Veðráttan - 02.12.1988, Qupperneq 35
1988
VEÐRÁTTAN
Ársyfirlit
Alþjóðasamstarf
Fundir: Hlynur Sigtryggsson sótti fund norrænna veðurstofustjóra, fund EUMETSAT og hátíðar-
samkomu í tilefni 150 ára afmælis finnsku veðurstofunnar, en þessar samkomur fóru fram hvor af annarri í
Helsingfors dagana 23.-25.3. Hlynur sótti einnig fund veðurstofustjóra í V. Evrópu í Briissel Ó.-9.4.,
fræðslufund í Ottawa 25.-27.6. um rannsóknir á veðurfari við norðanvert Atlantshaf, og fundi samstarfs-
nefnda á vegum alþjóðasamtaka um veðurbaujur og skeytasendingar frá þeim í New Orleans 18.-21.10.
og árlegan stjórnamefndarfund veðurrannsóknarstöðvar Vestur-Evrópu í Reading 23.-24.11.
Flosi Hrafn Sigurðsson sótti fund COST-43 í Madrid 28.-29.6., fund varðandi hagkvæmni veðurathug-
unaraðferða á Norður-Atlantshafi (OWSE-NA), fund stjórnarnefndar NAOS í Genf 22.-26.8. og að
síðustu lokafundi COST-43 og fyrsta fund samtaka European Group on Ocean Stations EGOS, sem taka
við stjórnun baujumála af COST-43. Þessir síðastnefndu fundir voru haldnir í Brussel 29.11.-1.12.
Markús Á. Einarsson sótti fund í því tækniráði Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar, sem fjallar um
veðurathuganir og fjarskipti þeirra vegna, haldinn í Genf 25.1.-5.2.
Magnús Már Magnússon sótti ráðstefnu alþjóðajöklarannsóknarfélagsins í Noregi 4.-9.9. og kynnti sér
síðan vamarmannvirki á snjóflóðasvæðum dagana 10.-13.9.
Páll Halldórsson sótti fund norrænna jarðskjálftafræðinga í Osló 4.-6.10. og hélt þar erindi um aðferðir
útreikninga á jarðskjálftahættu á fslandi.
Ragnar Stefánsson sat fund norrænna jarðskjálftafræðinga 12.-14.1., fund í framkvæmdanefnd jarð-
skjálftastöðva á Suðurlandsundirlendi (SIL) og fundi með fulltrúum norrænu ráðherranefndarinnar
15.-17.1. Allir fundirnir voru í Kaupmannahöfn, þá sótti hann annan fund famkvæmdarnefndar SIL í
Khöfn 10.-13.7. Hann sat ennfremur fund norrænna jarðskjálftafræðingaí Osló4.-6.10. ogfund stjórnar-
nefnda SIL 6.-7.10.
Steinunn Jakobsdóttir sótti einnig fundina í Oslo 4.-7.10. Bæði hún og Ragnar fluttu erindi á SIL
fundinum.
Dr. Þór Jakobsson tók þátt í ráðstefnu í Leningrad 10.-18.12. um norðurheimskautssvæðið og sam-
ræmingu rannsókna aðliggjandi þjóða á því. Hann flutti þar erindi.
Þórir Sigurðsson kynnti sér notkun gervitungla fyrir veðurreiknaðar spár í Reading 5.-9.9. og sat þar
fund í tækninefnd Evrópumiðstöðvarinnar fyrir meðaldrægar veðurspár 14.-16.9. Einnig sat hann fund
um veðurspálíkön (HIRLAM) í Khöfn 12.-13.9.
Samvinna um veðurdufl: Fram var haldið þátttöku í samstarfi Evrópuríkja um notkun veðurdufla til
veður- og haffræðilegra athugana á N-Atlantshafi. Tólf rekdufl til veðurathugana voru sjósett frá íslensk-
um skipum á árinu á leið þeirra frá íslandi til Norður-Ameríku. Fram var og haldið samstarfi bresku og
íslensku veðurstofanna um rekstur sjálfvirks veðurdufls, sem liggur við stjóra um 200 sjómílur SSA af
Homafirði.
Leiðréttingar
Aprílbls. 28. Hólar í Dýrafirði, lágmark— lægst— 13.8. þ. 12. (-50.8 þ. 16. var áður prentað). f töflunni
„bjart sólskin“ á Höskuldarnes að verða Sigurðarstaðir mánuðina október, nóvember og desember.
Sólskinsmælingar á Akureyri voru óreglulegar mánuðina september — desember.
(131)