Veðráttan - 02.12.1929, Side 6
f
Arsyflrlit
Veðráttan
1929
Soltau frá 25. júní til júlíloka, er Dr. Kantzenbach tók við og var
þangað til flugferðir liættu þ. 23. sept. Kostnaður við dvöl þeirra
hér var greiddur af Fiugfélaginu.
Þ. 18. júní gaf Stjórnarráðið út reglur fyrir Veðurstofuna,
komu þær að nokkru leyti til framkvæmda snemma í júlí, en þeim
l)reytingum, sem höfðu í för með sér aukin útgjöld, lieflr þó orðið
að fresta, flestum, vegna fjárskorts.
I viðbót við þær veðurfregnir, sem áður voru sendar, var í
marz byrjað á því að útvarpa veðurfregnum á þýzku tvisvar á dag.
Er sænsku flugmennirnir, Ahrenberg og Flodén, gerðu tilraun
til að fljúga til Ameríku um ísland og Grænland, lét Veðurstofan
þeim í té veðurfregnir og veðurspár frá því skömmu áður en þeir
lögðu af stað frá Stokkhólmi og þar til er þeir höfðu dvalið nokkra
daga í Grænlandi. Einnig hafði Veðurstofan milligöngu í því, að þeir
fengju veðurfregnir og veðurspár frá veðurstofunni í Kanada. Um tíma
sendi og Veðurstofan veðurfregnir og veðurspár til leiðbeiningar fyrir
liinn ameriska flugmann Cramer, er ætlaði að fljúga um Island til
Evrópu. Var í ráði, að hún aðstoðaði við fleiri tilraunir til
að fljúga milli Ameríku og Evrópu, þótt eigi yrði úr því, vegna
þess að hætt var við þær fiugtilraunir.
Utgáfu mánaðarritsins „Veðráttan11 var haldið áfram þetta árið
auk þess voni fjölrituð, eins og að undanförnu veðurskeytin að
morgninum og send áskrifendum. Fjölritaðar voru og skýrslur um
landskjálfta, er mælarnir í Reykjavík sýndu. Skýrslur þessar eru á
ensku og sendar þeim stofnunum erlendis, er fást við samskonar
rannsóknir, enda fær Veðurstofan í skiftum skýrslur þeirra. Nokkur
landskjálftablöð voru og send erlendum stofnunum til nánari athugunar,
vegna þess að þær ætluðu að láta fram fara sérstaka rannsókn á
þeim landskjálftum. Nokkrum opinberum stofnunum innanlands og
utan og einntökum visindamönnum voru eftir ósk þeirra gefnar
skýrslur um sérstaka þætti úr veðurlagi hér á landi eftir eldri at-
hugunum. Til upplýsinga í lögfræðilegum málum voru á þessu ári
gefln 5 vottorð um veðrið. Veðurstofan safnaði einnig símfregnum
og skriflegum skýrslum um eldgosin í febrúar og gaf út tilkynn-
ingu um þau.
Bókasafn Veðurstofunnar vex hröðum skrefum. Nokkrar bækur
hai'a verið keyptar, en miklu meira munar um það, að hún fær
mikið af ritum í skiftum frá erlendum veðurl'ræðistofum. A þessu
ári fékk hún og mikla bókagjöf (um 200 bindi, iiest innbundin) frá
hinu danska Marineministerium.
A veðurathuganastöðum hafa litlar breytingar orðið. Þ. 11. des.
byrjaði Grímsey að senda veðurskeyti daglega,
Meðan flugferðum var haldið uppi (frá 25. júní til 23. sept.)
fjekk Veðurstofan aukreitis veðurfregnir frá 10 veðurskeytastöðvum
og frá 6 aukastöðvum, sem sendu aðeins veðurskeyti þann tíma, er
flugferðirnar voru.
Eins og á undanförnum árum liafa landskjálftamælarnir verið
í stýrimannaskólanum og heíir skólastjóri Páll Haiklórsson annast
hina daglegu hirðingu þeirra, en forstjóri Veðurstotunnar hettr unnið
úr landskjálfta uppteiknunum þeirra. Fram að 17. nóv, voru land-
skjálftablöðin athuguð aðeins einu sinni í mánuði, en síðan hafa
þau verið athuguð daglega, og verða framvegis sendar út í útvarpi
fregnir af þeim landskjálftum, sem mælarnir sýna að eigi upptök í
eða við Island. Fyrir áramót varð eigi vart neinna slíkra landskjálfta.
(54)