Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Side 24
24
á hann í miklum bréfaskriftum við ýmsa kennara í Reykjavík
um málið, einkum þó Jóhannes Sigfússon. Síðar þann vetur
var félagið stofnað, og Stefán skrifar í dagbók sína f8. maiz:
„Fékk bréf frá Jóhannesi Sigfússyni um að kennarafélagið sé
stofnað. Þó enginn viti, að ég hafi átt nokkurn þátt í þessari
félagsstofnun, þá get ég samt glaðst með sjálfum mér vfir því,
að ég hef máske einna mest agitérað fyrir henni.“ Sumarið
eftir sótti Stefán síðan liinn almenna kennarafund í Reykja-
vík og átti þar hlut að lagabreytingu og fleiri ným.elum í fe-
laginu.
Ekki löngu eftir að Stefán kom að Möðruvöllum koin út
ritgerð eftir Boga Th. Melsted, Um menningarskóla. Stefán
skrifar langt mál um hana í Norðurljósið og lekur að miklu
leyti í sama streng og Bogi. Vill hann að minnkað sé nám torn-
málanna og latínan látin rýma fyrir íslenzkunni. Hann vill
þá þegar fá tvískiptan skóla í gagnfræðadeild og lærða deild,
og að Möðruvallaskólinn verði gerður að gagnfræðadeild, en
skólarnir tengdir saman. Ekki er hann þá kontinn á þá skoð-
un að flytja Möðruvallaskólann til Akureyrar.*
Á Alþingi 1893 báru þeir Jón Jacobsson og Olafur Briem
fram frumvarp um afnám forntungnanna sem skyldunáms-
greina Lærða skólans. Þótt það næði ekki fram að ganga, var
með því vakin sú hreyfing, er síðar leiddi til gjörbreytingar
skólans. Eins og þegar hefur verið getið skrifaði Stefán grein
um skólabreytiugamálið í Eimreiðina 1895. Eru skoðanir hans
þar að mestu hinar sömu og í ritdóminum um grein Boga
Melsted, en þó í fastara formi. Meðal annars gerir hann þar
uppkast að vikustundaskrá skólanna. Latínan skipar enn önd-
vegið, og ekki treystist hann til að leggja til afnám grískunn-
ar með öllu. En stærðfræði og náttúrufræði eru mjög auknar,
svo og leikfimi og liandiðnir, en lagt er til að sleppa frönsku
og trúfræði.
Þá ræðir lrann um skólatímann, og vill fremur stytta hann
en lengja eins og komið hafði til tals. Segir hann svo m. a.:
„Vér kvörtum yfir fátækt vorri og hversu skammt vér erum á
Norðurljósið III, bls. 65.