Alþýðublaðið - 15.06.1969, Blaðsíða 11
INGVAR
ÁSMUNDSSON
AD PRÓFA SJÁLFAN SIG
ÞaÖ má segja, að skákmenn séu allt-
af að prófa sjálfa sig í viðureign við
aðra skákmenn og hefur verið búinn til
mælikvarði í stigum, sem byggist á úr-
slitum í þeim skákum, sem viðkomandi
teflir. Áki Pétursson hefur búið til eitt
slíkt mælikerfi og reiknaði eftir því í mörg
ár, en niðurstöður voru yfirleitt bircar í
tímaritinu Skák. Nú hefur Áki misst áhug-
ann á að reikna stigin, enda hefur aldrei
verið farið eftir þeim, þegar skipt er í
flokka á skákmótum. Menn höfðu ánægju
af að fylgjast með stigaútreikningum og
viðurkenndu flestir, að hann gæfi nokkuð
góða mynd af skákstyrkleika manna, en
almennan skilning á því hagræði í flokka-
skiptingu, sem felst í stigunum, hafa
menn ekki öðlazt hér á landi. Bandaríkja-
menn hafa notað stigaútreikning til að
skipa í flokka á skákmótum um árabil og
virðist það gefa góða raun. Önnur aðferð
til að meta styrkleika manna í skák er
að láta þá prófa sjálfa sig. Er það gert
með því að sá, sem þreytir prófið, breið-
ir pappírsörk yfir leikina, sem hann á að
gizka á. Síðan gizkar hann á fyrsta leik-
inn, færir örkina niður um eina línu og
athugar, hvort hann gizkaði rétt. Þá gizk-
ar hanrr á næsta leik á sama hátt og þann-
ig koll af kolli, þar til prófinu er lokið.
Þeir, sem ekki hafa áhuga á prófum,
geta sleppt þessu umstangi með örkina
og stigin og skoðað skákina með venju-
legu móti. Prófið hefst í 11. leik og hef-
ur sá hvítt, sem þreytir prófið.
Hvítt: Sir George Thomas.
Svart: Varain.
Teflt í Spa árið 1925.
Frönsk vörn.
1. e2-e4 e7-e6
2. d2-d4 d7-d5
3. Rbl-c3 Rg8-f6
4. Bcl-g5 d5xe4
5. Rc3xe4 Rb8-ci7
6. Rgl-f3 Bt8 e7
7. Re4xf6t Rd7xf6
8. Bfl-d3 b7-bo
9. O—O Bc8-b/
10. Ddl-e2 0—0
Nú á að gizka á næsta leik hv.'ts
Hvítur: Stig: Svartur: Ágizkun:
11. Hal-dl 3 c7-c6
12. Rf3-e5 4 Dd8-c7
13. De2-e3 7 Rf6-d5
14. De3-h3 2 g7-g6
15. Bg5-h6 2 Hf8-e8
16. Hfl-el 5 Be7-f8
17. c2-c4 4 Rd5-f6
18. Bh6-f4 5 Rf6-h5
19. Re5xg6 10 Rh5xf4
20. Rg6-e7 8 Svartur gafst upp
50 Stig samt.
Eftirfarandi einkunnir eru gefnar á próf-
inu:
Fyrir 40—50 stig, frábært, 30—39 stig,
mjög gott, 20—29 stig, gott, 15—19 stig
sæmilegt.
Fyrir 20. Rxf4 eru gefin 4 stig.
AHtfSubiaStð — lUlgarbkð 11