Vísbending - 10.08.1983, Page 3
VÍSBENDING
-----5----
fellingar, en þess á milli mismun-
andi hrattgengissig, og þáýmist
„stýrt" eftir meöalgengi eða
dollara. Viö gjaldeyrisstýringu
fyrirtækja er lögö megináhersla
á að draga úr þeirri óumflýjan-
legu áhættu, sem felst í erlend-
um viöskiptum vegna gengis-
breytinga. Þaö verður ekki sagt
aö stjórnvöld á íslandi hafi auð-
veldaö fyrirtækjum hér aö firra
sig gengisáhættu með þeirri
gengisstjórn sem fram kemur í
breytingum meöalgengis eöa
breytingum raungengis krón-
unnar (sjá línurit yfir vísitölu
raungengis krónunnar 1980 til
1983 í Vísbendingu 27. júlí s.l.).
Jafnari breytingar æskilegar.
Ekki verður um það deilt, aö
meðan verðbólgan hér á landi er
mörgum prósentutugum hærri
en í viðskiptalöndunum veröur
aö lækka gengi krónunnar á ári
hverju nokkurn veginn sem
nemurjmismuninum á|verðbólgu-
hraðanum hér á landi og í við-
skiptalöndunum. Miklu skiptir aö
þessi lækkun sé sem jöfnust og
meö sem minnstri óvissu til að
auðvelda áætlanagerð í við-
skiptalífinu. Vel kemur til greina
að setja raunhæf markmið um
gengisstjórn til þriggja eða sex
mánáða, til dæmis 3-4% sig á
mánuði við núverandi aðstæður,
og greina síðan frá þessari
stefnu í gengismálum og standa
við hana. Pað verður aldrei hægt
að losna við alla áhættu í erlend-
um viðskiptum, en eitt af því
erfiðasta sem íslensk fyrirtæki
þurfa að glíma við er hinn skrikkj-
ótti ferill íslensku krónunnar
miðað við aðrar myntir.
Medalgengi, raungengi,
verð á erlendum gjaldeyri.
I skrifum um gengismál koma fyrir
ýmis hugtök, sem ekki er úr vegi
að skýra. Ensku heitin eru látin
fljóta með þeim íslensku til sam-
anburðar.
Nafngengi eða skráð gengi (nomi-
nal rate) er skráð gengi milli
tveggja gjaldmiðla á ákveðnum
tíma, t.d. jafngilda kr. 27,95 einum
US dollara 2. ágúst 1983. Á ís-
lensku er síðan talað um meðal-
gengi í amk. tvennum skilningi.
Meðalgengi dollara í apríl var t.d.
kr. 21,39 og á við beint meðaltal á
gengi dollara þá daga sem hann
var skráður í apríl (average rate).
Hins vegar er talað um meðal-
gengi krónunnar, nánar tiltekið
vísitölu meðalgengis. Vísitala
meðalgengis I apríl til dæmis er
reiknuð með því að vega saman
gengi allra mynta, sem íslenska
krónan er skráð í, þ.e. meðal-
gengi allra gjaldmiðla í krónum í
apríl er vegið saman. í Hagtölum
mánaðarins eru birtar vísitölur
meðalgengis krónunnar, þarsem
annars vegar er „vegið með hlut-
deild einstakra landa I inn- og út-
flutningi og hins vegar með hlut-
deild einstakra gjaldmiðla í gjald-
eyrisviðskiptum". Þá er einnig
sýnt meðaltal beggja. Á ensku
nefnist vísitala meðalgengis „ef-
fective rate“, nánar tiltekið
„nominal effective rate", þarsem
um er að ræða meðaltöl nafn-
gengis.
Augljóst er að breytingar á gengi
tveggja gjaldmiðla ráðast að miklu
leyti af verðbólgu í báðum löndum
þegar til lengri tíma er litið. Raun-
gengi, eða vísitala raungengis, er
sú stærð kölluð sem fæst með
því að taka fullt tillit til mismunandi
verðbólguhraða milli landa. Ef
verðbólga á íslandi er um 30% og
verðbólga í viðskiptalöndunum er
5% að meðaltali þá nægir um
25% lækkun á meðalgengi (ef-
fective rate) til að raungengi (real
effective rate) haldist stöðugt, en
það merkir, að verðhækkanir á
innlendum og innfluttum vörum
haldast nokkurn veginn I hendur.
Útaf fyrir sig er hægt að reikna
raungengi einnar myntar, t.d.
raungengi dollara, eftir meðal-
gengi á dollara og mismunandi
verðbólguhraða hér á landi og í
Bandaríkjunum, en venjulega er
átt við meðalgengi allra mynta
(effective rate) að teknu tilliti til
mismunandi verðbólgu, þegar
talað er um raungengi (real effect-
ive rate).
Það bætir ekki úr, þegar talað er
um gengi, að ýmist er átt við verð
á krónum í dollurum, svo að dæmi
sé tekið, eða verð á dollurum í
krónum. Þegar gengi krónunnar
er lækkað, lækkar verð á krónum
I dollurum, en verð á dollurum I
krónum hækkar. Þann 27. maí s.l.
var gengi krónunnar lækkað um
14.6% að meðaltali gagnvart
öðrum gjaldmiðlum. Verð á
erlendum gjaldeyri hækkaói þá að
meðaltali um 17,1%. Verð á er-
lendum gjaldeyri er því „1/
gengi“, og síðan er hægt að tala
um meðalverð á erlendum gjald-
eyri og raunverð á erlendum
gjaldeyri, sem er þá andhverfan af
meðalgengi og raungengi.
Gengi nokkurra gjaldmiðla.
1983 1982
III IV I s 0 N n j
1.73 1.65 1.53 1.71 1.70 1.63 1.62 1.57
8.65 8.80 8.53 8.79 8.91 8.96 8.92 8.41
13.18 15.89 19.41 14.45 15.16 16.07 16.42 18.44
6.64 7.15 7.11 6.89 7.17 7.24 7.03 7.04
6.16 7.34 7.41 6.22 7.15 7.51 7.35 7.32
6.94 7.07 6.89 7.06 7.15 7.21 6.85 6.77
2.11 2.14 2.02 2.14 2.17 2.20 2.05 1.97
2.73 2.74 2.66 2.74 2.76 2.79 2.67 2.63
2.48 2.50 2.41 2.50 2.53 2.61 2.42 2.39
259 260 236 263 271 265 243 233
1983
F M A 31.5. 30.6. 29.7. 2.8. 8.S
1.53 1.49 1.54 1.61 1.53 1.52 1.51 1 47
8.57 8.62 8.65 9.03 9.16 9.51 9.57 9 71
19.18 20.63 21.39 27.10 27.45 27.85 27.95 28 22
7.11 7.17 7.14 7.14 7.31 7.38 7.44 7 52
7.43 7.48 7.48 7.54 7.65 7.74 7.78 7 90
6.88 7.01 7.32 7.56 7.65 7.94 8.01 8 13
2.02 2.06 2.06 2.09 2.11 2.13 2.14 2 19
2.68 2.68 2.75 2.83 2.86 2.95 2.98 3 02
2.43 2.41 2.44 2.52 2.55 2.64 2.66 2 70
236 238 238 239 240 242 242 245