Dagblaðið - 07.11.1981, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981.
23
Sjónvarp
ÆSKUMINNINGAR, 2. ÞATTUR
—sjónvarp sunnudagskvöld kl. 20,50:
Rómantískur
forleikur áð-
ur en alvaran
dynuryfír
Margir sjónvarpsáhorfendur voru
ánægðir með fyrsta þátt „Æsku-
minninga”, sem sýndur var á sunnu-
daginn. Þættirnir verða alls fimm,
koma frá BBC og hafa hlotið mörg
verðlaun, því bæði handrit, leikur
og öll tæknivinna þykir afburða góð.
í fyrsta þættinum sagði frá systkin-
um tveimur á efnaheimili. Sonurinn á
að fara í skóla, þvi faðir hans vill að
hann taki við fyrirtækinu, en strák-
inn langar hvorki í skólann né fyrir-
tækið.
Dóttirin er hins vegar full af
menntalöngun en faðir hennar er
tregur til að leyfa henni að fara slíka
braut. Ekki sízt því stríðið virðist
vera að skella á.
Stúlkan gerir sér enn litla grein
fyrir hörmungunum sem því munu
fylgja — og þátturinn á sunnudags-
kvöldið næsta verður hugljúfur og
rómantískur. Fjallar hann aðallega
um ástasamband hennar við ungan
mann, sem verið hefur kvöldið næsta
verður hugljúfur og rómantískur.
Fjallar hann aðallega um
ástasamband • hennar við ungan
mann, sem verið hefur í skóla með
bróður hennar og heitir Roland.
' t/ jfj \
11.
...
*• * * *** !**
Þetta er mynd af fiskiduggu á þorskveiðum við Ísiand. Er hún teiknuð árið 1785, en sennilega er duggan fremur dönsk en
frönsk. r
HVAÐ ER BAK VIÐ HVITU SEGLIN?
—útvarp kl. 14,00 á morgun:
Þáttur um f ranska duggara
Allabaddarí, fransi, biskví — nú
fáum við áreiðanlega skemmtilegan
þátt um frönsku duggarasjómennina
sem hér stunduðu veiðar fyrr á
öldum. Margar sagnir erutil um þá og
sjálfsagt er meira af frönsku blóði í
ýmsum íslendingum en fram kemur í
ættartölum.
Þetta hefur verið köld vist hjá þeim
og samskipti þeirra við landsmenn
voru illa séð, því óttazt var, að menn
verzluðu við þá. Það gerðu líka
margir. Ketilbjörn á Knerri afi
Gunnars Gunnarssonar var einn
þeirra og keypti bæði skonrok og
áfengi. En Gunnar litli var dauð-
hræddur við þá því afi hans hafði
sagt honum að þeir hefðu litla stráka
í beitu.
Jón Óskar fær Brynjar Viborg til
að lesa með sér í þættinum. Einnig
kemur Elin Pálmadóttir og segir frá
ferð sinni á slóðir duggara sern trú-
lega hafa verið einhvers staðar inánd
við Bretagne-skagann.
-IHH.
TÖFRANDITÓNAR - útvarp í kvöld kl. 21,15:
Danslög síðan amma var ung
Jón Gröndal heldur áfram að kynna
stóru danshljómsveitirnar frá því
kringum 1940. í kvöld og næsta laugar-
dagskvöld segir hann frá Dorsey-
bræðrum. Hljómsveit þeirra var ein
sú frægasta á þeirri tíð og söngvarar
eins og Frank Sinatra komu þar fyrst
fram.
Jón Gröndal er kennari í Grindavík
en hefur haft það sem tómstundagam-
an að safna plötum frá þessum árum og
spilar þær í frumútgáfum. Þettagerðist
allt fyrir hans minni, því hann er ekki
fæddur fyrren 1949.
„Sem unglingur var ég alltaf tuttugu
árum á eftir tímanum. Spilaði foxtrotta
og jitterbug þegar aðrir voru í bítlum
og rokki.”
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.25 Ævintýri úr óperettu-
heimínum. Sannsögulegar fyrir-
myndir að titilhlutverkum í óper-
ettum. 3. þáttur: Lafði Hamilton.
