Vísbending - 07.03.1984, Qupperneq 4
VISBENDING
4
Hvereru markmið í peningamálum 1984?
Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra,
varaði við því í síðustu viku að miklu verr
horfði i rekstri rikissjóðs en áætlað hafði
verið í fjárlögum. Án þess að tölur hafi verið
staðfestar gæti hallinn á rekstri rikissjóðs
orðið 1700-1800 milljónir króna í stað um
400 milljóna króna í fjárlögum. Pessartölur
eru þó ekki nýjar af nálinni og forystumenn
ASÍ og VSl hljóta að hafa haft þær til
hliðsjónar er gengið var frá heildarsam-
komulagi fyrir um það bil hálfum mánuði.
Með hóflegum kjarasamningum hafa
launþegasamtökin lagt þá ábyrgð á herðar
stjórnvalda að þau stefni ekki árangrinum í
verðbólgumálum, sem vissulega hefur að
mestu leyti náðst með því að lögbinda laun,
í hættu með ómarkvissri stjórn peningamála
og fjármála og með meiri vexti peninga-
magns en samrýmst getur 10-15%
verðbólgu. Senn hlýtur að koma að því að
stjórnvöld setji fram markmið um aukningu
peningastærða á árinu eins og gert er I
öðrum löndum. Vöxtur peningastærða I
opnu hagkerfi er vissulega flókið mál og
mikil stökk í breytingum þeirra frá mánuði til
mánaðar geta komið fram. Áhrif peninga á
framleiðslu og verðlag eru einnig háð
verulegri óvissu. Hvorugt þessara atriða
getur þó verið svo gerólíkt því sem gerist
með öðrum þjóðum að réttlætt geti fálæti
íslendinga um vöxt peningastærða og áhrif
þeirra á efnahagsllfið. Taki verðbólgan að
aukast aftur vegna þenslu I peningakerfinu
gæti liðið langur tími uns launþegar öðlast á
ný það traust á ríkisstjórn sinni sem fram
kom í nýgerðum samningum.
Reynsla annarra þjóða sýnir að þegar
verðbólga minnkar snögglega eftir að hafa
varað lengi þá dregur minna úr vexti
peningamagns en úrverðhækkunum. Þetta
gerist vegna þess að peningarnir rýrna
hægar en verðbólgan minnkar og þess
vegna hækkar hlutfall handbærs fjár (seðla
og myntar, og óbundinna bankainnistæðna)
í samanburði við aðrar eignir. M.ö.o.
veltuhraði peninga I umferð minnkar,
gagnstætt við það sem á sér stað þegar
verðbólga er að aukast; þá eykst venjulega
veltuhraðinn vegna þess aö fólk vill hafa
minni peninga handbæra. Þetta fyrirbæri
veldur hins vegar því að mjög er torvelt að
meta áhrif peningastærða á þjóðarbúskap-
inn nú. Þegar veltuhraðinn er að breytast
verður sambandið milli peninga og
framleiðsluverðmætis óstöðugra en ella;
enginn veit hve mikið veltuhraðinn minnkar
né hvenær hann hættir að minnka. Sé stefnt
að 12-15% verðbólgu á árinu mætti
hugsanlega hafa um 30% vöxt peninga-
magns til viðmiðunar, eftir að tekið hefur
verið tillit til minni þjóðarframleiðslu og
breytinga á veltuhraða peninga.
í grein Tórs Einarssonar um skuldir, atvinnu
og hagvöxt á bls. 2 og 3 er dregið í efa að
erlend skuldasöfnun á síðasta áratug hafi
örvað hagvöxt og áhrif erlends lánsfjár á
verðbólgu eru vel kunn. Án þess að
endanlegirreikningarliggifyrirbendir margt
til þess að raunvextir þeir sem þjóðin hefur
greitt vegna erlendra skulda séu allmiklu
hærri en vextir af innlendum sparnaði.
Þegar einnig er haft i huga að vísitala
raunverös á erlendum gjaldeyri hefur
lækkað mjög undanfarna mánuði hníga öll
rök að því að ekki verði hjá þvi komist að
hækkavexti i landinu. Æskilegri vaxtabreyt-
ingu er auðveldast að koma á með því að
stórauka frelsi bankanna til að ákveða eigin
vexti á innlánum og útlánum.
