Vísbending - 04.07.1984, Blaðsíða 1
VISBENDING
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL_
26.2 4.JÚLÍ1984
Bandaríkin_________________________________________
Hagvöxtur, vaxtahækkun og hækkandi gengi dollarans
Vaxtahækkun 25. júní
Flestir helstu bankar í Bandaríkj-
unum hækkuöu grunnvexti (Prime
Rate) úr 12,5% í 13% þann25. júní sl.
Hafa vextir ekki verið svo háir í Banda-
ríkjunum síðan í október 1982. Vaxta-
hækkunin kom mönnum þó engan
veginn á óvart því að millibankavextir
hafa hækkað ört síðustu vikurnar og
eftirspurn eftir lánsfé er mjög mikil.
Margir telja fullvíst að grunnvextir eigi
eftir að hækka enn frekar í Banda-
ríkjunum á síðari hluta ársins.
Komið hefur á daginn að umsvif í
bandarísku efnahagslífi eru mun meiri
en talið hafði verið. ( síðasta tbl. Vís-
bendingar var greint frá því að ýmsir
spá nú hærri verðbólgu en áður og
margir hafa einnig orðið til þess að
hækka vaxtaspár sínar. Talið er hugs-
anlegt að grunnvextir nái 14% fyrir lok
ársins. Vaxtahækkunin 25. júní var hin
fjórða síðan um miðjan mars en fyrir
þann tíma voru grunnvextir 11%.
Fyrir tveimur vikum var birt opinber
áætlun um hagvöxt á öðrum ársfjórð-
ungi í Bandaríkjunum og erhann talinn
jafngilda 5,7% framleiðsluaukningu á
ári. Þá hefur hagvaxtaráætlunin fyrir
fyrsta ársfjórðung verið hækkuð úr
jafngildi 8,8% hagvaxtar i 9,7%. Hafa
þessar tölur, ásamt meiri útgjöldum til
neyslu í maí heldur en áætlað var, haft
áhrif bæði til hækkunar á vöxtum og
hækkunar á gengi dollarans. Á hinn
bóginn sjást þess engin merki í verð-
mælingum að verðbólga sé að aukast.
Hækkun neysluvöruverðs í maí var
aðeins 0,2% sem jafngildir um 2,4%
verðbólgu á ári. Hækkunin í apríl var
0,5% og jafngildir það um 5,6% verð-
bólgu á ári. Matvæli hækkuðu minna i
maí en aðrar vörur að meðaltali en
jafnvel að matvælum frátöldum hækk-
aði verðlag aðeins um 0,3% í maí. Þá
sjást heldur engin merki launahækk-
ana en meðaltímakaup lækkaði um
0,4% í maí.
Hækkandi gengi dollarans
Gengi dollarans hefur hækkað tals-
vert á síðustu tveimur vikum. Dollara-
gengið var þannig hærra i síðustu viku
heldur en það var hæst í janúar gagn-
vart flestum myntum nema þýska
markinu og franska frankanum. Gengi
dollarans fór þá yfir DM2,80 í fyrsta
skipti síðan i janúar en þá var það
hæst DM2.8434 þann 10. janúar.
bandarísk þingnefnd hefur ákveðið að
mæla með því að lög um skattlagningu
á vaxtatekjum erlendra þegna vegna
verðbréfa- og skuldabréfaeignar
(Withholding Tax) verði numin úr gildi í
Bandaríkjunum en skatturinn er nú
30%. Aðrir þættir hafa einnig stuðlað
að háu gengi dollarans síðustu dag-
ana svo sem hagvaxtartölurnar, vaxta-
hækkunin og vinnudeilur í Þýskalandi.
Á hinn bóginn gæti verið að gengi
Mánaðarlegt meðalgengi dollarans janúar-júní 1984.
Sterlings- Þýskt Svissneskur
pund mark franski Yen
janúar.......................... 1,41 2,81 2,23 233,8
febrúar ........................ 1,44 2,70 2,21 233,6
mars............................ 1,46 2,59 2,15 225,4
apríl .......................... 1,42 2,64 2,19 225,0
maí ............................ 1,39 2,75 2,27 230,7
júní ........................... 1,38 2,74 2,28 233,4
Taflan sýnir mánaðarlegt meðalgengi
dollarans á fyrri helmingi ársins gagn-
vart pundi, þýsku marki, svissneskum
frönkum og yenum.
Talið er eftir hækkanirnar á síðustu
dögum að gengi dollarans kunni jafn-
vel að hækka enn frekar, ef til vill allt í
þrjú þýsk mörk fyrir lok ársins. Ein af
ástæðunum fyrir þessum spám er að
Vextir í Bandaríkjunum
Mánaðarleg meðaltöl
O/
/o
dollarans hækki ekki meira í bráð
vegna þess að alvanalegt er að hagn-
aðarvon reki gjaldeyriskaupmenn til að
selja eftir að gengi myntar hefur
hækkað snögglega. Þótt þeir virðist
vera í meirihluta sem telja að gengi
dollarans fari enn hækkandi á síðari
hluta ársins eru þó aðrir einnig til sem
búast viðlækkun.
Efni:
Bandaríkin 1
Dreifing áhættu í fjárfestingu 2
Hrávörumarkaður 4
Töflur:
Gengi helstu gjaldmiðla 4
Gengi íslensku krónunnar 4