Vísbending - 09.11.1983, Blaðsíða 1
VISBENDING
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL
17.1 9. NÓVEMBER 1983
Hrávöru- og matvælamarkaður:
Hækkandi verð á matvælum í heiminum
Uppskerubrestur á soyabaunum
og korni
Öllum nema matvælaframleið-
endum finnst hækkandi verð á
matvælum vond tíðindi. Alvar-
legur uppskerubrestur hefur
nú orðið á þeim landbúnaðar-
vörum sem jurtaolíur og fóður-
bætir eru unnar úr. Þessu
veidur uppskerubrestur í
ýmsum löndum, t.d. er búist við
þriðjungi minni uppskeru soya-
bauna í Bandaríkjunum. Þótt
von sé á mikilli soyabaunaupp-
skeru í Brasilíu, sem er næst-
mesti soyabaunaframleiðandi í
heimili, og í Argentínu, er engu
að síður spáð að soyabauna-
framleiðsla í heiminum verði
um 19% minni 1983/84 en hún
var 1982/83. Hærra verð á fóðri
hefur áhrif á kjötverð og síðar
fiskverð, ef að líkum lætur.
Hærra verð á jurtaolíum veldur
verðhækkun á ýmsumvörum,
svosemá þvottaefni og smjör-
líki, svo að dæmi séu tekin
hvort úr sinni áttinni.
Auk þess er kornuppskera nú
minni en í fyrra, þannig að korn,
bæði til manneldis og skepnu-
fóðurs, hefur hækkað í verði.
Uppskera er minni nú en í fyrra,
bæði vegna þurrkana í Banda-
ríkjunum og vegna aðgerða
stjórnvalda þar til að draga úr
framleiðslu meðan birgðir voru
miklar (áður en þurrkarnir
gerðu vart við sig). Allt útlit er
því fyrir að landbúnaðarvörur,
þ.e.a.s. kjöt og mjólkurafurðir,
muni hækka í verði á heims-
markaði á næstunni, þar sem
framleiðslukostnaður vex. En
hærra verð hefði fljótt þau áhrif
að auka framleiðslu aftur, bæði
í Bandaríkjunum og í öðrum
löndum. Þannig er búist við
mjög mikilli uppskeru næsta ár,
sem koma mun í veg fyrir alvar-
legri fæðuskort í heiminum en
nú þegar er, svo framarlega
sem veðurskilyrði til ræktunar
haldast viðunandi.
Af verðhækkunum undanfarið
leiðir að í fátækum ríkjum
verður að draga úr matvæla-
kaupum og mun það leiða til
fæðuskorts á vissum lands-
svæðum.
Áhrif í EBE-löndunum tvíeggjuð
í Efnahagsbandalagslöndunum
eru áhrifin af hækkun matvæla-
verðs í heiminum tvíeggjuð.
Hærra verð á korni og síðar
mjólkurafurðum kemur til með
að lækka útflutningsbætur
Efnahagsbandalagslandanna
vegna landbúnaðarafurða.
Nokkuð skyggir á gleði and-
stæðinga landbúnaðarstefnu
EBE að lægri útflutningsbætur
draga í bili út andstöðunni gegn
landbúnaðarstefnunni og
kynnu að lengja nokkuð lífdaga
þessarar mjög svo umdeildu
stefnu. Hærraverðáþrótíngjöf-
um og jurtaolíum hækkar þó
vöruverð í EBE sem annars
staðar, þar sem landbúnaðar-
stefnan nær ekki til þessara
Framhald á bls. 3.
Efni: Hrávöru- og matvæla- markaður 1
Lánsfjáráætlun 1984 2
Gengisskráning í Ástralíu og mikilvægi framvirks markaðar 4
Töflur:
Gengi helstu gjaldmiðla 4
Gengi íslensku krónunnar 4