Gengisskráning
Gengi m.v. dollara (nema í efstu línu m.v. pund)
Mars ’83 meðalgengi 30.6. 1983 31.12. 1983 Tollgengi Mars '84 Vikan 27.2.—2.3.'84 5.03.84 M Breytingar í % frá
M Þ M F F Mars '83 30.6.'83 31.12.'83
1 US$/UKpund 1,4921 1,5275 1,4500 1,4652 1,4857 1,4887 1,4828 1,4877 1,4847 -0,50 -2,80 2,39
2 DKR/$ 8,6234 9,1599 9,8450 9,6731 9,5548 9,5538 9,5893 9,4738 9,4537 9,63 3,21 -3,97
3 IKR/$ 20,691 27,530 28,710 29,120 28,950 28,950 29,000 28,880 28,830 39,34 4,72 0,42
4 NKR/$ 7,1806 7,3070 7,6950 7,5747 7,5089 7,5089 7,5297 7,4693 7,4481 3,72 1,93 -3,21
5 SKR/$ 7,4802 7,6500 8,0010 7,8624 7,7961 7,7789 7,7980 7,7441 7,7379 3,45 1,15 -3,29
6 Fr. frankar/$ 6,9956 7,6481 8,3275 8,1289 8,0274 8,0243 8,0524 7,9700 7,9362 13,45 3,77 -4,70
7 Svi. frankar/$ 2,0614 2,1077 2,1787 2,1780 2,1650 2,1642 2,1755 2,1582 2,1250 3,09 0,82 -2,47
8 Holl.flór./$ 2,6778 2,8563 3,0605 2,9787 2,9377 2,9405 2,9353 2,9130 2,9070 8,56 1,78 -5,02
9 DEM/$ 2,4071 2,5473 2,7230 2,6377 2,6034 2,6056 2,6143 2,5825 2,5749 6,97 1,08 -5,44
10 Yen/$ 237,910 238,665 231,906 233,184 233,036 233,280 233,457 233,016 234,201 -5,76 -6,06 -3,32
Gengi islensku krónunnar
1 US$ 20,691 27,530 28,710 28,950 29,120 28,950 28,950 29,000 28,880 28,830 39,34 4,72 0,42
2 UKpund 30,874 42,052 41,630 43,012 42,668 43,012 43,099 43,000 42,966 42,805 38,64 1,79 2,82
3 Kanada$ 16,885 22,443 23,065 23,122 23,243 23,122 23,129 23,210 23,099 23,048 36,50 2,70 -0,07
4 DKR 2,3994 3,0055 2,9162 3,0299 3,0104 3,0299 3,0302 3,0242 3,0484 3,0496 27,10 1,47 4,57
5 NKR 2,8815 2,7676 3,7310 3,8554 3,8444 3,8554 3,8554 3,8514 3,8665 3,8708 34,33 2,74 3,75
6 SKR 2,7661 3,5987 3,5883 3,7134 3,7037 3,7134 3,7216 3,7189 3,7293 3,7258 34,70 3,53 3,83
7 Finnsktmark 3,8133 4,9783 4,9415 5,1453 5,1187 5,1453 5,1384 5,1391 5,1535 5,1732 35,66 3,91 4,69
8 Fr.franki 2,9577 3,5996 3,4476 3,6064 3,5823 3,6064 3,6078 3,6014 3,6236 3,6327 22,82 0,92 5,37
9 Bel.franki 0,4362 0,J152 0,5152 0,5432 0,5393 0,5432 0,5429 0,5421 0,5466 0,5466 25,31 0,72 5,87
10 Svi.franki 10,0374 13,0616 13,1773 13,3718 13,3701 13,3718 13,3768 13,3303 13,3815 13,567t 35,17 3,87 2,96
11 Holl.flórína 7,7270 9,6385 9,3808 9,8548 9,7762 9,8548 9,8453 9,8189 9,9142 9,9174 28,35 2,89 5,72
12 DEM 8,5958 10,8077 10,5435 11,1201 11,0401 11,1201 11,1105 11,0928 11,1830 11,1966 30,26 3,60 6,19
13 Ítölsklíra 0,01450 0,01832 0,01733 0,01788 0,01780 0,01788 0,01787 0,01784 0,01796 0,01796 23,86 -1,97 3,64
14 Aust. sch. 1,2222 1,5427 1,4949 1,6764 1,5652 1,5764 1,5755 1,5739 1,5872 1,5871 29,86 2,88 6,17
15 Port. escudo 0,2184 0,2363 0,2167 0,2206 0,2202 0,2206 0,2208 0,2210 0,2215 0,2216 1,47 -6,22 2,26
16 Sp. peseti 0,1555 0,1898 0,1832 0,1927 0,1923 0,1927 0,1939 0,1933 0,1941 0,1942 24,89 2,32 6,00
17 Jap.yen 0,08697 0,11535 0,12380 0,12423 0,12488 0,12423 0,12410 0,12422 0,12394 0,12859 47,86 11,48 3,87
18 írsktpund 27,989 34,202 32,643 34,175 33,934 34,175 34,175 34,108 34,411 34,374 22,81 0,50 5,30
19 SDR 22,405 29,412 30,024 30,732 30,760 30,732 30,709 30,691 30,746 30,665 36,87 4,26 2,14
Meðalg. IKR, 621.98 828,19 847,01 862,34 863,35 862,34 862,75 863,06 861,18 859,60 38,20 3,79 1,49
Heimild: Seðlabanki Islands.
Fram- Bygg- Láns-
færslu- ingar- kjara-
1983 visitala vísitala vísitala
ágúst .... 362 727
september 365 (2158) 786
október ... 376 2213 797
nóvember . 387 (2278) 821
desember . 392 (2281) 836
1984
janúar .... 394 2298 844
febrúar ... 397 (2303) 850
mars 854
Euro-vextir, 90 daga lán
U.S. dollari ..
Sterlingspund
Dönsk króna .
Þýskt mark ..
Holl. flór ....
Sv. frankar ..
Yen .........
Fr. frankar ..
30.9. '83 30.11/83 16.1/84 27.2’84
9% 91%6 91Vie 101/4
911/16 95/ie 97/l6 9%6
10V6 11% 11% 11%
5% 61/4 57/e 5%8
67l6 65/ie 61/l6 61/e
41/4 41/e 3716 3%
613/16 ’ 6iyie 67i6 674
14% 13 14% 1674
Ritstj. og áb.m.: Sigurður B. Stefánsson Útgefandi: Kaupþing hf Húsi Verslunarinnar Kringlumýri 108Reykjavík Slmi:8 69 88 öll réttindi áskilin. Rit þetta má ekki afrita með neinum hætti, svo sem með Ijósmyndun, hljóðritun, eða á annan hátt, að hluta eða í heild, án leyfis útgefanda. Umbrotog utlitshönnun: Kristján Svansson Setning og prentun: Isafoldarprentsmiðja