Dagblaðið - 07.11.1981, Qupperneq 2
2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981.
vG^
HAFNarfMrö
fr Afmœlishóf
verður haldið i Iðnaðarmannahúsinu, laugardaginn 14.
nóvember og hefst með hanastéli stundvíslega kl. 19.00.
HÁTÍ Ð ARM ATSEÐILL.
SKEMMTIATRIÐI OG DANS.
SAMKVÆMISKLÆÐNAÐUR.
Aðgöngumiðar verða seldir í Bókabúð Olivers Steinsfrú
kl. 9, 12. nóvember 1981.
Skemmtinefndin.
IDEOMYNDUNI
Bjóðum yður nýja þjónustu.
Videomyndun meö 3ja lampa videomyndavél. Vörukynningar,
fundir, fræðsluefni, afmæli, brúðkaup og hvaðeina sem þér dettur í
hug til varðveizlu, kynningar og eða dreifingar á einhvern markað.
Höfum einnig áhuga á samvinnu við aðila um videoefnisgerð á
markað eða að kaupa videorétt á einhverju efni eða taka að okkur að
kynna áhugaverða hluti á videoböndum.
Videobankinn,
Laugavegi 134. Simi23479.
iVIDEOBANKINNi
Frá byggingahappdrætti
Náttúrulækningafélags Íslands
Dregið var 5. nóvember.
Þessi númer hlutu vinning:
23280 bíll
30189 myndsegulband
12952 húsbúnaður
9114 garðgróðurhús
1468 dvöl á heilsuhælinu í Hveragerði
29536 skíðabúnaður
26410 Reiðhjói.
Upplýsingar á skrifstofu IMLFÍ,
Laugavegi 20 b Sími 16371
AUGLÝSING FRÁ
LAUNASJÓÐIRITHÖFUNDA
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun fyrir árið 1982 úr Launa-
sjóði rithöfunda samkvæmt lögum nr. 29/1975 og reglugerð gefinni út af
menntamálaráðuneytinu 19. október 1979.
Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa íslenskir rithöfundar og höfundar
fræðirita. Heimilt er og að greiða laun úr sjóðnum fyrir þýðingar á
íslensku. Starfslaun eru veitt í samræmi við byrjunarlaun menntaskóla-
kennara, skemmst til tveggja og lengst til níu mánaða í senn.
Höfundur, sem sækir um og hlýtur starfslaun í þrjá mánuði eða lengur,
skuldbindur sig til að gegna ekki fastlaunuðu starfi meðan hann nýtur
starfslauna. Slík kvöð fylgir ekki tveggja mánaða starfslaunum, enda
skulu þau einvörðungu veitt vegna verka sem birst hafa næsta almanaks-
ár á undan.
Skrá um birt ritverk höfundar og verk, sem hann vinnur nú að, skal
fylgja umsókninni.
Umsóknum ber að skila á sérstökum eyðublöðum, sem fást I mennta-
málaráðuneytinu. Mikilvægt er að spurningum á eyðublaðinu sé svarað
og verður farið með svörin sem trúnaðarmál.
Umsóknir skulu sendar fyrir 30. desember 1981 til menntamála-
ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík.
Reykjavík, 6. nóvembor 1981.
Stjórn launasjóðs rithöfunda.
BMW72S árg. 78 Renault20 GTL. árg. 79
BMW520 autom. árg. VO Ronauit20 TL árg. 78
BMW520 árg. '80 Renau/t 18 TS. árg. 79
BMW518 árg. '80 Renault 14 TL. árg. '80
BMW323Í árg. '81 RenauH 14 TL árg. 79
BMW320 árg. VI RenauH 14 TL. árg. 78
BMW320 árg. 79 RenauH 18 TS. árg. 79
BMW320 árg. 78 RenauH 12 TS. árg. 78
BMW320 árg. 77 RenauH 12 station árg. 74
BMW 318 autom. árg. 79 RenauHSTS. árg. 75
BMW316 árg. VI RenauHSTL árg.73
BMW316 árg. '80 RenauH4 TL. árg. 79
BMW316 árg. 79 RenauH Estafette árg. 78
BMW316 árg. 78 RenauH4 VANF6 árg. 79
BMW316 árg. 77 RonauH 4 VAN árg. 75
BMW31S árg. '81 Opiö 7- -6 iaugardaga.
Rlki eins og Libýa, Alsír, Saudi-Arabía, Sýrland, Suður-Yemen o.fl. hafa oft verið nefnd pólitiskir suðupottar. Hér þinga full-
trúar nokkurra slikra ríkja i Líbýu.
Flugmálin:
ER ÍSLAND „LÍBERÍU-RÍKI”
í VOPNAFLUTNINGUM?
Vestri skrifar:
Hinn 26. október birtir dagblaðið
Vísir frétt um það, að „sterkur
orðrómur sé um vopnaflug Arnar-
flugs”. — Daginn eftir segir
Morgunblaðið í fyrirsögn:
„Flutningar Arnarflugs til Líbýu at-
hugaðir”.
