Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Page 150
150
4. Til rannsóknarstofu ................................... — 50.000.00
5. Til skjólbeltatilrauna ................................ — 5.000.00
6. Ýmis útgjöld........................................... — 3.500.00
Samtals kr. 93.500.00
I sambandi við 5. lið gjaldamegin á fjárhagsáætluninni
kom fram og var samþykkt samhljóða eftirfarandi tillaga:
„Aðalfundur Rf. Nl. samþykkir að veita skjólbeltafélagi
bænda í norðurhluta Öngulsstaðahrepps 5000.00 kr. styrk
á næsta ári til skipulegra skjólbeltagerðar. Jafnframt álykt-
ar fundurinn að æskilegt sé, að framhald geti orðið á fjár-
veitingum til skjólbeltagerðar, svo að öll samböndin á fé-
lagssvæðinu geti orðið hans aðnjótandi."
6. Kosningar.
Ur stjórninni átti að ganga Steindór Steindórsson og vara-
maður hans Sigurður O. Bjömsson. Kosningu hlutu þeir
Steindór Steindórsson, yfirkennari og Sigurður O. Bjöms-
son, prentsmiðjustjóri, báðir til 3ja ára. Endurskoðendur
reikninga félagsins til eins árs voru kosnir þeir: Eggert Dav-
íðsson, Möðruvöllum og Björn Þórðarson, Akureyri.
Dagskrá var þá tæmd.
Formaður þakkaði fundarmönnum fyrir komuna og góða
samvinnu um málefnin. Einnig þakkaði hann það traust,
sem fundarmenn hefðu sýnt honum með endurkosningu í
stjórn félagsins. Þá gerði hann það að tillögu sinni, að fram-
kvæmdarstjóra félagsins, Ólafi Jónssyni, yrði sent þakkar og
kveðjuskeyti frá fundinum og var það einróma samþykkt.
Fundarger lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið.
Þórarinn Kristjánsson. Steindór Steindórsson.