Veðráttan

Årgang

Veðráttan - 02.12.1959, Side 20

Veðráttan - 02.12.1959, Side 20
Ársyfirlit VEÐRÁTTAN 1959 ÁRSSKÝRSLA Breytingar á starfsliði. Reykjavílmrflugvöllur. Jón Ásbjömsson aðstoðarmaður hætti í lok marzmánaðar. Katrín Karlsdóttir gegndi starfi hans til loka september, en þá tók við Kristmundur Jakobsson, sem áður hafði unnið í loftskeytadeild Veðurstofunnar. Bjöm L. Jónsson veðurfræðingur fékk ársleyfi frá störfum i september. KeflavíkurflugvöTlur. Elías Ágústsson aðstoðarmaður hætti í júní. Við störfum hans tók fyrst Páll Jónsson, sem byrjaði í apríl, en hætti aftur í desember, og tók þá Jón A. Pálsson við starfinu. Sigurður Jónasson aðstoðarmaður sagði starfi sinu lausu í nóv- ember, og í stað hans kom Sæþór Skarphéðinsson, sem byrjaði í desember. Gísli Tómas- son háloftaathugunarmaður lét af því starfi í október. Þórður Guðmundsson var ráðinn varðstjóri háloftaathugunarmanna í júni. Eyjólfur Þorbjörnsson veðurfræðinemi vann aðstoðarstörf í sumarfríum. VeÖurfarsdeílcL og áhaldadeild. Þórir Sigurðsson lauk embættisprófi í veðurfræði við háskólann í Osló í desember 1958 og vann árið 1959 að hálfu í áhaldadeild og að hálfu í veðurfarsdeild. Þorsteinn Ársælsson áhaldasmiður var ráðinn til reynslu í áhaldadeild í september, þegar heimilað hafði verið að ráða mann til þeirra starfa. JaröeÖUsfræöideild. Dagur Tryggvason vann aðstoðarstörf í deildinni frá miðjum maí til septemberloka. Skrifstofan. Helga Karlsdóttir bókari hætti í nóvember. Gisli Tómasson, sem áður hafði unnið að háloftaathugunum, tók við bókarastarfinu. Veðurstöðvar. Athugunarmenn. Valgerður Pálsdóttir húsfreyja í Haukatungu lézt í febrúar, en hún hafði gegnt mikilvægu flugveðurathugunarstarfi frá því að maður hennar Sigur- bergur Dagfinnsson lézt árið 1954. Dóttir þeirra, Jóhanna, heldur áfram athugunum í Haukatungu. Haraldur Guðmundsson bóndi á Þorvaldsstöðum lézt 1. júní. Hann hafði gert veður- athuganir frá árinu 1951. Allar athuganir hans voru mjög vel gerðar, og tiðarfarsyfirlit hans sérlega vel samin. Þórarinn sonur hans heldur athugunarstarfinu áfram á Þor- valdsstöðum. Sigurður Kristjánsson bóndi á Grímsstöðum andaðist 4. júní og hafði þá gegnt at- hugunarstarfi í 52 ár, eða lengur en nokkur annar maður hér á landi, eins og getið var um í ársyfirliti Veðráttunnar 1957. Aðalbjörg Vilhjálmsdóttir húsfreyja, tengdadóttir Sigurðar, tók við athugunarstarfinu á Grímsstöðum. Séra Jakob Einarsson prófastur á Hofi lét af embætti sinu í september. Hann hafði gert ágætar athuganir á Hofi frá 1946 og tók aldrei þóknun fyrir starf sitt. Hrafnkell Valdimarsson heldur áfram athugunarstarfinu þar. Séra Jóhann Hannesson þjóðgarðsvörður fluttist frá Þingvöllum í júni, og í september tók Páll Valdason verkstjóri við athugunum þar til bráðabirgða. Jón Bjarnason tók aftur við athugunarstarfi í Vík í Mýrdal í júlí. Jón Benediktsson yfirlögregluþjónn á Akureyri lét af því starfi fyrir aldurs sakir í júní og hætti þá jafnframt veðurathugunarstarfi, en hann hafði séð um athuganir á Akur- eyri frá 1943 af mikilli kostgæfni. Gísli Ólafsson yfirlögregluþjónn tók við af Jóni. Garðar Stefánsson tók aftur við flugumferðarstjórn og veðurathugunum á Egils- stöðum í desember. Jónas G. Jónsson kennari á Húsavík hefur athugað þar að vetri til frá haustinu 1958 vegna fjarveru Jóhanns Björnssonar veðurathugunarmanns. Á þessu ári hafa þau hjónin Andrés Eyjólfsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir I Síðu- múla gert þar athuganir í 25 ár. Ennfremur á Helgi Arason bóndi á Fagurhólsmýri 25 (116)

x

Veðráttan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.