Morgunblaðið snýr sér til eins
starfsmanns Flugleiða, sem einnig á
sæti í flugráði, og upplýsir, að þessi
aðili hafi óskað eftir rannsókn á
vopnaflutningum Arnarflugs, en
,,hann vildi hvorki játa því né neita
og kvaðst ekki vilja tjá sig um málið á
þessu stigi,” sagði Morgunblaðið.
Síðan bregður svo við, að
Flugleiðir hf. eru staðnar að sama
athæfi og Arnarflug var sakað um,
vopnaflutningum með Flugleiða-
vélum frá Evrópu til Saudi-Arabíu!
Ekki bara sprengiefni til olíuborana,
heldur riffla og tilheyrandi skotfæri
fyrir varnar- og flugmálaráðuneyti
Saudi-Arabíu.
Eru íslenzku flugfélögin farin að
keppa um vopnaflutninga innbyrðis,
eða er cin sameiginleg stjórn
Flugleiðasamsteypunnar ábyrg fyrir
því að koma flugvélum sínum í
verkefni, sem gefa meira fé I aðra
hönd, með því að flytja vopn og her-
gögn ýmiss konar?
Nú er vitað, að Flugleiðir eru
stærsti hluthafinn í Arnarflugi og
eiga Flugleiðir menn í stjórn þess.
Það ætti því ekki að vera í þágu
Flugleiða að kæra Arnarflug fyrir
vopnaflug, eða öfugt.
Hvað er eiginlega að gerast í flug-
málum okkar? Helztu samskipti
virðast vera við þau lönd, sem eru á
svæði hins pólitíska og hernaðarlega
suðupottar, Líbýu, Alsír, Saudi-
Arabíu, o. fl. Er litið á Island sömu
augum og Panama, Hondúras og
Líberíu, þar sem auðvelt er að fá
flutningatæki til vafasamra
flutninga? — Er ísland orðið
„Liberíuríki” í vopnaflutningum?
Sjónvarpsskilyrði á Vestfjörðum:
Allt stendur til bóta
—þarogvíðar
Einn reiður skrifar frá ísafirði:
Er ekki kominn tími til þess að
skipta um endurvarpsstöð í
Stykkishólmi, eða þá reisa fleiri
stöðvar á Vesturlandi?
Sjónvarpsskilyrði hafa verið
hörmulega léleg hér á Vestfjörðum
undanfarnar vikur. Það má kallast
gott ef sjónvarpið er skýrt einu sinni
í viku.
Það er reiði í fólki hér, því það er í
mesta lagi hægt að horfa á
sjónvarpið tvö kvöld í viku, þegar
efnisvalið er frambærilegt, en þá sér
maður ekki neitt af því að þessi
sendir í Stykkishólmi er svo að segja
alltaf bilaður.
Ég vil beina þeirri spurningu til
sjónvarpsins, hvort það vilji nú ekki
laga þetta almennilega, svo að
maður geti horft á það um jólin.
Þatta stendur allt
til bóta
fyrir Ríkisútvarpið, svo við leituðum
til Haralds Sigurðssonar, yfirverk-
fræðings hjá Landssímanum. Hann
gerði skelegga grein fyrir útsending-
arvandkvæðum þessum í sjónvarpinu
nýlega og var svo vinsamlegur að
endurtaka mál sitt fyrirokkur.
Haraldur sagði að búið væri að
skipta um sendi i Stykkishólmi, svo
þar er nú kominn nýr I0 kilóvatta
sendir í stað þess gamla, sem orðinn
var 14 ára. Annars mun ekki vera
hægt að rekja allan vandann til
endurvarpsstöðvarinnar, því einnig
hafa verið tíðar bilanir í sendistöð-
inni að Bæjum áSnæfjallaströnd.
Mesta vandamálið mun samt vera
fólgið í rafmagnsbilunum á
Snæfjallaströndinni, þar sem litlar
rafstöðvar gegna stóru svæði. Á
næsta ári stendur þvi til að auka styrk
stöðvarinnar á Bæjum frá 5 vöttum
upp í 50.
Þar með er samt ekki öll sagan
sögð, því óeðlilega mikilla bilana
hefur gætt í örbylgjusambandi frá
Reykjavík til Stykkishólms. Á miðju
næsta ári verður lögð ný rafmagns-
lína um sunnanvert Snæfellsnesið og
á Útnesið, svo mikið ætti ástandið að
batna I þessum málum, t.d. I Stykkis-
hólmi, Hellissandi, Ólafsvtk og á
þessu svæði yfirleitt.
Vandkvæðin hafa sem sé verið
þríþætt; bilanir í örbylgjusambandi, í
sendi- og endurvarpsstöðvum og raf-
magnsbilanir.
Haraldur vildi sérstaklega benda
almennt á það, að allt þetta kerfi er
einfalt og ekki er hægt að búast við
verulegu rekstraröryggi fyrr en
kerfið verður tvöfaldað.
-FG.
Póstur og sími sér um þessi mál
Á ísaflrði, og víðar, hafa sjónvarpsmóttökuskilyrði verið slæm og höfum við frétt
að fólk hafi gripið til ýmissa örþrifaráða, sem öll hafa komið fýrir ekki. Nú ætti að
fara að rætast úr þessum vandkvæðum, hvað úr hverju, segir Póstur og sími, sem
sér um þá hlið mála fyrir Rikisútvarpið.
V