Vísbending - 18.01.1984, Blaðsíða 1
VISBENDING 8
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL
3.2 18. JANÚAR 1984
Bandaríkjadollari Áframhaldandi hækkun á dollaragengi
Hæsta og lægsta gengi
1983/84
Eins og kunnugt er at fréttum hefur
gengi dollarans stigið mestallan des-
embermánuð og það sem af er janú-
armánuði. Örlítil lækkun sem fram
kom (lok desember er nú talin hafa
stafa af því að gjaldeyriskaupmenn
voru að jafna bækur sínar fyrir ára-
mótin og jókst þá heldur framboð á
dollurum. Helstu skýringa á stígandi
gengi dollarans hefur þegar verið
getið í Vísbendingu (sjá t.d. 1,2.84;
2-3, 23.83; 1,21.83; 1, 19,83). Hér
er bætt við yfirliti yfir hæsta og lægsta
skráð gengi dollarans gagnvart
helstu myntum 1983 og það sem af
er 1984.
Þýsk mörk. Gengi gagnvart dollara
var á bilinu DM 2,7888 til 2,3320 árið
1983 en lægsta gengi það sem afer
janúar 1984 er 2,8434 (10. janúar).
Meðalgengi í desember s.l. er
2,7465 og meðalgengi á árinu 1983
er 2.5692.
Sterlingspund. Gengi pundsins var á
bilinu $ 1,6245 til 1,4193á síðasta ári
en iægsta gengi pundsins það sem
af er janúar er 1,3932 (10. janúar).
Meðalgengi í desember er 1,4347
og meðalgengi á árinu 1983 er
1,5121.
Svissneskir frankar. Gengi svissn-
eska frankans var á bilinu 2,2122 til
1.9237 á sfðasta ári en lægsta gengi
svissneska frankans það sem af er
janúar er 2,2612 (10. janúar). Með-
algengi í desember er 2,1954
svissneskir frankar í dollara og með-
algengi allt árið í fyrra er 2,1091.
Yen. Gengi yens gagnvart dollara var
á bilinu 232,54 til250,30yen/$ ásíð-
asta ári en lægsta gengi það sem af
er janúar er 234,948 (10. janúar).
Yenið er sá gjaldmiðill sem minnst
hefur fallið gagnvart dollara í dollara-
hækkuninni í desember 1983 og
janúar 1984. Meðalgengi í desember
er 234,30 og meðalgengi allt árið í
fyrra er 237,69 yen/$.
Efni:
Gengi Bandaríkjadollara 1
Verðbólga á íslandi 2
Verðbólga í löndum
Efnahagsbandalagsins 3
Olíuverð 4
Töflur:
Gengi helstu gjaldmiðla 4
Gengi íslensku krónunnar 4
Islenska krónan. Gengi krónunnar á
árinu 1983 var hæst gagnvart dollara
5. janúar, fyrsta dag sem gengi krón-
unnar var skráð á því ári, og var þá
sölugengi dollarans kr. 18,17 en
meðalgengi 1982 var kr. 12,559.
Lægsta gengi krónunnar gagnvart
dollara á síðasta ári varskráð dagana
21. til 27. desember, sölugengi kr.