Vísbending


Vísbending - 16.05.1984, Blaðsíða 1

Vísbending - 16.05.1984, Blaðsíða 1
VISBENDING & í) VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL ^ \ls 19.2 16. MAÍ1984 Noregur___________________________________ Þaö þarf sterk bein til aö þola góöa daga Olía og gas Efnahagsvandamál Norömanna eru aö vissu leyti af öörum toga en vanda- mál margra grannríkjanna. Helstu vandamál í Noregi eru atvinnuleysi, samdráttur í fjárfestingu í hefðbundn- um iöngreinum og rýrnandi sam- keppnisstaða á alþjóðlegum vettvangi; ekki atvinnuleysi, veröbólga, fjárlaga- halli og opinber lánsþörf, og erlendar skuldir eins og víöa annars staðar. Munurinn liggur í gas- og olíulindum Norðmanna. Segja má að framtíð norskra efnahagsmála velti á því hversu skynsamlega tekst til að nýta þessar náttúruauðlindir. Fyrir 12 árum nam hlutur gas- og olíuvinnslu 0,2% af vergri þjóðarframleiðslu en 18,5% I ár og talið er að undir lok áratugarins gæti gas- og olíuvinnsla numið um fjórðungi af þjóðarframleiðslu. Til samanburðar má geta þess að hlutur hefðbundinnar iðnaðarframleiðslu í þjóðarframleiðslu var aðeins 13,7% I fyrra. Árið 1972 var olía og gas aðeins um 0,5% af útflutn- ingi Norðmanna en þetta hlutfall er nú komið yfir þriðjung. Vaxandi framleiðsla Talið er að samdráttarskeiði í norsk- um efnahagsmálum hafi lokið um mitt sumar í fyrra, um hálfu ári síðar en í Bandaríkjunum, og framleiðsla fer nú vaxandi á nýjan leik, ekki síst útflutn- ingsframleiðsla. Áætlað er að fram- leiðsla aukist um 2-3% í ár. Aukningin stafar aðallega af hraðvaxandi eftir- spurn eftir norskum hráefnum og hálf- unnum vörum, og af vaxandi fjárfest- ingu í olíugreinum. Samneysla óx einnig nokkuð í fyrra þrátt fyrir ásetning stjórnvalda um hið gagnstæða. Útflutningur jókst mest á ýmsum kem- ískum hráefnum, á járni og stáli, áli og trjávörum - en einnig á sjávarafurðum. Útflutningsaukningin I fyrra var svo mikil að undir lok ársins var útflutningur 15-20% meiri enásamatímaáriáður. Gengi norsku krónunnar Gengi norsku krónunnar var fellt í september 1982. Raungengi krón- unnar hefur farið lækkandi síðan í haust og hefur þannig samkeppnis- Efni: Efnahagsmál í Noregi 1 ECU 2 Verðbólgan 3 Holland 4 Töflur: Gengi helstu gjaldmiðla 4 Gengi íslensku krónunnar 4 staða Norðmanna heldur farið batn- andi, en raungengi nú er aðeins um 1,5% hærra en það var eftir gengisfell- inguna í september 1982. Verulegra breytinga á meðalgengi norsku krón- unnar (þ.e. gagnvart myntunum I við- miðunarkörfu norsku krónunnar að

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.