Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Qupperneq 17
17
áns um orsakirnar til hnignunar skólans, en ræðir þó meira
árásir þær, sem gerðar voru á skólastjóra og kennara. En það
virðist liggja fleira hér að baki. Vafalaust hafa harðindin átt
mikinn þátt i að aðsóknin minnkaði, en þó er þess að gæta,
að ekki verður þeirrar minnkunar vart að ráði í Latínuskól-
anum, Hólaskóli er sæmilega sóttur og Hléskógaskólinn, sem
stofnaður var til höfuðs Möðruvallaskóla um þessar mundir,
fylltist. Nærri liggur að ætla, að orsakirnar hafi að einhverju
leyti legið innan veggja skólans sjálfs, og hinn mæti maður
Jón A. Hjaltalín skólastjóri, hafi ekki gert sér þær Ijósar eða
átt óbeinlínis einhverja sök á að svona var komið. Það virð-
ist t. d. nokkurn veginn ljóst, að lionum hefur ekki verið lag-
ið að laða menn að skólanum. Hann virðist bíða þögull og
þungbúinn þess, sem verða vildi, og ekkert er gert heima á
staðnum, til þess að fá nemendur þangað. Og af einhverjum
ástæðum er traustið á skólanum þorrið. Síra Arnljcrur, hinn
gamli forsvarsmaður skólans, er snúinn gegn honum, og þótt
ýmsir nemendur tækju svari skóla síns, tókst þeim ekki að
skapa nauðsynlegt traust á stofnuninni. Kennaraskiptin hafa
verið skólanum þungt áfall. Ekki verður Hjaltalín sakaður
um þau, enda þótt auðsætt virðist, að engin vinátta liefur ver-
ið milli hans og Þorvalds Thoroddsens. Þorvaldur getur hans
af lítilli hlýju, og af ummælum Hjaltalíns í Austra virðist
ljóst, að hann hefur ekki gert sér þess grein, hvað skólinn
missti við brottför Þorvalds. En þar segir svo: „Eg er heldur
ekkert hræddur um að skólinn dragist upp, þótt Þ. Th. sé ekki
við hann um tíma. En hitt er satt, að ísland er illa farið, ef
þar er ekki nema einn Þorvaldur og Benedikt S. Þórarinsson
er spámaður hans.“# En skyldi það ekki hafa verið svo, að
sterkasta segulaflið, sem dró menn að skólanum hafi verið Þ.
Th. En er ekki eitthvert samband milli hinna hatrömmu árása
Skúla Thoroddsens á skólann og brottför bræðra hans frá hon-
um? En hafi Hjaltalín ekki til fulls kunnað að meta Þorvald
Thoroddsen, þá er það hans hróður, hversu vel hann tók Stef-
áni Stefánssyni og kunni að meta hann réttilega allt frá fyrstu
* Norðlenzki skólinn, bls. 505.
2*