Sjóhetjan og öskubuskan. Þýðandi
og þulur: Guðmundur Gilsson.
14.00 Hvaö var bak við hvítu segiin?
Jón Óskar tekur saman þátt um
franska duggara. Lesari með
honum er Brynjar Víborg. Einnig
kemur Elin Pálmadóttir blaða-
maður fram i þættinum og segir
frá ferð sinni á slóðir duggara.
15.00 Regnboginn. Örn Petersen
kynnir ný dægurlög af vinsælda-
listum frá ýmsum löndum.
15.35 Kaffitiminn. Itzhak Perlman
og André Previn leika lög eftir
Scott Joplin og Nana Mouskouri
syngur.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.20 Hinn duldi alkóhólisti. Valur
Júlíusson læknir flytur sunnudags-
erindi.
17.00 Tónskáldakynníng: Jón
Þórarinsson. Guðmundur Emils-
son ræðir við Jón Þórarinsson og
kynnir verk hans. Þriðji þáttur af
fjórum. í þættinum er rætt um
viðhorf Jóns til tónskáldskapar og
fjallað m.a. um tvískiptinguna í
tónstil hans og leikin eru sönglög
eftir Jón.
18.00 Létt tónlist. Herb Alpert og
Tijuana Brass hljómsveitin leika og
syngja; Peter Nero leikur á pianó
með Boston Pops hljómsveitinni;
Arthur Fiedler stj. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Svipmyndir úr sjómannsævi.
Valgeir Sigurðsson ræðir við
Karvel Ögmundsson.
20.00 Harmonikuþáttur. Kynnir:
Sigurður Alfonsson.
20.30 Á heljarslóðum. Frá-
söguþáttur um Kristján Inga
Einarsson byggingaverkfræðing í
Ameriku. Höfundurinn, Stein-
grímur Sigurðsson, flytur.
20.55 Fiðlukonsert í D-dúr op. 77
eftir Johannes Brahms. Annee-
Sophia Mutter leikur með
Filharmóníusveit Vínarborgar;
Herbert von Karajan stj.
(Hljóðritun frá tónlistarhátíöinni í
Salzburg í sumar).
21.35 Að tafli. Guðmundur
Arnlaugsson flytur fyrri þátt sinn
um Smyslov.
22.00 Lög úr söngleiknum „Porgy
og Bess” eftir Gershwin; Ella
Fitzgerald og Louis Armstrong
syngja.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dag-
skrá morgundagins. Orð
kvöldsins.
22.35 „Orð skulu standa” eftir Jón
Helgason. Gunnar Stefánsson
les (3).
23.00 Á franska vísu. 2. þáttur: í
minningu Georges Brassens.
Umsjón: Friðrik Páll Jónsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Mánudagur
9. nóvember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Séra Hannes Guðmundsson í
Fellsmúla flytur (a.v.d.v.).
7.20 Leikfimi. Umsjónarmenn:
Valdimar Örnólfsson leikfimi-
kennari og Magnús Pétursson
píanóleikari.
7.30 Morgunvaka. Umsjón: Páll
Heiðar Jónsson. Samstarfsmenn:
Önundur Björnsson og Guðrún
Birgisdóttir. (8.00 Fréttir. Dag-
skrá. Morgunorð: Jóna Hrönn
Boliadóttir talar. 8.15
Veðurfregnir).
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna.
Laugardagur
7. nóvember
16.30 íþróttir. Umsjón: Bjarni
Felixson.
18.30 Kreppuárin. Tíundi þáttur.
Þetta er annar af tveimur þáttum,
sem finnska sjónvarpið hefur gert i
þessum myndaflokki um börn á
kreppuárunum. Aöalpersónurnar í
þessum þáttum heita OUe, Nisse og
Harald og eru frá litlum bæ i
suðurhluta Finnlands. Þýðandi:
Jóhanna Jóhannsdóttir. Þulur:
Ingi Karl Jóhannesson. (Nordvis-
ion — Finnska sjónvarpið).
19.00 Enska knattspyrnan. Umsjón:
Bjarni Felixson.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Ættarsetrið. Breskur gaman-
myndaflokkur. Fimmti þáttur.
