Vísbending - 09.05.1984, Page 1
VÍSBENDING
VIKURIT UM ERLEND VlÐSKIPTl OG EFNAHAGSMÁL_
18.2 9. MAÍ1984
Peningamál
Uggur vegna misvægis á peningamarkaði
Peningamál í brennidepli
í athugasemdum við frumvarp til
laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum,
peninga- og lánsfjármálum 1984, sem
lagt varfram á Alþingi í síðustu viku, er
fjallað um helstu þætti efnahagsmála
ársins. Með frumvarpinu fylgir einnig
greinargerð Þjóðhagsstofnunar (sjá
Fylgiskjal 2) um „horfur um verðlag og
kaupmátt í Ijósi ráðstafana í ríkisfjár-
málum í mafbyrjun 1984“. í athuga-
semdunum er að finna úttekt á stöð-
unni í peningamálum og þar koma
fram nokkur stefnumarkandi atriði. Þar
segir m.a.: „Við þau skilyrði í þjóðar-
búskapnum, sem nú rikja, steðjar
vandinn í stjórn peningamála að frá
báðum hliðum: peningauppsprettu frá
ríkissjóðshalla, endurkaupum og
erlendum lánum annars vegar og
mikilli lánsfjáreftirspurn hins vegar til
þess að mæta víðtækum fjárhagsörð-
ugleikum fyrirtækja og einstaklinga.
Þessu fylgir mikið álag á bankakerfið
og hefur leitt til mikillar aukningar út-
lána. Á fyrsta fjórðungi ársins hafa
útlán aukist um 9,1% og innlán með
áætluðum vöxtum um 8,9% eða um
42% að ársvexti, meðan verðbólgustig
telst um eða innan við 15%, en aukn-
ing þessi svarar jafnframt til nálægt
tvöfaldri meðalársávöxtun á vegum
innlánsstofnana. Óhagstæð þróun inn-
og útlána hefur leitt til neikvæðrar
lausafjárstöðu innlánastofnana um
tveggja ára skeið, og var hún neikvæð
um 1.029 m.kr. í marslok".
Ráðstafanir á sviði peninga-
mála
i f réttum hefur þegar verið gerð grein
fyrir þeim ráðstöfunum sem í frum-
varpinu felast. Hér verður aðeins
fjallað um þann þátt sem lýtur að stjórn
peningamála.
Ráðstöfunum í peningamálum
mætti skipta í fjóra hluta en þær ráð-
stafanir felast ekki allar í þessu frum-
varpi þótt frá þeim sé greint í athuga-
semdum með því: Breytingar á endur-
kaupakerfi afurða- og rekstrarlána
atvinnuveganna, samræmingar í
vaxtamálum, heimild Seðlabankans til
að beita sérstakri bindiskyldu í tak-
markaðan tíma, og mikil aukning á
opinberum lántökum, aðallega erlend-
um.
Endurkaup afurðalána með sjálfvirk-
um hætti hafa verið ein helsta upp-
spretta peninga úr Seðlabanka á
undanförnum árum. Lækkun á endur-
kaupahlutfalli er því án nokkurs vafa
spor í rétta átt. Endurkaup hafa verið
fjármögnuð með svokallaðri innláns-
bindingu en endurkaupin hafa iðulega
farið fram úr því fé sem aflaö er með
bindingu innlána. En „innlánsbinding"
er rangnefni þvi að með henni er fé í
raun ekki bundið í Seðlabanka og
þannig tekið úr umferð, heldur er það
aðeins þvingað í nýja farvegi - og löng-
um með lægri vöxtum en ella. (frum-
varpinu er lagt til að Seðlabankinn fái
heimild til 10% „sveigjanlegrar" við-
bótarbindingar til ársloka 1985. Hug-
myndin er að fé þetta verði ekki mót-
virði útlána eða endurkaupa heldur
raunverulega bundið í Seðlabanka til
að hafa áhrif á lausafjárstöðu á pen-
ingamarkaði. Gildistíminn miðast við
að ný bankamálalöggjöf hafi tekið gildi
fyrir lok næsta árs, en viðbótarbinding-
arinnar er einkum talin þörf á meðan
verðbólgan er að minnka. Að því búnu
er talið að treysta megi í ríkara mæli á
vaxtaákvarðanirtil að hafa áhrif á lána-
markaðinn.
Vextir
Umfjöllun um vaxtamál í athuga-
semdum með frumvarpinu er heldur
torskilin og ekki laust við að þar gæti
þversagna. Sökin liggur þó ekki hjá
skriíara athugasemdanna heldur felst
skýringin í því að vaxtastefnan sjálf er
orðin mótsagnakennd. (athugasemd-
unum segir: „Halda verður fast við
núgildandi vaxtakjör á óverðtryggðum
lánum þar til Ijóst er orðið, að þau auki
peningalegan sparnað og dragi úr eftir-
spurn eftir lánsfé. Hins vegar kann að
vera nauðsynlegt að samræma lána-
kjör verðtryggðra og óverðtryggðra út-
lána banka og fjárfestingarlánasjóða."
Sá skilningur virðist liggja hér að baki
að verðbólgan sé enn að minnka og að
raunvextir á óverðtryggðum lánum fari
því hækkandi verði vöxtum haldið
óbreyttum. Ennfremur að til greina
komi að hækka vexti á verðtryggðum
lánum til að þau beri svipaða raunvexti
og óverðtryggð lán. Hér þarf því að
gæta að verðbólguforsendum frum-
varpsins.
Veröbólgan og raunvextir
í greinargerð Þjóðhagsstofnunar
Efni:
Peningamál 1
Erlendar lántökur 3
írsk efnahagsmál 4
Töflur:
Gengi helstu gjaldmiðla 4
Gengi íslensku krónunnar 4