Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Eksemplar
Hovedpublikation:

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 29.11.1964, Side 12

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 29.11.1964, Side 12
c * 4 VERÐLAUNAGETRAUN Hvaða stað er lýst — hvenær — hver skrifar? „Maður gengur niður grænan hjalla með hojjpandi smálælíjum og fyrir neðan blasir við síldarplan með áttatíu stúlkum. Þær eru all- ar að salta af kappi og hróp eftir tunnum og salti rýfur morgunkyrrðina. Fjörðurinn er spegilslétt- ur og hvert síldarskipið eft- ir annað öslar inn fjörðinn með fullfermi; þau heyja sitt daglega kapphlaup í í höfn með veiði næturinnar. Hvít röstin frá bátunum myndar skáhallar rákir á bláum firðinmn og vélarnar eru spenntar til hins ítrasta. Þetta er eins og á veðreið- um eða knattspyrnukappleik og það er mikiið í húfi fyrir bátana. Tvær skipslengdir á eft^r geta kostað þriggja sólarhringa löndunarbið, og þeir eru að ausa upp síldinni fyrir utan dag éftir dag. Eimskipin pípa við brygg j- uraar og svartir reykjar- bólstrar stíga til lofts frá síldarverksmiðjunni. Vöru- bílar þjóta eftir götunum og allstaðar er annríki og spenna í kaupstaðnum. Maður kemur ofan úr fjallshlíðinni frá hoppandi smálækjum, huldufólkshömr- um og lömbum að leik og sogast inn í annríkið á plan- inu með hinum áttatíu stúlk- um. Síldarsaltandi er að spóka sig þarna í góða veðrinu og leikur við hvern sinn fingur. — Þeir eru fallegir morgn- arnir á ............... segir hann. — Hérna við bryggju- hausinn liggur Guðrún frá Hafnarfirði með þúsund tunnur af fallegri síld og allar stúlkurnar mínar eru að salta þessa^stundina. Hver vörubílunn eftirann- an ekur þama að stæðunni og heldur á brott með full- fermi af tunnum. Það er nefnilega útskipun 1 fullum gangi á sama tíma. Síldin streymir út af planinu. Svona vilja bankarnir hafa það. — Síldarplönin þjóta hér upp .............og eru þó landþrengsli mikil og stutt út í aðdýpið. Stórar jarð- vinnsluvélar ráðast á fjalls- hlíðamar, og hver undir- lendisspotti er eftirsóttur undir athafnasvæði. Síldar- planið mitt er til dæmis héma undir Bjólfinum, eins og þetta er árennilegur risi að kljást við í þessum efn- um. Við horfum lóðrétt upp í loftið. Svo kemur kannske langvarandi stormur með regnveðri og bylur á klett- unum og skriðurnar falla og sópa síldarplönum eins og spýtnarusli út á fjörðinn. — Níu síldarplön eru rek- in hér í sumar og salta sex liundruð stúlkur tólf þúsund tunnur í tiu stunda lotu. Að- alveiðisvæðið er hérna fyrir utan fjörðinn og þrýsting- urinn er mikill frá flotan- um. Hér verður saltað mikið í sumar að líkum. Það er lífleg sjón að horfa á áttatíu stúlkur önnum kafnar við söltun eftir næst- um endalausri kassaröðinni á planinu. Þessar iðandi hendur með blikandi hnífa á lofti í hvítu og ............ sólskini. Það er vígaleg sjón. Svo fikrar maður sig eftir stúl'knaröðinni á sleipu plan- inu og mundar myndavélina á fjórar stúlkur af handa- hófi í þessu iðandi lífi og það heyrist lágur smellur. Ein þeirra gellur þegar við: — Jæja, karlinn. Þar náðirðu nú loksins mynd af reykvískum geimkellingum á síld. Asdís Kvaran hefur orðið. — Við Kvaransyst- urnar erum alltaf léttar á bárunni. Ég veit hinsvegar lítið um þessar saklausu dúf- ur hér við hliðina á mér. Þær eru víst frá Vestmanna- eyjum. Við köllum þær Surts- ey og Vesturey af því að allir ruglast á nöfnunum. Þær kalla sig Ernu og Erlu Páls og eru eins og tvíburar. Þetta er líka svo ungt og reynslulítið í heiminum, blessuð skinnin. Surtsey og Vesturey fara að hlæja og krunka eitthvað saman. Það var bítladansleikur i gærkvöld ......... — Ösköp er nú heilsusam- legt að salta síld í svona góðu veðri, segir Asdls Kvaran. — Við Kvaransyst- ur byrjum daginn með því að elda okkur hafragraut og borðum hann af beztu lyst. Svo drekkum við lýsi í há- deginu og annan lýsissnaps á kvöldin. Það er allt og sumt. Við getum líka aldrei ver- ið iðjulausar. Þegar ekki er verið að salta síld, erum við roknar í byggingarvinnu og sortérum þar timbur upp á líf og dauða. Svo erum við líka stundum í tímavinnu á B.P. stöðinni. Þeir ráða svo illa við olíutunnurnar. Ekk- ert skil ég í því að hafa aldrei farið áður á síld. Lífið hér ............ er eins og í skáldsögu. eftir Jack London, segir Asdís Kvaran. — Hér hafa allir frelsi til þess að gefa hver öðrum á kjaftinn og ganga hver frá öðrum án þess að nokkuð sé bókað. Þetta er villt og yf- irspennt líf. Einhversstaðar eru hér tveir lögregluþjónar að paufast í bænum. Annar er ríkislögregla. Þeir eru Framhald á bls. 454. Þjóðvegurinn frá Keflavík til Akureyrar er annar fjölfarnásti vegur landsins. Að sjálf- sögðu eru á þeirri leið margir staðLr, smáir og stórir, sem eiga sína sögu. Nú skulum við vita hve margir þeirra e<r farið hafa þessa leið, þekkja sögu nokkurra steina sem blasa við af veginum. — Hver er saga þessara steina sem þið sjáið hér á myndinni?

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.