Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Síða 84
84
í Surtshelli. Eitthvað virðist hann hafa litið eftir gróðri í ná-
grenni Reykjavíkur.
Næsta sumar f890 fór hann viku ferð norður með Eyjafirði,
um Svarfaðardal, Ólafsfjörð, Héðinsfjörð og Hvanndali, og
síðan vestur í Fljót og um fremri hluta Svarfaðardals á heim-
leiðinni.
Árið 1891 var hann lengstum á ferðalagi frá 14. júlí til 14.
ágúst. Má sjá það á dagbók hans í júnílok, að hann hefur ver-
ið tekinn að gerast órólegur að komast ekki af stað. Hefur það
haldið fyrir honum vöku, að verða að setja grasafræðina til
hliðar vegna annríkis við búskap og sveitarstörf. En eftir, að
hann fer af stað þá leggur hann leið sína fyrst um afdali Hörg-
árdals, sem hann kannar flesta, síðan um Eyjafjörð, og fer
hann á sama hátt fram í botn og inn í afdal, einnig nm Sölva-
dal, síðan austur í Fnjóskadal og afdali hans, norður um Flat-
eyjardalsheiði og Flateyjardal og út í Flatey. Þá fer hann einn-
ig um Fjörðu, og norðurleiðina yfir á Látraströnd, inn Látra-
strönd og út í Hrísey.
Sumarið 1892 komst hann ekki í neitt ferðalag, en hélt
áfram smáferðum og athugunum kringum Möðruvelli. Að
sumri loknu skrifar hann svo í dagbók sína: „Sumarið leið,
svo að ég gat lítið studerað eða fengizt við botanik. Nokkrum
sinnum fór ég á excursionir hér kring en safnaði litlu og gerði
engar nýjar athuganir. Mér gremst, hve lítið ég hef gert, og
það sé ég fyrir, að haldi ég áfram með búskapinn og verði hér
heima á sumrin, þá er úti um mína botanik. Það er því ann-
að hvort að hrökkva eða stökkva. Eg hefi ekki efni á að ferð-
ast upp á mínar eigin spítur, en kemst ekki af með launin
svo búið er mér nauðsynlegt. Og hvað á ég svo að gera. Kom-
ast héðan og ná einhverju betra? Það er ekki til.“ Eg hefi tek-
ið þetta dagbókarbrot, til þess að gefa ofurlitla mynd af því
hver starfsskilyrðin voru, og hvernig það var að vera vísinda-
maður á íslandi fyrir aðeins 70 árum.
En þótt Stefáni þætti ekki blása byrlega haustið 1892, þá
rættist nú svo fram úr, að næsta ár fer hann í eina lengstu
ferð sína, og svo varð einnig tvö sumurin næstu. Ferðin 1893
var til Vestfjarða, en þeir höfðu verið flestum landshlutum