Alþýðublaðið - 19.05.1969, Blaðsíða 2
2 Allþýðublaðið 19. imaí 1969
SYNDIÐ 200 MEIRANA!
! Norræna sundkeppnin hófst á
'fimnitudaginn og síðan hefur mikill
fjöldi fólks synt 200 metrana. Nú
am 'helgina var þátttaka góð og
skruppu margir í laug í góða veðr-
mu til að hressa síg og svamla í
volgu vatninu. Myndin hér að ofan
var tekin f nýju Sundlaugunum á
laugardag, en þar var mikill fjöldi
samankominn og synti 200 metrana.
Myndin á að minna á Norrænu
sundkeppnina og hvetja alla til að
taka þátt í henni og færa Íslandi
sigur í keppnínnt.
EIN BIFREID
A HVERJA 5
í LANDINU
Opel 2.030, Chevrolet 1.49-1, Volvo
1.295 og Fiat 1.242 talsins.
Af vörubifreiðum var mest af
Ford, 1.239, en í næstu sætum voru
Cheyrolet 825, Mercedes.-Benz 614,
Bedford 577 og Volvo 450.
41 tegund var í landinu af bif-
hjólum, mest Vespa, eða 81 talsins,
en þar næst Honda 34.
Til samanburðar má geta þess að
árið 1959 voru á landinu 14.553 fólks
■bifreiðar, en 1969 37.568. Vörubif-
reiðar voru árið 1959 5.703, en 1969
6.039.
' 1. janúar s.l. voru bifreiðar og
bifhjól á öllu landin.u samtals 43.896
talsins, eða um 215 bifreiðar á hverja
1 1000 íbúa, Flestar voru 'bifreiðarnar
pg bifhjólin í Reykjavík, eða 18.882,
-n í Oullbringu- og Kjósarsýslu
voru 4284.
f Af fólksbifreiðum voru 140 teg-
undir. Mest var af Volkswagen
bifreiðum eða 6.691 bifreiö, en Ford
yar í næsta sæti með 4.560 bifreiðar.
í þriðja sæti var Moskvvitch, 3.096
og svo komu Willy’s Jeep 2.585,
okoda 2.488, Land-Rover 2.345,
" 1 ■■ "1 ■
Kosið í landsdóm
Reykjavík — H.P.
Eitt af síðustu störfum samein-
aðs þings var að kjósa átta menn í
landsdóm til næstu sex ára. Fyrir
þá, sem kynnu að vera í vafa um,
hvert hlutverk þeim dómi er ætlað,
skal hér reynt að gera því nokkur
skil. Lög urn landsdóm eru nr.
3/1963, en þau lög Ieystu af hólmi
lög frá 1905. I 1. gr. laganna segir.
„Landsdómur fer með og dæmir
mál, er Alþingi ákveður að höfða
gegn ráðherrum út af embættis-
rekstri þeirra.“
Þetta er eina hlutverk dómsins,
en hann er líka eina dómstigið í
þessu mmálum. I dómi þessum eiga
sæti 15 dómendur, en þeir eru hæsta-
réttardómararnir 5, yfirsakadómar-
inn í Reykjav'ík og prófessorinn í
stjórnskipunarrétti við háskólann.
Aðrir í dóminum eru svo átta menn
'kosnir af sameinuðu Alþingi með
hlutfallskosningu til 6 ára í senn.
Jafnframt skulu svo kjörnir vara-
menn þessara átta.
Forseti dómsins er sjálfkjörinn,
en hann er forseti hæstaréttar. Mál
verður því einungis höfðað gegn
ráðherra, að' ákvörðun. - Alþingis
komi til og skal sú ákvörðun tekin
með þingsályktun í sameinuðu þingi.
Sérstaðan við dóm þennan er því
sú, að hann fer einungis með mál,
er Alþiiigi ákveður að liöfða á
hendur ráðherra út af embættis-
rekstri þeirra, eins og fyrr segir, en
Ijóst má vera að það þurfi að vera
um miklar sakir að ræða til þess að
Alþingi taki slíka ákvörðun, enda
að jafnaði þingmeirihluti að baki
ráðherrum. Þá cr dómurinn mjög
-fjölniennur, 15 manns, en annar*
gilda um störf dómsins margar hin-
ar sömu reglur og um aðra dóm-
stóla.
I iandsdóm voru kosnir af Al-
þingi nú á laugardag. Af A-lista:
Helga Magnúsdóttir frú, Blikastöð-
um, Mosfellssveit, Reynir Zoega vél-
stjóri, Neskaupstað, Andrés Oiafs-
son prófastur, Hólmavík; Sigmund-
ur Sigurðsson, bóndi, Syðra-Lang-
holti og Sveinbjörn Sigurjónsson,
skólastjóri. Af B-lista ’voru kosnir:
Geir Sigurðsson kennari, Reykjavík
og Jón A Jóhannsson skattstj. Isaf.
og af C-lista var kosinn Ragnar
Ólafsson . hæstaréttariögmaður.
