Dagblaðið - 07.11.1981, Page 7

Dagblaðið - 07.11.1981, Page 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981. 7 Afleit móttökuskilyrði fyrír sjónvarp á Vestf jörðum: Verðum að loka tækjunum —þau eru okkur gagnslaus — segja 144 Flateyringar, sem skrifað hafa undir mótmælaskjal Verði ekki gerðar úrbætur á sjónvarpsmóttökuskilyrðum segjast 144 Flateyringar ekki sjá sér annað fært en að „fara út í hóplokanir” á tækjum sínum, enda séu þau nánast gagnslaus eins og málum sé nú háttað. Flateyringarnir, 144 að tölu, hafa ritað undir mótmælaskjal þar sem þeir lýsa yfir „megnustu óánægju með sjónvarpsútsendingar til okkar. Oft hefur útsending verið léleg en nú að afloknu sumarleyfi sjónvarpsins á sl. sumri hefur keyrt um þverbak, út- sendingar iðulega fallið niður og verið mjög lélegar þegar um ein- hverja móttöku hefur verið að ræða. Það er krafa okkar að mál þessi verði könnuð án tafar og viðunandi úr- bætur gerðar. Að öðrum kosti sjáum við okkur ekki annað fært en að fara út í hóplokanir á tækjum okkar. enda eru þau okkur nánast gagnslaus eins og málum er nú háttað.” Ragnheiður Erla Hauksdóttir 'á Flateyri segir Dagblaðinu að hún hafi sjálfhaft samband við mælaborð Landssímans og fengið mjög misjöfn svör. „Eftir því sem ég kemst næst virðist sendir í Stykkishólmi vera ónýtur. Eins og tæknimaður hjá mælaborðinu sagði mér laugardags- kvöldið 31. október er nýr sendir ekki kominn í gagnið. Mér er líka sagt að stöðin í Holti i Önundarfirði sé ónýt og að ný stöð bíði þess að verða leyst úr tolli.” Ragnheiður Erla sagði það eindregna ósk Flateyringa að úrlausn fáist strax. „Við kjósum okkur þingmenn,” sagði hún. „Eru þeir mállausir eða vilja þeir ekkert gera fyrir okkur hér á Vest- fjarðakjálkanum?” -ÓV. Fljótandi f rystihús til Skagastrandar Skagstrendingar fjölmenntu til Akureyrar i síðustu viku til að fylgjast með því er þar var sjósettur í Slippstöðinni nýr skuttogari í eigu Skagstrendings hf. Skagstrendingarnir komust að vísu ekki alveg klakklaust til Nýr togari Skagstrendings hf. afhentur á Akureyri — iðnaðarráðherra ávarpar viðstadda. DB-mynd: Guðm. Svansson. að vera við athöfnina þvi þeir lentu i barningi við að koma rútu sinni yfir Öxnadalsheiði. Seinkaði sjósetningunni nokkuð af þeim sökum. Eftir að Gunnar Ragnars forstjóri Slippstöðvarinnar hafði afhent skipið flutti Hjörleifur Guttormsson iðnaðar- ráðherra ávarp og gat m.a. um nýja stefnu í skipasmíðamálum, sem veriðer að hrinda í framkvæmd. Framkvæmdastjóri Skagstrendings flutti síðan stutt ávarp og afhenti starfsmönnum Slippstöðvarinnar 50 þúsund krónur að gjöf fyrir vel unnin störf. Halldóra Þorláksdóttir kona skipstjórans, Guðjóns Sigtryggssonar, gaf skipinu nafnið Örvar HU—21. Togarinn er hannaður af starfs- mönnum tæknideildar Slippstöðvarinnar. Örvar HU er útbúinn til veiða með botnvörpu og flotvörpu og er með fullkominn búnað til vinnslu og frystingar á fiskflökum og til heilfrystingar á fiski. Aðalvél skipsins er af gerðinni Wichmann og er búin til svartolíubrennslu. íbúðir í skipinu fyrir 24 manna áhöfn, í eins, tveggja og þriggja manna klefum. 