Dagblaðið - 07.11.1981, Síða 24
Líklegttalið I ^AI &
að kjörnefnd ám*T CCVf II AUOl CV
bætifleiri r r FfE ■■■ ■ JT
framboðs- ser i profkjöno
listann.________ — þeirraámeðal Albert
Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins, fyrir næstu borgar-
stjórnarkosningar, rann út kl. 17 í
gærdag. Alls bárust kjörstjórn 24
nöfn og eru þau þessi: Jóna Gróa
Sigurðardóttir, Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, Albert Guðmundsson,
Sigríður Ásgeirsdóttir, Markús Örn
Antonsson, Anders Hansen,
Magnús L. Sveinsson, Páll Gísla-
son, Ólafur H. Ólafsson læknir,
Júlíus Hafstein, Þórir Lárusson,
Hilmar Guðlaugsson, Sveinn Björns-
son verkfræðingur, Ragnar Júlíus-
son, Márhildur Angantýsdóttir, Ingi-
björg Rafnar, Guðmundur J.
Óskarsson, Sigurjón Fjeldsted,
Sveinn Björnsson kaupmaður, Guð-
mundur Arason, Árni Bergur Eiríks-
son, Margrét S. Einarsdóttir, Davíð
Oddsson og Hulda Valtýsdóttir.
Kjörstjórn, sem í eiga sæti
fimmtán manns, fer nú yfir framboð
þau sem bárust. Henni er heimilt að
bæta við 16 nöfnum af fjörutíu sem
munu skipa listann er birtur verður
11. nóvember. Nokkur vafi var talinn
leika á því, í gær, hvort Albert Guð-
mundsson gæfi kost á sér sem hann
siðan gerði eins og sést á listanum.
Konur eru aðeins 25% af frambjóð-
endum og er talið líklegt að kjör-
nefndin vilji bæta við konum á list-
ann. Þá mun einnig talið líklegt að
hún muni og bæta við yngri mönnum
en þeim sem gefið hafa kost á sér.
Formaður kjörstjórnar er Ólafur B.
Thors.
-ELA.
EKKIER RAÐ NEMAITIMA SETEKIÐ
Það er kannski alveg ífyrsta lagi aðfara að tala umjólin strax en þeim í Rammagerðinni þykir ekki ráð nema í tíma sé tekið. Þar er
þegar kominn jólasveinn út í glugga — og gleður bœði börn og fullorðna, enda í rauninni ekki nema hálfur annar mánuður tiljóla.
DB-mynd: Einar Ólason.
Halldór Ásgrímsson f ormaður bankaráðs Seðlabankans:
Aðrir þurfa þé að geta yfír-
tekið þjónustu Útvegsbankans
— viðhlítandi ráðstafanir Seðlabankans verði þær að hann láni kúnnunum beint,
segir Albert Guðmundsson formaður bankaráðs Útvegsbankans
,,Ég vona bara, að þær viðhlítandi
ráðstafanir Seðlabankans séu þá
þær að hann láni kúnnanum beint,”
sagði Albert Guðmundsson for-
maður bankaráðs Útvegsbankans í
gær. Albert höfðaði til ummæla sem
höfð voru eftir Halldóri Ásgrímssyni
formanni bankaráðs Seðlabankans i
Tímanum í gær. Þar sagði Halldór að
hann tryði þvi varla að Útvegsbank-
inn myndi hætta að veita lán til at-
vinnuveganna. ,,Ef hann hins vegar
ákveður að gera það þá þarf að taka
málið upp og gera viðhlítandi ráð-
stafanir,” sagði Halldór.
í ræðu á Alþingi í fyrradag, sagði
Albert að á næsta bankaráðsfundi
Útvegsbanka íslands myndi hann
leggja til að bankastjórnum verði
ekki heimilt: að veita eitt einsta sjálf-
virkt lán; að nota þá peninga sem
bankinn á ekki; og vera milliliður
Seðlabanka og þeirra sem þurfa á
peningum að halda og borga fyrir
það yfir 40% vexti.