. Þá voru og kosnir jafnmargií
varamenn og í sömu hlutföllum af
listunum.
Þinglausnir fóru fram kl. 6 á .
laugardag s.l. Forseti sameinaðs Al-
þingis, Birgir Finnsson, gerði grein
fyrir úrslitum þingmála og störf-
um þingsins í vetur, og að Iokum
óskaði hann þingmönnum ollum
velfarnaðar og þakkaði þeim sam-
vinnuna í vetur. Eysteinn Jónsson
þakkaði af hálfu þingmanna og ósk-
aði forseta og fjölskyldu lians vel-
farnaðar. Þar næst las forseti Islánds,
herra Kristján Eldjárn, upp forseta-
bréf um að Alþingi, 89. löggjafar-
þingi, væn slitið. Loks hrópuðu
þingmenn ferfalt lnirra fyrir forseta
Islands og fósturjörðinni.
I yfirliti forseta sameinaðs Alþing-
is kom fram, að þingið hafði alls
st'aðið í 173 daga, og er það einum
mánði lengur en í fyrra. Þingmál
voru einnig fleiri í ár. I allt vora
'haldnir 250 fundir, 97 í neðri deild,
99 í efri deild og 54 í sameinuðu
þingi. Alls voru lögð fram 75 stjórn-
arfrumvörp og 84 þingmanna frum-
vörp, en af þessum frumvörpum
voru 70 stjórnarfrumvörp afgreidd
sem.lög.og -16 þingmannafrumvörp.
Hin frumvörpin itrðu ýmist ekki
útrædd,voru felld, eða þeim var vií-
að til ríkisstjórnarinnar.
Þingsályktunartillögur voru í allt
67, bæði í deildum og sameinuðu
þingi. Af þeim voru 17 afgreiddar
en hinar ýmist felldar eða ek1d
útræddar. Fyrirspurnir voru 61 í
sameinuðú þingi, 2 í neðri deild og
3 í efri deild. ALlar voru þessar fyr-
irspurnir ræddar nema fjórar og
ein, sem tekin var aftur. Alls voru
mál til meðferðar í þinginú 253 og
Framhald á 9. síðu.
Nýtegund umferðarfræðslu reynd hér;
Lögreglan býður
öllum í bíltúr
HátíðariTierkl
Úrslit eru nú kunn í samkeppnl
þeirri, sem þjóðhátíðarnefnd Reykjflí
Víkur efndi til um hátíðarmcrkl
islenzka lýðveldisins 17. júní n.k.
Torfi Jónsson teiknari fékk fyrstu
Framliald á 9. slðut,
Reykjavík — VGK.
í tilefni eins árs afmælis Iiægri
umferðar á Islandi, sem verður 26.
maí n.k. efnir Umferðanefnd Reykja
víkur og lögreghn í Reykjavik til
fræðslu fyrir ökumenn, sem er í
þv£ fólgin að annaðhvort aka menn
sjáífir í eigin bifreið undir leiðsögn
lögreglumanns, eða ökumenn sitja
í bifreið hjá ökukennara eða lög-
reglumanni. Fræðslan fer fram alla
þessa viku frá kl. 17.00—19.00, nema
föstudag kl. 20.30—22.00.
Fræðsla þessi er framkvæmd í
samráði við Ökukennarafélag ís-
iands og verður fræðslan veitt endur
gjaldslaust. Valdar hafa verið nokkr
ar akstursleiðir, en viðkomandi get-
ur þó ráðið bví hvert ekið verður
og farið á þá staði þar sem hann,
telur reglur óljósar eða erfitt að aka
um. Hver ökuíerð tekur um 40
mínútur. A sama címa geta þeir,
sem þess óska fengið fræðslu um
umferðarmál í nýju lögreglustöðinni
við Hverfisgötu án þess að fara í
ökuferð.
Nytt frímerki
17. júní n.k. verður gefið út nýtt
frímerki hér, í tilefni 25 ára afmælis
íslenzka lýðveldisins. Merkið er a8
verðgíldi 100,00 og 25,00 ísl. krónuí
og teiknaði Haukur Halldórsson
merkið. Stærð merkisins er 26x36
og er fjöldi frímerkja í örk 50 tálsins.
Merkið er sólprentað í prentsmiðju
Courvoisier í Sviss. Myndin á frf-
merkinu er teiknuð eftir hátíðar-
merki því, er gert var 1944 af Stefáni
Jónssyni og sýnir íslenzka fánanní
ásamt upprennandi sól. „