Dagblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981. Atvik frá stríðsárunum — hvernig brygðust íslendingar við í dag? Siggi flug, 7877—8083, skrifar: Rússneskur kafbátur strandar viO Selsker — Þessi fregn hefði alveg eins getað staðið í íslenzku dagblaði, eins og fregnin um kafbátinn er strandaði við Svíþióð. En sú spurning vaknar, hvað hefðum við íslendingar gert við slíkar aðstæður? Svarið er kannski vand- fundið, en við höfum a.m.k. í einu tilviki þurft að taka ákvörðun í svipuðu máli. Það hefur líklega verið árið 1940, er brezkur Catalínaflugbátur nauðlenti við Raufarhöfn. Nú voru góð ráð dýr. Landið hafði ekki enn dregizt inn í styrjöldina, og þetta þótti gífurlegt brot á hlutleysi íslands, sem með samningum 1918 hafði lýst yfir ævarandi hlutleysi. í hvelli var flugmálaráðunautur ríkisins og lögreglustjórinn í Reykja- vík sendur norður í lítilli flugvél (Klemminum) og held ég að hann hafi lent einhvers staðar nálægt Raufarhöfn. Til hvers? Síðasta spölinn fór ráðunauturinn á hestum, ef ég man rétt, og stóð það heima að flugbáturinn hóf sig á loft skömmu áður en AKH kom á leiðarenda. íslenzka ríkisstjórnin mótmælti þessu athæfi harðlega og var sá seki, flugstjórinn Barnes, sendur til íslands, þar sem hann átti „upp á æru og trú” að dvelja, unz styrjöldinni væri lokið. Var honum komið fyrir í „gistingu” hjá Björgúlfi bónda á Bessastöðum, núverandi aðsetri forseta íslands. Um leið og Bretar hernámu landið um vorið 1940, hvarf svo þessi brezki „sjentilmaður” á brott og loforð hans orðin að engu. En hvað hefðinú skeðefsovézkur kafbátur hefði strandað við Selsker t.d., hefðum við stefnt á strand- staðinn islenzku varðskipunum og staðið vörð um það að engir sovézkir dráttarbátar eða önnur stríðsskip Siggi flug segir frá þegar brezkur Catalinaflugbátur nauðlenti við Raufarhöfn á stríðsárunum en þessi mynd er einmitt frá þeim tfma. kæmu á vettvang? Nei, og aftur nei! Til þessa höfum við einfaldlega ekki bolmagn. En varnarliðið, hvað með það? Þetta er nokkuð góð spurning?? Við íslendingar erum þeir ræflar að lítill hópur öfgamanna getur hvenær sem er hertekið höfuðborgina og gert hinn mesta usla. Þannig er nú ástandið í þeim efnum hjá okkur. Þegar þorskastríðið stóð sem hæst, tók eitt striðsskip hennar há- tignar Bretadrottningar nokkra íslenzka varðskipsmenn og hélt þeim um borð hjá sér í nokkra daga (á launum). Brezk freigáta sigldi síðan upp að varnarstöðinni í Kefla- vík með mennina. Setti þá í bát og réru þeir síðan til Keflavíkur. Dágott varnarlið það, eða hitt þó heldur. Varnarsamningurinn við Banda- ríkin er nauðsyn, en hann er nánast hneyksli hvað framkvæmd snertir, og sæmir varla fullvalda ríki. Allt þetta vita Rússar mæta vel, enda eru þeir ekki ósjaldan á sveimi hringinn í kringum landið, bæði á kafbátum og svo á flugvélum. Þeir fara eins langt upp að landinu og þeir þora, án þess að rjúfa landheigi okkar. Höldum vöku okkar, íslendingar, og látum samninginn um vernd landsins vera einhvers virði. Ekki bara á pappirnum. Mérdatt þetta (svona) í hug. Vill láta taka upp staðgreiðsluskatta — eins ogíNoregi Garri skrifar frá Akureyri: Ég er alveg voðalega spældur yfir því að ekki skuli vera tekinn upp staðgreiðsluskattur hérna á íslandi. Ég kynntist þessu fyrirkomulagi þegar ég var að vinna í Noregi. Þá var dregin af manni viss uþphæð á mánuði í skatt, enda var það miklu þægilegra, því þá vissi maður hvað maður átti til ráðstöfunar, svo allt varpottþétt. Stundum var líka of mikið dregið af manni og það kom sér oft vel, þeg- ar maður fékk endurgreitt. En hérna heima er fólk alltaf einu ári á eftir að borga skattana sína og er alveg sprenghlægilegt að það skuli ganga. Það stoðar samt lítið að kvarta, því ekki virðist vera hægt að koma neinu til leiðar. Okkar þingmenn virðast vera handjárnaðir hver við annan, sama í hvaða flokki þeir eru. Það verða margir, nýbúnir að fá kosningarétt, sem munu skila auðu þegar að næstu kosningum kemur, því þetta eru algjörir skallaþingmenn sem við höfum á að skipa. Raddir lesenda Ertu farin að hugsa til jólanna? Jórunn Sveinbjörnsdóttir: Já, ég er farin aðsenda pakka til útlanda. Lára Magnúsdóttir nemi: Já, svolítið. Ég er nú ekki farin að undirbúa mig, en ég hlakka til þeirra. Sigrún Guðbrandsdóltir: Já, ég er farin að prjóna á barnabörnin og kaupa jólakort. Jóna Jónmundsdóttir_ afgreiöslukona: Nei, yfirleitt er undirbúningsvinnan alltof mikil og þegar jólin loksins koma er maður dauðþreyttur. Ég hef hugsað mér að slappa af í ár og hugsa sem minnst til þeirra. Gerður Hjörleifsdóttir verzlunarstjóri: Já, fyrst og fremst þvi sem tcngist minu starfi, panta, kaupa inn, út- stillingar o. fl. Ég er einnig farin að hugsa út í jólagjafir sem eiga að sendast til útlanda. Ólöf Skúladóttir afgreiðslustúlka: Það er kannski fullsnemmt, en ég er þó búin aðkaupa jólagjafir.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.