Vísbending - 14.03.1984, Page 1
VISBENDING
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL
11.2 14. MARS1984
Þýskaland
Vaxandi framleiðsla og lítil verðbólga
Hagvöxtur
Meö hækkandi gengi marksins á
síðustu vikum beinist athyglin að
þýskum efnahagsmálum. í um mán-
aðargamalli spá þýskra stjórnvalda
er gert ráð fyrir um 2,5 til 3% hag-
vexti í ár og þýski seðlabankinn
hefur nýlega hækkað mat sitt á f ram-
leiðsluaukningu síðasta árs úr 1-
1,2% í 1,5%. Framleiðsluaukningin
frá fjórða ársfjórðungi 1982 til sama
tíma í fyrra er áætluð 3,5%. Fram-
leiðslunýting í desember í fyrra var
sú besta í þrjú ár, 89,7%, en hafði
verið 79% í september og 75% í
desember 1982. Erlendar pantanir
á iðnaðarvörum jukust um 2% frá
september til október og höfðu auk-
ist um 15% frá fyrra ári.
Otto Lambsdorff, efnahagsmála-
ráðherra, hefur lagt áherslu á að vel-
gengni á þessu ári sé undir þvi
komin að friður haldist á vinnumark-
aði en nokkrar blikur eru á lofti vegna
kröfu þýska alþýðusambandsins um
35 tíma vinnuviku. Vinnuvika í
Þýskalandi er 40 stundir nú og hafa
verkalýðsfélögin farið fram á stytt-
ingu, án launalækkunar, til að auka
atvinnu. Talið er að vinnutímastytt-
ingin hefði í för með sér um 15-20%
hækkun launakostnaðar.
Atvinnuleysi
Atvinnuleysi í Þýskalandi er komið
yfir 10% vinnufærra manna. Misstu
190.000 manns atvinnu í janúar s.l.
og náði þá tala atvinnulausra 2,54
milljónum manna. Tölurnar eru þó
ekki árstíðaleiðréttar og taldar hærri
vegna árstímans. Stefna stjórnvalda
er að stuðla að fjárfestingu í landinu
og draga úr styrkjum til atvinnulifs-
ins. Þá er lögð áhersla á að lækka
opinbera lánsþörf, m.a. í því skyni
að lækka vexti. Eitt af höfuðmark-
miðum ríkisstjórnarinnar er að draga
úr atvinnuleysi - með markvissum
aðferðum þótt þær séu seinvirkari
en flestir kysu. Það samrýmist því
með engu móti þessum markmiðum
að stytta vinnuvikuna án launalækk-
unar því að við það hækkaði fram-
leiðslukostnaður í landinu. Að sögn
Lambsdorffs, efnahagsmálaráð-
herra, er launakostnaður enn of hár
í Þýskalandi og er hann þeirrar
skoðunar að úr atvinnuleysi drægi ef
fallist væri á lækkun launa.
Veröbólgan
Verðbólgan í Þýskalandi 1983
reyndist 3% frá upphafi til loka
ársins. Sambærileg tala árið áður
var 5,3%. Samdóma spár um verð-
hækkanir í ár hljóða upp á 3%,
óbreyttan hraða frá því í fyrra þrátt
fyrir að horfur séu á miklu meiri fram-
leiðsluaukningu. Helstu óvissuþætt-
ir í verðbólguspánni eru olíuverð og
Með lækkandi gengi
dollarans beinist athyglin
nú að þýskum
efnahagsmálum.
hækkun launakostnaðar. Ekki eru
taldar miklar líkur á hækkun olíu-
verðs í ár. Við þetta bætist að gengi
marksins fer nú hækkandi og við það
lækka innfluttar vörur í verði.
Hækkun á gengi marksins, ef hún
heldur áfram, gæti þó dregið úr sölu
á þýskum vörum á erlendum mark-
aði.
Efasemdir
Þótt horfur séu yfirleitt góðar í
efnahagsmálum í Þýskalandi á
þessu ári ef frá er talið atvinnuleysi
kveður við annan tón í skýrslu fimm
ráðgjafarfyrirtækja frá Hamborg,
Kiel, Berlín, Essen og Munchen um
þróun iðnaðar í Þýskalandi á
árunum 1978 til 1981. Sagt er að
skýrslan hafi kostað stjórnvöld tólf
milljónir marka og er hún nýlega
komin út. Það er samdóma álit
flestra að þýska þjóðarbúið sé hið
þróttmesta í Evrópu og að útlit sé á
verulegri framleiðniaukningu á
næstunni. Hagnaðurfyrirtækja hefur
aukist, skriður er að komast á fjár-
festingu og verðbólga er aðeins um
3% og ekki talin yfirvofandi hætta á
aukningu.
En í ofangreindri skýrslu er talið
að Þýskaland sé að dragast aftur úr
helstu keppinautunum, Bandaríkj-
unum og Japan. Þýskaland sé ekki
undir „seinni iðnbyltinguna" búið þar
sem leggja verður áherslu á raf-
eindaiðnað, gagnavinnslutækni og
annan háþróaðan tækniiðnað. I
Þýskalandi komi skriffinnska og
ríkisafskipti í veg fyrir eðlilegar
breytingar í iðnaði þar sem markað-
urinn fái ekki að njóta sín. Launa-
kostnaður hefur aukist of hratt og of
mikið hefur verið lagt upp úr því að
vernda stálframleiðslu og skipa-
smíðar sem ekki eiga sér viðreisnar
von. Fyrirtæki séu ekki nógu áhættu-
glöð, of litlar nýjungar komi fram í
samanburði við nýjunar hjá keppi-
nautunum, o.s.frv.
Seðlabankastjóri, Karl-Otto Poehl,
hefur dregið í efa að rétt sé að taka
eins eindregna afstöðu og skýrslu-
höfundar gera og hefur hann bent á
að bæði hvað varðar tæknifram-
leiðslu og launakostnað standi Þjóð-
verjar fyllilega jafnfætis öðrum
þjóðum.
Þá er einnig vert að hafa í huga að
þeir sem keypt hafa þýsk mörk síð-
ustu vikurnar og átt þátt í um 10%
hækkun á gengi marksins gagnvart
dollara geta tæpast verið sömu
skoðunar og skýrsluhöfundar.
Efni:
Efnahagsmál í Þýskalandi 1
Fjárlagahallinn 1984 2
Þjálfun starfsfólks 4
Töflur:
Gengi helstu gjaldmiðla 4
Gengi íslensku krónunnar 4