Þýðandi: Guðni Kolbeinsson.
21.00 Spurt. Spurningakeppni í
sjónvarpssal. Annar þáttur. Spyrj-
endur: Trausti Jónsson og Guðni
Kolbeinsson. Dómarar: Sigurður
H. Richter og Ömólfur Thorlacius.
Stjóm upptöku: Tage
Ammendrup.
21.30 Gróðabrall (Skin Game).
Bandarísk biómynd frá 1971.
Leikstjóri: Paul Bogart. Aðalhlut-
verk: James Garner, Lou Gossett.
Myndin gerist fyrir daga borgara-
styrjaldarinnar í Bandarikjunum.
Hún fjallar um slægan náunga,
sem gerir sér það að leik að selja
vin sinn, blökkumann, og skipta
síðan ágóðanum eftir að hann
hefur sloppið frá kaupandanum.
Þýðandi: Jón O. Edwaid.
23.10 Trönurnar fljúga. ENDUR-
SÝNING. Rússnesk kvikmynd
gerð árið 1957. Leikstjóri: Mikhajl
Kaltozov. Aðalhlutverk: Tatjana
Samojlova, Aleksej Batalov, A.
Skvorin og Vasilij Merkurjev.
Myndin var fyrst sýnd i Sjónvarp-
inu 21. mai árið 1969. Þýðandi:
Hallvegi Thorlacius.
00.40 Dagskrárlok.
Sunnudagur
8. nóvember
16.00 Hugvekja. Séra Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, sóknarprestur í
Hruna, flytur.
16.10 Húsið á sléttunni. Annar
þáttur. Breyttir tímar. Þýðandi:
Óskar Ingimarsson.
16.55 Saga sjóferðanna. Annarþátt-
ur: Landafundir. Þýðandi og
þulur: Friðrik Páll Jónsson.
18.00 Stundin okkar. Umsjón:
Bryndís Schram. Upptökustjóm:
Elin Þóra Friðfinnsdóttir.
19.00 Karpov gegn Kortsnoj. Skák-
skýringarþáttur i tilefni heimsmeist-
araeinvígisins i skák.
19.20 Hlé.
19.45 Fréttaágrip átáknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
Umsjón: Magnús Bjarnfreðsson.
20.50 Æskuminningar. Annar
þáttur. Breskur framahldsmynda-
flokkur byggður á sjálfsævisögu
Veru Brittains. Sagan gerist á árum
fyrri heimsstyrjaldarinnar.
Þýðandi: Dóra Hafsteinsdóttir.
21.45 Gutenberg kvaddur. Bresk
fræðslumynd frá BBC um nýja
tölvu-, prent- og skrifstofutækni,
sem hefur og er að ryðja sér til
rúms í heiminum. Þá er jafnframt
fjallað um hina svokölluðu „upp-
lýsingabyltingu” og áhrif hennar á
lýðræði, landamæri, tungumál,
skrifræði og friðhelgi einkalífs.
Þýðandi: Bogi Arnar Finnboga-
son.
23.00 Dagskrárlok.
Það var mikill glæsileiki yfir dönsurunum i þá daga, hvort sem þeir tóku hægan
foxtrott eða jitterbug méð sveiflu. Hér dansar Fred Astaire við Ann Miller.
En nú ríkir mikill áhugi fyrir fata- tíma líklega aðeins á undan, ef eitthvað
tízku og öðru frá árunum kringum er.
1940, svo nú er Jón alveg á réttum -IHH.
HRÍMGRUND
—útvarp barnanna kl. 16.20:
Börnin sem ja ef nið
ogflytjaogveljasér
sitt eigið útvarpsráð
Vakin skal athygli á því að í dag
kl. 16.20 hefst útvarp barnanna og
verður það eftirleiðis á laugardögum
á þessum tima. Ætlunin er að börn
annist þáttinn sjálf að mestu og fái
þarna tækifæri til að æfa sig á
þessum fjölmiðli. Þau stofna sitt
eigið útvarpsráð og síðan semja þau
efni og lesa sjálf. Til umsjónar og
aðstoðar verða þó tveir fullorðnir,
Ása Helga Ragnarsdóttir og Þor-
steinn Marelsson.