Vísbending - 07.09.1983, Qupperneq 3
VÍSBENDING
3
Verðbólgan:
Verður verðbólgan komin niður undir30% um áramót?
Verðbólgan úr 140% í 30%.
Undanfarið hefur margoft komið
fram, bæði hjá stjórnmálamönn-
um og í umfjöllun Pjóðhagsstofn-
unar, að verðbólgan verði komin
niður undir 30% um áramót.
Munurinn á milli 140% verðbólgu
um áramót, sem spáð var „án
efnahagsaðgerða" ríkisstjórnar-
innar, og 30% verðbólgu um ára-
mót, sem spáð var „eftir efna-
hagsaðgerðir" í lok maímánaðar
er þó svo mikill, að ekki er furða
þótt nokkuð beri á vantrú í þessu
sambandi.
Hvernig er verðbólga mæld?
Hagstofa íslands hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnað und-
anfarin ár í febrúar, maí, ágúst og
nóvember. Byggingarvísitalan
hefur verið reiknuð í mars, júní,
september og desember, með
gildistöku 1. apríl, 1. júlí, 1. októ-
ber og 1. janúar. Eftir þessum
mælingum (óriðja hvern mánuð er
hægt að reikna breytingar verð-
lags yfir þrjá mánuði. Framfærslu-
vísitala í ágúst 1983 var til dæmis
362, og 298 í maí og verðhækk-
unin þannig (362/298) = 1,215
eða 21,5%. Vilji menn átta sig á
hver verðbólgan hefði orðið á
fjórum ársfjórðungum, hefði maí
til ágúst hraðinn haldist óbreyttur,
þarf að margfalda töluna 1,215
fjórum sinnum með sjálfri sér,
þ.e. hefja hana í fjórða veldi. Þá
fæst 2,179, og „árshraði" verð-
bólgunnar m.v. verðbreytingar
frá maí til ágúst 1983 er því
117,9%. Niðurstaðan sem fæst
með því að margfalda 21,5% með
fjórum (þ.e. 86%) er því röng
vegna þess að taka verður tillit til
að verðhækkanir á öðrum árs-
fjórðungi bætast ofan á verðlag í
lok þess fyrsta, verðbreytingar í
þriðja ársfjórðungi ofan á verðlag
í lokannars, o.s.frv.
Verðbreytingar frá maí til ágúst
eru því 21,5% á þremur mán-
uðum og 117,9% á ári haldist
þessi hraði óbreyttur f heilt ár.
Framfærsluvísitalan í ágúst 1982
var 179, og raunveruleg breyting
verðlags m.v. framfærsluvísitölu
síðustu fjóra ársfjórðunga er því
(362/179) = 2,022 eða 102,2%.
Mánaðarlegar mælingar framfærslu-
vísitölu og byggingarvísitölu.
Nú hefur verið ákveðið að Hag-
stofa Islands reikni framfærslu-
vísitölu og byggingarvísitölu
mánaðarlega að minnsta kosti til
næstu áramóta. Framfærsluvísi-
talan var mæld í júlí að beiðni
Alþýðusambands Islands (að
vísu mun sú mæling hafa farið
fram síðustu dagana í júní) og
reyndist þá 340. Verðhækkun á
tímabilinu júlí til ágúst er því
(362/340) = 1,0647 eða 6,47%.
Sé talan 1,0647 hafin í tólfta veldi
fæst að verðbólgan í júlí 1983 hafi
verið 112,2% m.v. heilt ár. Láns-
kjaravísitala hefur verið reiknuð
mánaðarlega síðan í júní 1979, og
sést hefur, að blaðamenn hafi
brugðið mánaðarlegum hækk-
unum í tólfta veldi til aö skoðaárs-
hraðann. Slíkir reikningar eru
góðra gjalda verðir til fróðleiks, en
varhugavert er að taka niðurstöð-
una alltof hátíðlega, hvort sem
hún er há eða lág. Þetta stafar af
því að verðbreytingar milli ein-
stakra mánaða eru óstöðugar, og
þegar hafið er í tólfta veldi marg-
faldast frávikin upp.
Verðbólgan um áramótin verður
um 30%.
Á línuritinu eru sýndar tólf mán-
aðabreytingarframfærsluvísitölu,
til dæmis hækkun vísitölunnarfrá
maí 1982 til maí 1983 o.s.frv. Frá
september í ár er um sömu spá að
ræða og lýst var í síðasta tölublaði
Vísbendingar, „miðspá". Á
þessu línuriti er líka sýndur árs-
hraði framfærsluvísitölu, um-
reiknaður eftir þriggja mánaða
breytingum, eins og fyrr var iýst.
Þriggja mánaða hraðinn er miklu
sveiflukenndari, ef svo mætti
segja, heldur en tólf mánaða
hraðinn. í honum koma fyrr fram
aukning verðbólgu og lækkun
hennar. Ef grannt er skoðað,
kemur í Ijós, að verðbólgan mæld
á þennan hátt er einmitt um 30%
um áramótin. Þetta er nánast
verðbreytingin frá októbertil des-
ember reiknuð til árshraða. Tólf
mánaða breyting framfærsluvísi-
tölu í árslok, þ.e. hækkun hennar
frá upphafi til loka ársins, er á hinn
bóginn um 78% eftir þessum
reikningum.
Breytingar framfærsluvísitölu janúar 1983 til mars 1983.
Skýringar. Miðspá hér er sama spáin og birt var í 7. tölublaði.
Þriggja mánaða breytingarnar á linuritinu sýna vel hvernig mælingar yfir skemmri tímabil (t.d.
3 mánuði) eru fljótari að sýna aukningu og lækkun á verðbólgu heldur en mælingar yfir lengri
tfmabil (t.d. 12 mánuði). Væri árshraði reiknaður eftir mánaðarlegum breytingum dreginn á
línuritið kæmi fram mjög óstöðugur ferill.