Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 02.12.1959, Blaðsíða 22

Veðráttan - 02.12.1959, Blaðsíða 22
Ársyfirlit VEÐRÁTTAN 1959 Sænski leiðangurinn starfaði hér með jarðhitadeild Raforkumálaskrifstofunnar og Veðurstofunni, og tók Eysteinn Tryggvason jarðskjálftafræðingur þátt í framangreindu starfi fyrir hönd Veðurstofunnar. Mælingar á geislavirkum efnum o. fl. 1 byrjun apríl 1959 hófst á Rjúpnahæð söfnun úrkomusýnishorna fyrir atómrann- sóknastöðina í Harweil í Englandi til ákvörðunar á innihaldi úrkomunnar af strontíum 90 og strontíum 89, en það eru geislavirk afbrigði af frumefninu strontíum, og cesíum 137, geislavirku afbrigði frumefnisins cesíum. Eru niðurstöðurnar birtar á öðrum stað i þessu ársyfirliti, ásamt athugunum sömu stofnunar á magni strontíum 90 í úrkomusýnishornum, sem safnað hafði verið fyrir Eðlisfræðistofnun Háskóla Islands á tímabilinu 1. apríl 1958 til 1. apríl 1959. Mælingar á |3-geislandi efnum héldu áfram með sama hætti og áður. Söfnun úrkomusýnishorna til rannsókna á nokkrum öðrum efnum í úrkomunni var einnig haldið áfram, en niðurstöður mælinganna hafa aðeins borizt fyrir fyrri helm- ing ársins. Ýmislegt. Nýtt húsnœöi. I lok aprílmánaðar fékk áhaldadeild nýtt húsnæði fyrir smíðavinnu- stofu í viðbyggingu við vélahús Vélskólans í Reykjavík. Batnaði aðstaða deildarinnar mjög við það. 1 sama húsi er ætlaður staður fyrir meginhluta bóka- og skjalasafns Veð- urstofunnar, og þar er einnig ráðgert að koma upp rannsóknarstofu til prófunar veður- athugunaráhalda. Húsnæði þetta varð ekki fullgert á árinu, en vinna við trésmiðar og viðgerðir hófst þar þó í maímánuði, og vinna við smíði áhalda i september. Skýrslur um jaröskjálfta, sem mældust á mæla Veðurstofunnar á árinu, verða að þessu sinni ekki birtar í ársyfirlitinu, þar sem deildarstjóri jarðeðlisfræðideildar hefur sökum anna og fjarveru ekki getað fullunnið þær. HitastuÖullinn cx, y100 C°, fyrir Mýrar í Álftaveri: Jan. Febr. Marz April Maí Júní Júlí Ágúst Sept. Okt. Nóv. Des. 00 15 25 20 -05 -15 -10 05 30 20 10 00 Raforkumálaskrifstofan hefur heimilað Veðurstofunni að birta niðurstöður úrkomu- og snjómælinga vatnamælingadeildar þeirrar stofnunar, og birtast fyrstu tölurnar um þessar mælingar á bls. 110. Jarðeðlisfræðisamvinnan. Um áramót 1958—1959 lauk því tímabili, sem nefnt hefur verið hið alþjóðlega jarð- eðlisfræðiár. Hins vegar hafði þá verið ákveðið á alþjóðavettvangi að halda miklu af því starfi, sem hófst á jarðeðlisfræðiárinu, áfram um eins árs skeið enn. Var þetta starf nefnt jarðeðlisfræðisamvinnan (International geophysical cooperation). Veðurstofan fékk fjárveitingu til þess að leysa þetta starf af hendi að því leyti, sem óskað var eftir. 1 ársbyrjun var felld niður skýrslugerð um veðurathuganir við yfirborð jarðar á stöðv- unum: Galtarvita, Raufarhöfn, Hólum i Hornafirði og Keflavikurflugvelli, en annars var starfi þvi, sem skýrt er frá í ársyfirlitum 1957 og 1958 haldið áfram, að öðru leyti en þvi, að ozonmælingar féliu niður um mánaðamót október—nóvember. TækniaðstoS. Á þessu ári nutu bæði áhaldadeild og veðurfarsdeild tækniaðstoðar frá Sameinuðu Þjóðunum. Áhöld þau, sem pöntuð höfðu verið fyrir áhaldadeild árið áður, voru flest komin í lok apríl, og var þá tekið til við að koma þeim fyrir í nýrri smiðavinnustofu áhaldadeildar. (118)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.