1. stýrimaður á Örvari verður Magnús Sigurðsson. Næsta verkefni hjá Slippstöðinni hf. á Akureyri er smíði á skuttogara fyrir Fáfni hf. á Þingeyri, og er smíði bolsins vel á veg komin. -GSv, Akureyri. Matreiðslumeistarar sýna snilli sína Veizla á Sel- tjamarnesi „Við viljum með þessari sýningu hvetja fólk til þess að vera mun betur á verði en það hefur verið gagnvart vöruvöndun,” sagði Jón Sigurðsson, formaður Klúbbs matreiðslumeistara á blaðamannafundi í gær. Þá var að hefjast sýning klúbbsins á mat og ýmsu tilheyrandi í félagsheimili Seltjarnarness. Sýningin er í kvöld og annað kvöld. Í klúbbnum eru 20—30 félagar sem eiga það sameiginlegt að hafa allir verið yfirmatreiðslumenn á einhverjum veitingastað í að minnsta kosti ár. Á sýningunni munu þeir sýna listfengi sitt bæði með því að leyfa fólki að skoða kalda rétti og eins og ekki síður með því að kaupa sannkallaða veizlurétti og borða. Sýningin er opin frá kl. 18.00— 23.00. -DS/DB-mynd: EÓ. Nú er unnið af fullum krafti við innréttingar hins nýja hjúkrunarheimilis í Kópavogi. Síðasta baukasöfnunin í Kópavogi í dag: Hjúkrunarheimilið tekið í notkun snemma næsta árs Hjúkrunarheimilið i Kópavogi er nú fullreist og hafa allar áætlanir staðizt framar vonum. Um þessar mundir er unnið við innréttingar og frágang. Ráðgert er að taka heimilið í notkun á fyrsta' fjórðungi næsta árs. Alls hefur nú verið byggt fyrir um niu milljónir króna og hefur almennt söfnunarfé borið hita og þunga framkvæmdanna fráupphafi. í upphafi var áætlað að söfnun þyrfti að standa í tvö ár og eru þau nú liðin. Fjórða og síðasta allsherjar- söfnun bauka vegna byggingar hjúkrunarheimilisins verður í dag. Sjálfboðaliðar úr Menntaskólanum í Kópavogi og aðildarfélögum, sem að byggingunni standa munu heimsækja öll heimili i bænum og taka við söfnunarbaukum. Nýir baukar verða ekki afhentir að þessu sinni. Mikil samstaða Kópavogsbúa um þetta átak og velvilji fólks víða um land hefur gert drauminn um byggingu hjúkrunarheimilisins að veruleika. Vonast forráðamenn söfnunarinnar til þess að samheldnin í Kópavogi verði jafnglæsileg og verið hefur. Nokkur brögð eru að því að baukar séu ekki á heimilum í Kópavogi og mun söfnunarfólkið bjóða fólki sérstök viðurkenningarskjöl fyrir fimmtíu króna styrktarframlag. Slík skjöl verða einnig fáanleg á skrifstofu hjúkrunar- heimilisins þar til það verður að fullu frágengið. -JH. ^TOYOTA Toyota Cressida Grand Lux, beinskiptur, árg. ’81, ekinn 8.000, grár sanseraöur. Verð 150.000. (Skipti koma til greina á Cressida ’78). tTOYOTA SALURINN SALURINN SÍMI44144 Datsun disil 220 c árg. ’77, ekinn 110.000, grár. Verö 70.000. Nýbýlavegi 8 (bakhús) Opið laugardaga kl. 13—17 Toyota Cressida, 2ja dyra, sjálf- skiptur, árg. ’79, ekinn 33.000, gulur. Verð 98.000. (Skipti koma til greina á ódýrari bil.) Toyota Carina DL árg. ’78, ekinn 55.000, rauður. Verð 75.000. Toyota Corolla Lift back árg. 79, ekinn 27.000, orange. Verð 86.000. Toyota Corolla KE 20 árg. ’74, ekinn 6.000 á vél, orange-litur. Verð 32.000. (Sílsalistar, útvarp, cover á sætum. Góð kjör). Toyota Starlet árg. ’79, ekinn 45.000, gulur.Verð 68.000. Toyota Tercel árg. ’79, framhjóla- drifinn, ekinn 25.000, gulur. Verð 76.000. Toyota Carina DL 4 dyra, árg. ’80, ekinn 24.000, drappiitur. Verð 97.000. (Transistorkveikja, vetrardekk á feigum, grjótgrind).

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.