Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Qupperneq 74
74
sömu braut, sem Góðtemplarar hafa hingað til farið, yrði af-
leiðingin sú, að menn breyttu smátt og smátt skoðun sinni á
vínnautninni, og sá yrði endirinn, að víndrykkja hyrfi innan
langs tíma algerlega með þjóð vorri. Eftir þeim miklu breyt-
ingum, sem orðið hafa á hugsunarhætti manna í þessum efn-
um, síðan Góðtemplarareglan hélt innreið sína hér á landi,
má búast við því. Aftur þegar á að fara að kúga menn með
valdi, verður afleiðingin alveg þveröfug: sú að menn ekki að-
eins fyllast kergju við þessi lög og drekka allt að einu (ráðin
verða alltaf nóg að fara í kringum lögin) heldur verður þetta
einnig til þess, að minnsta kosti hjá allmörgum, að þeir missa
virðinguna fyrir lögum yfirleitt, og þá er ver farið en heima
setið. Því þar sem hlýðninni við lögin er spillt, þar er einni
af máttarstoðum þjóðsiðgæðisins burtu kippt.
Afleiðingarnar af þessum lögum hljóta að verða þær, að
þegar menn finna, að þau brjóta eða koma í bága við eðli-
legan og viðurkenndan rétt einstaklingsins, þá missa þeir virð-
ingu fyrir lögunum, en þar af leiðir að menn brjóta þessi lög,
hvenær sem tækifæri gefst. Og það verða ekki aðeins þessi lög,
sem fyrir þessari lítilsvirðingu verða, heldur öll lög í heild
sinni. Réttarmeðvitund þjóðarinnar er því stofnað í voða með
þessum lögum, enda mun lagabrotum fjölga drjúgum. En þar
sem búast má við, að menn treysti á fremsta hlunn til þess að
brjóta slík þvingunarlög, og þar sem hinu opinbera er ómögu-
legt að líta svo vel eftir að ekki takizt að brjóta lögin, þá hlýt-
ur öllum að vera það ljóst að markmiðinu — algerðri útrým-
ingu áfengis — ná bindindismennirnir ekki á þennan hátt.“#
Lagði síðan fram brt. um að ný þjóðaratkvæðagreiðsla færi
fram um það að lögin kæmi ekki til framkvæmda nema i/b
alþingiskjósenda greiði þeim atkvæði sitt við leynilega at-
kvæðagreiðslu er færi fram síðari hluta ársins 1910.
Meira verður ekki dvalizt við þingstörf Stefáns. Eg hefi til-
fært hér nokkra ræðukafla, af því að þeir lýsa afstöðu hans og
lífsviðhorfum í mikilvægum þjóðmálum. Um þingmennsku
Alþingistíðindi 1909 B I, 562—570.