Veðráttan - 02.12.1989, Síða 1
ISSN 0258-3836
VEÐRÁTTAN 1989
ÁRSYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
Tíðarfarsyfirlit
Að undanskildu haustinu var tíðarfar lengst af fremur óhagstætt. Fyrstu mánuði
ársins var mjög umhleypinga- og úrkomusamt. Víða var metúrkoma og óvenju mikiil
snjór hélst langt fram eftir vori. Júlí var fádæma sólarlítill suðvestanlands.
Loftvægi var 5,lmb undir meðallagi, frá 4,4mb í Vm að 5,6mb á Dt. Meðalloft-
vægi hefur aldrei orðið jafn lágt í Stykkishólmi frá því að mælingar á loftþrýstingi
hófust þar 1845. Hæst stóð loftvog á Hbv þ. 21. apríl kl. 18-24,1044,9mb, en lægst í
Vm þ. 24. desember kl. 22, 927,5mb og er það lægsta loftvægi sem mælst hefur á
landinu frá 1933, en þá mældust 923,9mb í Vm.
Hiti var 0,7° undir meðallagi. Kaldast að tiltölu var á Hbv, en þar var hiti 1,3°
undir meðallagi, en hlýjast að tiltölu á nokkrum stöðvum austanlands, 0,2° undir
meðallagi. Árssveifla hitans, þ.e. munurinn á kaldasta og hlýjasta mánuði, var
minnst í Vm, 9,9°, en mest í Rkhl, 18,0°. Hámarkshiti ársins mældist á Vpn 23. júlí,
24,6°, en mest frost mældist á Grímsstöðum þ. 20. desember, -25,8°.
Úrkoma var yfir meðallagi um meginhluta landsins. Á Vestfjörðum og sums stað-
ar vestan- og norðvestanlands náði hún þó ekki meðallagi. Óvenju úrkomusamt var
víða norðaustanlands og sums staðar á Héraði.
Mest ársúrkoma mældist á Kvsk, 3930mm, næstmest í Snb, 2842mm og 2840mm
mældust á Nsjv. Á 4 stöðvum öðrum mældist úrkoma yfir 2000mm og á 13 stöðvum
1600-2000mm. Minnst mældist ársúrkoma á Grst, 398mm. Á 16 stöðvum mældist
úrkoman 400-600mm.
Mest sólarhringsúrkoma mældist á Kvsk þ. 2. desember, 173,3mm. Sólarhringsúr-
koma mældist 4 sinnum yfir lOOmm, en 94 sinnum yfir 50mm.
Sólskinsstundir voru 5% færri en í meðalári í Rvk, en 6% yfir því í Hól. Sólskin var
29% þess tíma sem sól var á lofti í Rvk, 35% á Hlst, 32% í Hól, 29% á Hvrv og28% á
Smst.
Veturinn (desember 1988 - mars 1989) var óhagstæður. Umhleypingar voru lengst
af og snjóþyngsli mikil, einkum er á leið.
Hiti var 1,1° undir meðallagi. Hlýjast var í Vík, 1,2° að meðaltali, en -6,7° á Hvrv.
Meðalhiti var ofan við frostmark á 8 stöðvum, en meir en 2° frost var á 42 stöðvum.
Úrkoma var mikil víðast hvar, jafnvel meir en þreföld meðalúrkoma (á Rfh,Hvk
og Mýri). Á Gltv mældust 2/3 hlutar meðalúrkomu, en 3/4 hlutar í Æðey. Mest úr-
koma mældist á Kvsk, 1479mm, en minnst í Mðrd, 107mm.
Vorið (apríl og maí) var mjög úrkomusamt og snjóa leysti óvenju seint.
Hiti var 1,2° undir meðallagi. Hlýjast var í Vík, 4,6°, en kaldast -2,7° á Hvrv.
Meðalhiti var undir frostmarki á 3 stöðvum, en á 41 stöð var hann yfir 2°.
Úrkoma var undir meðallagi á Gltv, Hbv og Sg, en meir en þreföld meðalúrkoma
mældist á Lrb og Frst. Vorúrkoman mældist mest á Kvsk, 870mm, en minnst á Mýri,
44mm.
Sólskinsstundir mældust flestar í Rvk, 381, en 235 á Sgst. Að tiltölu mældust sól-
skinsstundir flestar á Hvrv, 12% umfram meðallag, en fæstar á Hlst, 97% af meðai-
lagi. Sólskin mældist 36-41% af þeim tíma sem sól var á lofti.
Sumarið (júní-september) var víðast óhagstætt, góðir kaflar komu helst austan-
lands í júní, júlí og september, suðvestanlands í ágúst og norðvestanlands í júní. Júlí
var fádæma drungalegur suðvestanlands.
(97)