Alþýðublaðið


Alþýðublaðið - 15.06.1969, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 15.06.1969, Qupperneq 6
SÍÐASTI ÍSLEND- INGURINN Á GRÆN- LANDI Grænlenzk munnmælasaga Margar getgátur hafa verið uppi um það, hver hafi orðið örlög síðustu íslentl- inganna á Grænlandi. Grænlendingar sjálf- ir hafa sína skoðun á því máli, og birtist hér gömul, grænlenzk þjóðsaga því til sönnunar. Eins og sagan birtist hér, er hún sögð af afkomanda Kasapis, bana- manns síðasta íslendingsins á Grænlandi en fært hefur í letur danski rithöfundur- Thomas Olufson. Þess skal getið, að sagan er alls ekki við hæfi taugaveiklaðs fólks. Kasapi var í heiminn borinn á lítilli eyju viS suðurströnd Grænlands. Faðir hans var höfðingi mikill, og Kasapi varð eirrnig höfðingi og mikill veiðimaður. Þegar á yngri árum Kasapis fóru að berast sögur af afli hans og þori. Og þar sem Kasapi hafði erft miklar eignir að föður sínum látnum, þ.á.m. báta og veiði- áhöld, og var auk þess vitringur og „galdramaður," óttaðist fólk hann og hat- aði í senn. Árum saman bjó Kasapi í friði og spekt á eynni sinni. Hann festi sér konu og gat við henni barn. Og þó að flestum stæði stuggur af Kasapi, gat ekki hjá því farið, að honum yrði einnig vina auðið. Meðal vina hans var íslerrzkur höfðingi ,sem kall aður var Ungatoq og bjó með fólki sínu í fögrum dal í fjarðarbotni einum, all- margar dagleiðir frá eynni Kasapis. Kasapi fór oftlega um lönd íslendings- ins, vinar síns. Og þegar Kasapi sat í öndvegi í stofu hans, fanrrst honum heim- urinn mikill og fagur og lífið broshýrt og bjart, og hann lofaði Ungatoq hástöfum fyrir hugrekki hans og snilli. Ungatoq launaði Kasapi lofið með hrós- yrðum ýmsum og stundum tók hann sér ferð á hendur til eynnar Kasapis. En einhverju sinni kom mjög slæmur og harður vetur, og ísinn lá að landi svo langt sem augað eygði. Fólk Kasapis gat gengið þurrum fótum á land upp. Dag nokkurn sagði einn af mönnum Kas- apis: „í fyrramálið ætla ég á refaveiðar." Og er Kasapi innti hann eftir því, hvert förinni væri heitið, svaraði maðurirrn: „Ég ætla þarrgað, sem Ungatoq býr.“ „Berðu honum kveðju mína," sagði Kasapi þá, „því að hann er vinur minn.“ Að morgni næsta dags tók maðurinn vopn sín og fór leiðar sinnar. Daginn eftir hitti hann einn manna Un- gatoqs uppi á fjöllum og drap hann. S'ðan hélt hann sem leið lá niður í dalinn. Þai var honum tekið með kostum og kynjum matur framreiddur og um hvílu búið. En næsta oag fannst hinn myrti mað- ur. Ókunni maðurinn var kallaður fyrir ís- lenzka höfðingjann, sem spurði: „Hvers vegna myrtir þú mann minn?“ Hinn ókunni svaraði: „Hann kaus að deyja, því drap ég hann.“ Ungatoq hugleiddi þetta svar um stund, err sagði síðan,- „Þú ert liðsmaður 6 Alþýðublaðfð — Helgarblað

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.