Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Page 116

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Page 116
ar skrifaði hann mikið í blöð og var riðinn við stofnun og út- gáfu tveggja blaða, sem um skeið voru aðalblöð norðanlands. Þegar á Hafnarárum sínum hóf Stefán að skrifa fréttapistla í blöð, ef til vill vegna þátttöku sinnar í félaginu Velvakanda. Skrifar hann að staðaldri fréttir í Norðurljósið á Akureyri ár- in 1886 og 1887 unz hann fór frá Kaupmannahöfn. Einnig mun hann hafa sent Þjóðviljanum fréttabréf um þær mundir, þótt ég hafi ekki haft upp á þeim með vissu. Eftir að hann kemur að Möðruvöllum tekur hann upp sam- vinnu við Pál Jónsson Árdal, sem þá var ritstjóri Norðurljóss- ins, og virðist þeim hafa fljótt orðið vel til vina. Skrifar Stef- án nú margt í blaðið, bæði ræðir hann þar skólamálið, en Norðurljósið hafi ætíð haldið uppi vörnum fyrir Möðruvalla- skóla, og skrifar um ýmis menningarmál, ritdóma, minning- argreinar og smágreinar fræðilegs efnis. Lítið eitt er þar um pólitík. Sumt þessara giæina er nafnlaust eða undir dulnefni. Notar hann þar mest nafnið Stefnir Eyfirðingur. Á þessum fyrstu Möðruvallaárum, skrifar hann einnig við og við í Þjóð- ólf. Vert er að geta hér greinar um sund og sundkennslu, sem liann sendi Þjóðviljanum 1890. En af henni verður ljóst, að Stefán hefur skrifað sýslunefndum norðanlands og skorað á þær að beita sér fyrir sundkennslu og kosta hana. Brugðust Skagfirðingar fyrstir við 1888 en Húnvetningar ári síðar. Sýslu- nefnd Eyfirðinga eyddi hins vegar málinu, en mun þó síðar hafa tekið það upp. Eyfirðingar héldu minningarhátíð um 1000 ára byggð hér- aðsins 1890. Ekkert kom Stefán við þau hátíðahöld, og var þó fast lagt að honum einkum um leiksýninguna Helga magra. Þótti honum allt hátíðahaldið fremur lítils virði. Nokkru eft- ir hátíðina skrifaði hann alllanga grein í Lýð síra Matthíasar, þar sem hann harmar það, að afmælið skyldi ekki hafa verið látið marka eitthvert spor í framfaramálum héraðsins. Sting- ur hann upp á, að haldinn yrði almennur héraðsfundur til umræðna um framkvæmdir til umbóta, og hvernig þeim megi hrinda áleiðis. Nefnir hann þar til sex eftirfarandi atriði: 1. Stofnun félags til gufubátsferða á firðinum. 2. Stofnun bún- aðarfélags fyrir alla sýsluna. 3. Stofnun almenns framfarasjóðs.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.