Veðráttan - 02.12.1989, Síða 37
Ársyfirlit
VEÐRÁTTAN
1989
Alþjóðasamstarf
Hlynur Sigtryggsson sótti nítjánda fund veðurstofustjóra í Vestur - Evrópu, Dublin 25. -
27. apríl, og stjórnafund Evrópumiðstöðvar fyrir meðaldrægar spár, Reading 3. - 4. maí.
Ennfremur sat hann fund veðurstofustjóra á Norðurlöndunum, Visby á Gotlandi dagana
30. ágúst - 1. sept.
Páll Bergþórsson sótti stjórnarfund Evrópumiðstöðvar fyrir meðaldrægar spár, Reading
28. - 30. nóv.
Borgþór H. Jónsson sat ráðstefnu un nýjungar á sviði veðurfræði, Reading Englandi 31.
júlí - 12. ágúst.
Flosi Hrafn Sigurðsson tók þátt í samstarfsfundi V-Evrópuþjóða um veðurdufl á Atlands-
hafi 20. og 21. júní, en ræddi einnig við G. Clift ráðgjafa Veðurstofunnar um veðursjá á
Miðnesheiði, og skoðaði með honum veðursjá í Chenies við London og móttökutæki í Be-
aufort Park. Dagana 28. - 30. ágúst sat Flosi 14. fund stjórnarnefndar NAOS í Genf. Dag-
ana 31. ágúst - 2. sept. tók hann þátt í fundi CONA-V í Genf, og 6. og 7. des. sat hann fundi
stjórnar- og tækninefndar EGOS í París.
Gunnlaugur Kristjánsson sat málþing í Boston um rekstur tölvuneta 14. -17. maí og sótti
ráðstefnu og aðalfund samtaka notenda tölvubúnaðar frá DEC f Evrópu 17. - 24. sept.
Magnús Már Magnússon var við nám í skóla bresku veðurstofunnar frá miðjum septemb-
er og út árið.
Páll Halldórsson sótti ráðstefnu TECIMO í Brussel 4. - 8. sept. og sat fund CIMO í Brus-
sel 11. - 22. sept. Einnig fór hann á ráðstefnu um jarðskjálfta og mat á jarðskjálftahættu í
Bechyne í Tékkóslóvakíu 4. - 9. sept. og til San Francisco dagana 23. - 31. okt. fó hann til
að kanna áhrif jarðskjálfta, sem varð þar f nágreninu þann 17. okt.
Ragnar Stefánsson sótti ráðstefnu Alþjóðasambands jarðskjálftafræðinga IASPEI í Is-
tanbul dagana 21. - 29. ágúst. Hann sótti einnig ráðstefnu norrænna jarðskjálftafræðinga í
Sunne í Svíþjóð 26. - 28. sept. og fundi í framkvæmdanefnd og stjórnarnefnd SIL-verkefni-
sins þann 25. - 28. sept. Þá fór hann á ráðstefnu AGU í San Francisco 4. - 8.des., þar sem
komu m. a. fram upplýsingar um reynsluna af jarðskjálftunum 17. okt. 1989. Þá var farin
3ja daga ferð á sjálft jarðskjálftasvæðið og heimsóttar stofnanir sem fást við að mæla jarð-
skjálftaforboða.
Steinunn S. Jakobsdóttir sótti ráðstefnu norrænna jarðskjálftafræðinga í Sunne í Svíþjóð
26. - 28. sept og fundi í framkvæmdanefnd og stjórnarnefnd SIL-verkefnisins þann 25. - 28.
sept.
Trausti Jónsson sat ráðstefnu WMO um loftslag og vatn 11. - 15. sept. og fundi í sam-
starfsnefnd um vatnafræði á Norðurlöndum. Báðir fundirnir voru haldnir í Helsinki. Hann
sat einnig fundi í norrænni vinnunefnd um norræna vatnafræðiáætlun 1989-1990, dagana 30.
okt. - 1. nóv. í Ósló.
Unnur Ólafsdóttir sótti fund hjá Evrópumiðstöðinni um meðaldrægar veðurspár í Read-
ing 4. - 8. sept.
Dr. Þór Jakopsson sótti ráðstefnu um nýjungar á sviði veðurfræði í Reading dagana 6. -
13. ágúst.
Þórir Sigurðsson sat fundi forstöðumanna tölvudeilda norrænu veðurstofanna í Kaup-
mannahöfn 23. janúar og einnig 28. ágúst í Ósló. Þá sat hann einnig ráðstefnu um tölvuspár
28. - 31. ágúst í Osló.
Viðaukar
Ársyfirlit 1988: Útgáfustarfsemi o.fl. bls. 128: Grein birtist í Tectonophysics eftir Ragnui
Stefánsson og Pál Halldórssn. Heiti hennar er „Strain release and strain build-up in the south
Iceland seismic zone.“
(133)