Veðráttan - 02.12.1989, Síða 36
Ársyfirlit
VEÐRÁTTAN
1989
Frá strandarstöðvum Póst- og símamálastofnunar var útvarpað almennu yfirliti, stormað-
vörunum og spám fyrir þau spásvæði sem næst eru hverri stöð, sem hér segir: Að næturlagi var
útvarpað frá Isafirði, Neskaupstað og Vestmannaeyjum kl.0133 og 0503, en frá Siglufirði og
Hornafirði þrem mínútum síðar í báðum tilvikum. Áð degi til var útvarpað frá Neskaupstað
kl. 1045 og 2245 og hverju sinni þrem mínútum síðar frá Siglufirði og Hornafirði. Útvarpað var
á aðalvinnutíðnum stöðvanna að undangengnu tilkynningakalli á 2182 kílóriðum.
Veðurspáfyrir miðin var lesin á ensku kl. 0533,1133,1733 og 2333 átíðni 1876 kílóriðum
að undangenginni tilkynningu á 2182 kílóriðum.
Auk þessara veðurfrétta var veðurspám fyrir miðin útvarpað á íslensku og ensku í loft-
skeytalykli kl.0530, 1130, 1730 og 2330.
Vegna verkfalls Félags íslenskra náttúrufræðinga 6. apríl-18. maí féllu allar almennar
veðurspár niður. Viðvörun var þó gefin væri gert ráð fyrir stormi. Lestur veðurlýsinga frá
einstökum veðurstöðvum og skipum var þó með reglulegum hætti.
Veðurfréttir birtust í sjónvarpi alla daga, nema verkfallsdagana 6. apríl-18. maí. Drög að
spákorti fyrir ísland voru daglega gerð fyrir sjónvarpsstöðina Stöð 2. Svipuð drög voru
reglulega gerð fyrir tvö dagblöð, DV og Morgunblaðið, og frá miðju ári einnig fyrir Þjóðvilj-
ann hvað varðar veðurhorfur um helgar.
Útgáfustarfsemi, greinar og fyrirlestrar
Veðráttan: Gefin voru út mánaðarblöð frá júlí 1988 til ágúst 1989 ásamt ársyfirliti 1988.
Jarðskjálftaskýrslur: Haldið var áfram útgáfu mánaðaryfirlita jarðskjálfta í samvinnu við
Raunvísindastofnun Háskólans. í yfirlitum þessum er getið um upphafstíma, staðsetningu og
stærð þeirra skjálfta hér á landi, sem eru 2.0 stig á Richterkvarða eða stærri. Sem fyrr voru
Skjálftabréf gefin út í samvinnu við Raunvísindastofnun. Preliminary Seismogram Readings
var gefið út vikulega.
Gefið var út ritið „Hitafar á íslandi á þessari öld“ eftir Markús Á. Einarsson.
Gefið var út ritið „The SIL-project — the second general report". Ragnar Stefánsson er
einn þriggja höfunda ritsins.
Á ráðstefnu Jarðfræðafélags íslands 4. apríl flutti Ragnar Stefánsson erindið „Suðurlands-
skjálftabeltið og jarðskorpa Islands.“ Á sömu ráðstefnu flutti Steinunn Jakobsdóttir erindið
„í slands-Grænlandshryggurinn. “
Á ráðstefnu norrænna jarðskjálftafræðinga í Svíþjóð 26.-28. september flutti Ragnar Stef-
ánsson erindið „SIL - research plan“. í>á flutti Steinunn Jakobsdóttir erindið „Results of
noise- and earthquake measurements obtained in the SIL-area.“
(132)