Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Síða 42
42
ir gallar voru þó á því, og mikils þurfti við um viðhald þess
ef vel ætti að fara. Erfitt var að halda uppi fullum þrifnaði í
svo stóru húsi, þar sem margir bjuggu, lítt vanir að gæta hrein-
lætis. En það hefur lengi verið á orði haft, hve mikill snyrti-
bragur ríkti í öllum húsakynnum skólans í tíð Stefáns. Hann
var sjálfur manna híbýlaprúðastur, og þoldi engum sóðaskap
né hirðuleysi í þeim efnum. Jónas frá Hriflu talar um hol-
lenzkan þrifnað í sambandi við skólastjórn lians, og má það
til sanns vegar færa. Orkaði Stefán mjög á hugi nemenda í
þessum efnum, bæði um klæðaburð og umgengni um hús og
muni. Tregðu stjórnarvaldanna um nauðsynleg framlög til
viðhalds skólanum, svaraði hann með því, að halda uppi svo
góðri umgengni, að fágætt er.
Skólastjórn Stefáns einkenndist í senn af frjálslyndi og festu.
Hann kaus að hafa fáar reglur, en gekk ríkt eftir að þeim væri
fylgt, og forðaðist alla smámunasemi. Vænlegast þótti honum
til góðs aga og uppeldis, að nemendur bæri nokkra ábyrgð
sjálfir, og skírskotaði oft til mannlundar þeirra. Heppnaðist
það vel. Samvinna við kennara og nemendur var með ágæt-
um, og skólinn dafnaði í friði. Ekki minnist ég þess, að árásir
væru gerðar á skólann né stjórn hans á skólameistaraárum
Stefáns, og sjaldan heyrðust óánægjuraddir né kulda, sem að
honum væri beint á þeim árum. Segir það vissulega meira en
flest annað, því að sjaldgæft mun að slíkar raddir heyrist ekki
meira eða minna, þótt vel sé stýrt skólum. Það er athyglisvert,
hve oft hann víkur að því í skólaræðum sínum, hversu ljúf og
ánægjuleg sambúðin sé við nemendur. Aldrei heyrist orð falla
í þá átt, að honum finnist til um erfiðið, sem skólastjórninni
fylgdi, heldur þvert á móti. Fullvíst er þó, að hann hefur sem
aðrir skólastjórar oft þurft að gefa nemendum áminningar og
við mörg mál að fást. Hins vegar gætir á síðari árum hans
nokkurrar beiskju í garð stjórnarvaldanna fyrir afskipti þeirra
af málum skólans, og þó einkum hversu fé væri sparað á all-
an hátt til viðhalds og eflingar skólanum, þó að yfir tæki þeg-
ar skólanum var lokað veturinn 1917—18. Var nú öldin önn-
ur, en þegar þeir Hannes Hafstein sneru bökum saman til efl-
ingar skólanum og að bæta aðbúð kennslu og nemenda. í síð-