Vísbending - 31.08.1983, Qupperneq 3
VISBENDING
3
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
Raungengi og gengi dollarans
1982-1984. kr
40,
Útlán bankakerfisins eru ekki al-
gildur mælikvarði á stjórn peninga-
mála. Áður hefur verið fjallað um
grunnfé, peningamagn og peninga-
útstreymi (Vísbending 3.1 og 6.1).
Geislinn á myndinni hér sýnir þau
mörk útlánaaukningar sem fylgja
þyrfti til að útlán vinni ekki gegn
þeirri verðbólguhjöðnun, sem fram
kemur í töflunni. í lánum banka-
kerfisins kemur fram sá hluti
erlendra lána, sem er endurlánaður
innanlands, en ekki hinn hlutinn,
sem er ráðstafað beint í útlöndum
án skráningar i islenska peninga-
kerflnu.
Raungengi fer mjög hækkandi á
seinni hluta árs 1983 en reiknað er
með fremur jöfnu gengissigi á
næsta ári til að halda raungengi
sem stöðugustu. Gert er ráð fyrir
nokkrum bata í viðskiptakjörum
milli áranna 1983 og 1984.
Raungengi getur þó aðeins haldist
eins hátt og hér greinir, án þess að
spilla vonum um jöfnuð í viðskipt-
um við útlönd, ef ítrasta aðhalds er
gætt í útlánum bankanna og er-
lendum lántökum. Jafnframt þurfa
raunvextir að vera háir að meðaltali
(3-6%), og ekki lægri en f við-
skiptalöndunum, og kaupmáttar-
stig lágt.
Kaupmáttur launataxta er í spánni
svipaður á árinu 1984 að meðaltali
og í ágúst í ár. Við þær aðstæður i
kauplags- og verðlagsmálum, sem
rikja í upphafi næsta árs ber brýna
nauðsyn til að fara gætilega i kjara-
samningum. Ef launahækkanir
verða miklar á skömmum tima,
glatast árangurinn af þeim fórnum
í kaupmætti, sem þegar hafa verið
færðar. Sams konar aðhald verða
stjórnvöld að sýna f rikisfjármálum
og peningamálum til að varanleg
lækkun verðbólgu takist.
er reiknuð eftir, verða að meðal-
tali 30 daga gamlar.
Samkvæmt reiknireglum, sem
gilt hafa til þessa, eru verðmæl-
ingar 50 daga gamlar að meðal-
tali, þegar ný lánskjaravísitala
tekur gildi. Ef ekki er tekið tillit til
þessa mismunar, 20 daga að
meðaltali, þegar vísitölurnar eru
tengdar, verður „yngda“ vísital-
an alltaf lægri en hin fyrri, og
munar þar 20 daga verðbótum.
í töflunni er sýnt hvernig vísitöl-
urnar þróast miðað við að 20
daga verðbæturnar verði látnar
falla niður óbættar. Virðist mega
ráða af fréttum, að sú sé ætlun
stjórnvalda. Ýmsir telja þó, að
óhugsandi sé að breyta reikni-
reglunum (yngja) nema fullt tillit
sé tekið til 20 daga mismunarins
við tengingu vísitalnanna. Sá
möguleiki er þó fyrir hendi að
jafna 20 daga verðbótamuninum
á fáeina mánuði, og yrðu þá vísi-
tölurnar, sú gamla og hin nýja, að
mestu samferða eftir það.
1984
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst sept okt nóv des
407 412 415 426 438 452 468 485 503 515 533 553
1,2 1,2 0,7 2,7 2,8 3,2 3,5 3,6 3,7 2,4 3,5 3,8
5,9 4,3 3,6 4,7 6,3 8,7 9,8 10,8 11,5 10,1 10,0 9,8
76 70 55 49 46 37 34 34 33 34 35 38
2369 2489 2734 3010
1,6.
3,6 5,1 9,8 10,1
60 40 32 32
871 884 1,6 6,5 73 896 911 934 949 980 1012 1048 1082 1119 1153
1,2 1,3 1,6 2,6 1,6 3,2 3,3 3,6 3,2 3,5 3,1
7,3 4,1 4,5 5,6 5,9 7,6 8,4 10,4 10,4 10,6 10,1
78 67 60 54 45 42 39 33 33 35 34
834 845 854 868 891 918 947 981 1019 1051 1081 1121
1,6 1,4 1,1 1,6 2,7 2,9 3,2 3,6 3,8 3,3 2,8 3,7
6,3 5,3 4,1 4,2 5,4 7,4 9,1 10,1 11,0 11,0 10,2 10,1
33 32 35 37