„Af hverju eiga umboðsmenn
erlendra aðila að fá þjónustu sína
greidda á daggengi á sama tíma og
Seðlabankinn tekur gengismun af
öllum útflytjendum,” sagði Albert í
viðtali við DB í gær.
,,Málið hefur ekki verið rætt i
bankaráði Seðlabankans en það er
min skoðun að ef einn af ríkisbönk-
unum hættir þeirri þjónustu. sem ég
tel að honum beri skylda til að veita
og ríkisstjórn og ríkissjóður hafa
verið að styrkja hann til þá er það
svo alvarlegur hlutur að gera þarf
ákveðnar ráðstafanir,” sagði Halldór
Ásgrímsson í gær.
— Ertu með því að segja að sam-
eina eigi Útvegsbankann t.d. öðrum
ríkisbanka?
,,Ég er ekki að gefa neitt slíkt í
skyn, enda er það ekki á mínu valdi.
Það hafa verið miklar umræður um
Útvegsbankann og sú stefna var tekin
að styrkja hann mikið. Seðlabankinn
hefur tekið á sig miklar byrðar
vegna þess. Ég tel að Útvegsbankinn
eigi að vera fullfær um að gegna
þessum skyldum og vona að sú sé
einnig skoðun stjórnenda Útvegs-
bankans. Ég veit ekki betur en Út-
vegsbankann hafi átt ágæta sam-
vinnu við Seðlabankann. Banka-
stjórar Útvegsbankans koma oft á
fund bankastjóra Seðlabankans og
ræða málin eins og bankastjórar ann-
arra banka. Það er hinn eiginlegi far-
vegur og á að vera svo áfram.
Albert Guðmundsson bankaráðs:
formaður Útvegsbankans er að gefa
það í skyn að Útvegsbankinn geti
ekki staðið við skyldur sínar. Það er
miklu alvarlegra mál en svo að ég geti
svarað því hér,” sagði Halldór.
-BS/JH.
frjálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR 7. NÓV. 1981.
Heimsmeistaraeinvfgið
íMeranó:
KARPOV
GAFÁN
ÞESS AÐ
TEFLA
Áskorandinn í heimsmeistara-
einvíginu í skák Viktor Kortsnoj vann
í gær 13. skákina í einvíginu. Anatolí
Karpov gaf biðskákina án
taflmennsku. Staðan í einvíginu er því
4—2 fyrir Karpov. Sjö skákum hefur
lokið með jafntefli. Sá sigrar sem fyrr
hlýtur 6 vinninga. Fjórtánda einvígis-
skákin verður tefld í dag, en orðrómur
gekk um það í gærkvöldi að heims-
meistarinn myndi biðja um frestun
skákarinnar. -JH.
Kafbáturinn farínn:
Norrænu
sendiherrarnir
hundsa hersýningu
íMoskvu
Sovézki kafbáturinn, sem strandaði
við Karlskrona í Svíþjóð fyrir 12
dögum, fór út úr sænskri landhelgi í
gær. Kafbátnum fylgdu fjölmörg
sænsk herskip. Starfsmaður sænska
varnarmálaráðuneytisins sagði að
báturinn hefði verið afhentur sovézka
flotanum, en floti sovézkra herskipa
hefur lónað utan sænsku landhelginnar
undanfarna daga.
Sendiherrar íslands, Noregs og
Danmerkur í Moskvu munu ekki
fylgjast með hersýningu vegna bylting-
arafmælisins í Moskvu í dag. Þeir mót-
mæla þannig, með hinum sænska
starfsbróður sínum, vegna kafbáts-
málsins. -JHæ
Áskrifendur
DB athugíð
Vinningur i þessari viku er
Crownsett frá Radíóbúðinni, Skip-
holti 19, Reykjavík, og hefitr hann
verið dreginn út. Nœsti vinningur
verður kynntur í blaðinu á mánu-
daginn.
hressir betur.