Vísbending - 07.09.1983, Síða 1
VISBENDING
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL
8.1. 7. SEPTEMBER 1983
Hagvöxtur í Bandaríkjunum 9.2% á öðrum ársfjórðungi:
Hærri raunvextir en sögur fara af virðast ekki draga úr hagvexti.
Kenningar þjóðhagfræðinnar
þverbrotnar.
Sé litið á bandarískar hagstærðir
á fyrri hluta þessa árs sést að
ýmsar kenningar þjóðhagfræð-
innar virðast orðnar haldlitlar.
Viðskiptahallinn er gífurlegur,
verður ef til vill um 30 milljarðar
dollara í ár. Dollarinn hefur samt
hækkað og hækkað og meðal-
gengi eftir viðskiptavog er nú
svipað og á dögum Bretton
Woods gjaldeyriskerfisins.
Raunvextir hafa aldrei verið
hærri en verðmætaráðstöfun
heimilanna (fjárfesting og einka-
neysla) óx um 5% m.v. heilt ár á
fyrri hluta ársins.
Kröftug aukning á hagvexti.
Hagvöxtur á öðrum ársfjórðungi
(þ.e. framleiðsluaukning m.v.
heilt ár) var 9,2% og þykir gefa til
kynna að uppsveiflan eftir sam-
dráttarskeiðið 1981 til 1982 verði
svipuð og fyrri reynsla af sama
skeiði í hagsveiflunni. Sé tekið
meðaltal af fyrri hluta af hag-
sveiflum á árunum eftir stríð,
kemur í Ijós, að hagvöxtur hefur
verið 8% á fyrsta ári uppsveiflu
og 4% á öðru ári. Það sem er
frábrugðið núna eru vextirnir.
Áður fyrr var peningamálum í
Bandaríkjunum stjórnað að hluta
með því að takmarka heildarút-
lán, en án þess að hækka vexti úr
hófi. Á dögum Carter-stjórnar-
innar var byrjað að auka frelsi á
peningamarkaði í Bandaríkjun-
um. Vextir og verðbólga tóku að
hækka og náðu hámarki árin
1979 og 1980. Núnaráðastvext-
ir á frjálsum markaði og bankar
eiga í samkeppni um sparifé.
Vegna þessarar breytingar á
vaxtamyndun er ekki gott að
bera saman vexti nú og í fyrri
uppsveiflum. Háir raunvextir (5-
7%) virðast ekki draga úr
hagvexti nú, þótt þeir hefðu að
öllum líkindum hamlað á móti í
fyrri uppsveiflum.
Skýring að hluta í skattalögum.
Samanburður á áhrifum hárra
raunvaxta á fjárfestingu í hinum
ýmsu löndum er varasamur af
því að í Bandaríkjunum eru vext-
ir frádráttarbærir til skatts, án til-
lits til fjárhæðar, en svo rúmum
ákvæðum í vaxtameðferð í
skattalögum mun ekki til að
dreifa annars staðar f „stóru"
löndunum. í Bandaríkjunum
mun vaxtafrádráttur vegna hús-
byggingalána og venjulegra
neyslulána vera algeng aðferð til
lækkunar á sköttum, og því
vaxtabyrði ekki eins þung og
vaxtaprósentur gætu gefið til
kynna.
Þannig hefur aukið frelsi í banka-
viðskiptum orðið til þess að vext-
ir hafa heldur hækkað og stuðla
þannig að fjárstreymi til Banda-
ríkjanna. Skattalögin eru hins
vegar ekki þannig sniðin að þau
ýti undir sparnað í landinu.
Þá má einnig benda á að Euro-
dollaralánamarkaðurinn mynd-
aðist löngu fyrir þann tíma er
frelsi var aukið á fjármagnsmark-
aði í Bandaríkjunum. Vaxta-
hækkunin, sem af því hlaust,
kemur vegna skattalaganna
miklu þyngra niður á útlending-
um, sem tekið hafa lán í dollur-
um, heldur en Bandaríkjamönn-
um sjálfum.
Raunvextir eru þó svo háir um
þessar mundir í Bandaríkjunum
að það vekur ugg. Einkum þykja
horfur í vaxtamálum benda til
hækkunar þegar lengra er komið
í hagsveiflunni. Þá kemur að því
að fyrirtæki þurfa að fjárfesta í
nýjum framleiðslutækjum og
atvinnuhúsnæði, en á sama tíma
mun ríkissjóður þurfa á miklu
lánsfé að halda vegna hallans,
sem illa gengur að draga úr. Ekki
er þó búist við verulegri hækkun
vaxta á næstu 9-12 mánuðum. í
ársfjórðungslegri skoðanakönn-
un, sem félag rekstrarhagfræð-
inga í Bandaríkjunum gengst
fyrir meðal félagsmanna sinna,
kemur fram að búist er við að
„prime rate“ verði um 10% í
júní 1984, en er nú um 11%. Að
lokum mætti nefna, að fram
kemur í skoðanakönnuninni að
42% þeirra, sem spurðir voru,
töldu að gengi dollarans muni
lækka eitthvað gagnvart öðrum
myntum fram til áramóta. Könn-
unin mun hafa verið gerð um
miðjan ágústmánuð.
Efni:
Áhrifafháum vöxtum í Bandaríkjunum 1
Gjaldeyrisstýring Verður verðbólgan 30% um 2
áramót? 3
Töflur:
Gengi helstu gjaldmiðla 4
Gengi íslensku krónunnar 4
Ritstj. og áb.m.: Sigurður B. Stefánsson
Utgefandi: Kaupþing hf Húsi Verslunarinnar
Kringlumýri 108Reykjavik Sími: 8 69 88
Öll réttindi áskilin. Rit þetta má ekki afrita með neinum hætti, svo sem með Ijósmyndun, hljóðrit- un, eöa á annan hátt, að hluta eða í heild, án leyfis
útgefanda.
Umbrot og útlitshönnun: Kristján Svansson Setning og prentun: ísafoldarprentsmiðja