefur á undanförnum tveimur árum verið í stöðugu sam- bandi við ritara i svoézka sendiráðinu í Kaupmannahöfn en honum var vísað úr Iandi um miðjan síðasta mánuð. Sovézki sendiráðsritarinn, Vladi- mir Merkolof.er talinn vera útsendari sovézku leyniþjónustunnar KGB. Hann hefur á undanfömum átján mánuðum látið Petersen og konu hans hafa um 10 þúsund danskar krónur og talsvert magn af áfengi að auki. Að auki er Petersen sakaður um að hafa borgað fyrir auglýsinga- herferð í dönskum fjölmiðlum, þar sem krafizt var kjarnorkuvopnalauss svæðis á Norðurlöndum, með peningum frá Merkolof. Við húsrannsókn hjá Petersen og konu hans fannst talsvert magn af skjölum og bókum sem starfsmenn dönsku leyniþjónustunnar vinna nú við að rannsaka. Þar á meðal eru dagbækur með lista yfir um 3000 einstaklinga ásamt umsögn rithöf- undarins um hvem og einn þeirra. Nú er kannað hvort þetta fólk, eða einhverjir úr hópnum, hafi vitað um fjárgjafir Sovétmannsins eða hafi verið viðriðnir samband hans við Petersen. Fyrrum yfirmaður í sovézku leyni- þjónustunni, Aleksei Myagkov, sem nú er flúinn frá heimalandi sinu, hefur sagt að austantjaldslöndin hafi um það bil 5000 erindreka, svipaða og Merkolof, í Danmörku. Þeir hafi það hlutverk að safna upplýsingum, bæði pólitískum og hernaðarlegum. Starf þeirra felst einnig í að komast í samband við áhrifamenn, svo sem stjórnmálamenn og blaðamenn, og reyna á þann hátt að hafa áhrif á al- menningsálitið í Danmörku. -ÓEF/BHS, Kaupmannahöfnm. Gengisfelling? Mikill ■ H agreming- ur í stjórn- arliðinu Á fundi þingflokks Alþýðubanda- iagsins i gærkvöldi var harðlega mót- mælt því gengisfellingartali scm þing- menn Alþýðubandalagsins telja þing- menn Framsóknarflokksins standa fyrir. Alþýðubandalagsmenn lögðu á fundinum áherzlu á að þcir teldu að stjórnarflokkarnir hefðu verið orðnlr sammál um að fara frckar aðrar leiðir en gengisfellingarleið. Alþýðubandalagsmenn undir- strikuðu að ,,taka ætti Seðlabankarrn taki”. Með þvi væri átt við að „gengishagnaður” Seðlabankans gengi til þess að rétta Irag útflutnings- atvinnuveganna og afurðalánakerf- inu yrði breytt, atvinnuvcgunum í hag. Af þcssu er Ijóst að mikiil á- greiningur er innan stjórnarliðsins um aðgerðir i efnahagsmálum. Stjórnarþingmenn sögðu i gærkvöldi að það yrði „skak yfir helgina” um það hvaða leiðir yrðu valdar. -HH. Veðurfer kólnandi Gert er ráð fyrir að suðvestlæg vindátt verði ráðandi á landinu um helgina. Við það kólnar nokkuð í vcðri en ekki er þó búizt við frosti. Búast má við skúrum og jafnvel slydducljum suðvestanlands en bjart- araveðri norðaustanlands. ' -KMU. Veiðimálastjóri affundinum þegarSkúlifórí ræðustólinn — sjábls.F

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.