Dagblaðið - 07.11.1981, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981.
5
Menningin fæst ekki ókeypis:
755 krónur á sinfóníutónleika
og258 krónur f leikhúsið
—er raunverð en miðamir seldir á 75 og 62 krónur
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu
fyrir 1982 kostar 26.903.900 krónur
að reka Þjóðleikhúsið 1982. Þar af er
launakostnaður rúmar 19.2 milljónir
og önnur rekstrargjöld rúmlega 5.1
milljón.
Tekjur Þjóðleikhússins 1982
(„seldar vörur og þjónusta”) nema
6.467.200 krónum. Þetta er áætlað
andvirði seldra aðgöngumiða.
Þegar þessi tala er borin saman við
gjöldin kemur í ljós að gert er ráð
fyrir að „seldar vörur og þjónusta”
sé 24.04% af heildarreksturskostn-
aði, eða með öðrum orðum að hver
aðgöngumiði sem seldur er sé niður-
greiddur sem nemur 76%.
Allt þetta þýðir að raunvirði
aðgöngumiða sem nú er seldur á 62
krónur er 258 krónur.
Enn verr lítur þetta út hjá
Sinfóníuhljómsveitinni. Þar eru
heildargjöld 1982 áætluð 12.204.800
krónur en „seldar vörur og þjón-
usta” 1.212.000 krónur. Tekjur af
aðgöngumiðasölu eru því 9.93% af
kostnaði við rekstur hljómsveitar-
innar. Raunvirði aðgöngumiða, sem
er að mestu bundið við 75 krónur nú,
er þvi 755 krónur. Mismunurinn, 680
krónur, er greiddur úr ríkissjóði, af
ríkisútvarpi og af Reykjavíkurborg.
-A.St.
GATNAMALASTJÓRIKORTLEGGUR VIDE0KAPLANA
verður
einnig
á staðnum
Verslið þar sem varan er gód og
verðið hagstætt
Eins og sjá má var ekkert hik á Þór Guðjónssyni veiðimálastjóra er hann strunsaði út
af fundi þegar Skúli á Laxalóni kom i ræðustólinn. DB-mynd G. Bender.
„Þeir fengu leyfi til að fara í gegnum
Vesturhóla. Allt annað hafa þeir gert í
óleyfi. Þeir hafa farið i gegnum Arnar-
bakkann og eina sex malbikaða gang-
stíga í Breiðholti I, einnig barnaleikvöll
og opin svæði. í Breiðholti 111 hafa
þeir lagt meðfram malbikuðum stíg og
farið yfir ræktað svæði þar,” sagði
Ingi Ú. Magnússon gatnamálastjóri í
samtali við Dagblaðið.
Hann hefur nú látið kortleggja sjón-
varpskapla Video-son. Sást á því hvar
kaplarnir liggja í jörðu.
Forráðamenn Video-son hafa sagt að
kaplar sem lagðir voru í gegnum gang-
stíga hafi verið lagðir í sprungur sem
fyrir voru. Þá skýringu taldi gatna-
málastjóri hreint yfirklór. -KMU.
Ingi (l. Magnússon sýnir kortið sem búið er að gera yfir sjónvarpskapla sem liggja i
jörðu.
DB-mynd: Einar Ólason.
í Hamraborg 1 á morgun,
sunnud. 8. nóv., kl. 2 e.h.
Margir góðir munir
— Engin núll
Vopnaf lutningar með þotum Flugleiða:
Fráleitt að slíkt
skuli eiga sér stað
—segir Ragnar Amalds
„Ég tel að það sé alveg fráleitt, ef
þetta er rétt, að slíkt skuli eiga sér
stað. íslendingar verða að setja sér
ákveðnar takmarkanir í þessum
efnum,” sagði Ragnar Arnalds fjár-
málaráðherra er DB leitaði álits hans
á vopnaflutningum bandarísks flug-
félags með vélum Flugleiða til Saudi-
Arabíu.
„Ég tel það mjög vafasamt að
leyfa slíka flutninga. Það er afar var-
hugavert fyrir ísland að flækja sig í
deilur annarra þjóða,” sagði Ragnar.
Dagblaðið skýrði frá því í forsíðu-
frétt sl. þriðjudag að Flugleiðaþotur,
sem leigðar hafa verið til bandarísks
flugfélags án áhafna, væru notaðar
til vopnaflutninga. Flygju þær með
riffla og skotfæri frá Evrópu til
Saudi-Arabíu.
Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, hefur staðfest í blaðavið-
tali að þessir vopnaflutningar ættu
sér stað. Tilskilin leyfi hafi þó alltaf
verið fengin frá íslenzkum stjórn-
völdum.
•KMU.
Veiðimálastjóri gekk
af fundi þegar Skúli
f ór f ræðustólinn
— fundur um „sjoveiði í N-Atlantshafi” leystist upp
út af tali um regnbogasilung
I frystihúsum liggja nú milli 5 og 10
tonn af laxi sem ætlaður var til út-
flutnings en selst ekki vegna mikils
framboðs frá öðrum löndum á heims-
markaðnum. Er það aðallega hin gífur-
lega laxveiði í sjó sem markaðinn fyllir
og verðhruni veldur. Þetta kom fram á
fundi sem Félag áhugamanna um fisk-
eldi hélt á fimmtudaginn. Þar fluttu
þrír sérfræðingar framsöguerindi en
fundarefnið var sjóveiði í N-Atlants-
hafi.
Er liða tók á fundinn svöruðu fram-
söguræðumenn fyrirspurnum. Vatt sér
þá í ræðustól Grímur Norðdahl bóndi að
Úlfarsfelli og spurði veiðimálastjóra
um regnbogasilungseldi og fór mörgum
orðum um gamla sögu varðandi deilur
yfirvalda og Skúla á Laxalóni.
Þór veiðimálastjóri Guðjónsson
kvaðst svara „málefnalegum spurning-
um”, en leiddi hjá sér allt tal um regn-
bogasilung.
Sté þá Skúli Pálsson á Laxalóni í
stólinn og ræddi regnbogasilungsmál
og gamlar erjur.
Um leið og Skúli kom i ræðustól stóð
Þór veiðimálastjóri upp og vék af
fundi. Var hann utan salardyra meðan
Skúli var í pontunni, kom inn er Skúli
hafði lokið máli sínu, tók saman dót
sitt og fór úr húsinu.
Þótti sumum sem veiðimálastjóri
sýndi með þessu embættismannahroka,
en öðrum fannst framkoma hans ekki
aðfinnsluverð þar sem regnboga-
silungsmál og gamlar erjur voru ekki á
dagskrá þetta kvöld. _ -A.St.
AFMÆLISAFSLÁTTUR
10% afsláttur frá verksmiðjuverði
á StjörnuÁrmálningu alla næstu viku
og 10% afsláttur af öðrum vörum verslunarinnar
Sérlagaöir litir — Góö þjónusta! — Reynið viðskiptin
Næg bílastæði — Fjölbreytt litaúrval
Sendum í póstkröfu út um landið
St jörnu ★ litir sf.
Málningarverksmiðja — Höfðatúni 4 — Sími 2-34-80
» »
Oll okkar málning á verksmiöjuveröi