Vísbending - 11.07.1984, Síða 1
VISBENDING
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL
27.2
11. JULI 1984
Japan
Hvorki búist við vaxtahækkun né mikilli hækkun á gengi yensins
Viðskipti íslands og Japans
Lán íslendinga í japönskum yenum
voru um 7% af erlendum skuldum í
árslok 1982 og eru skuldir aðeins meiri
í dollurum og þýskum mörkum. Vægi
dollarans er um 61-62% og hlutfall
þýskra marka um 12-13%. Einnig eru
talsverð vöruskipti milli landanna en
útflutningur íslendinga til Japans á
árinu 1983 var um 3% af heildarútflutn-
ingi og innflutningur frá Japan var um
4% af heildarinnflutningi. Væntanlegar
breytingar á gengi yensins og vöxtum
Gengi yensins
ítöflunni er sýnt mánaðarlegt með-
algengi yensins gagnvart nokkrum
helstu gjaldmiðlum. Með orðinu gengi
er átt við hvort sem er, verð á mynt A
miðað við B eða verð á B miðað við A,
og til að taka af allan vafa er rétt að taka
fram að hér er átt við verð á dollara,
sterlingspundi, þýsku marki og
svissneskum franka í yenum. Línuritin
yfir gengi yensins gagnvart dollara,
sterlingspundi og þýsku marki eru sett
fram á sama hátt.
Meðalgengi yensins 1984
gagnvart dollara sterlings- pundi þýsku marki svissneskum franka
janúar 234 329 83 105
febrúar 234 336 87 106
mars 225 329 87 105
apríl 225 320 85 103
maí 231 320 84 102
júní 233 322 85 102
í Japan skipta því töluverðu máli fyrir
efnahag íslendinga. Til að lækka vægi
dollaralána í skuldum landsmanna
virðist koma til greina að auka hlut
yenalána ekki síður en lána í Evrópu-
myntunum.
Gengi yensins gagnvart dollara
lækkaði mikið á árunum 1981 og 1982
en hefur haldist stöðugra gagnvart
dollara á árunum 1983 og það sem af
er 1984, a.m.k. í samanburði við aðrar
myntir. Litlu myndirnar sýna glöggt að
Efni:
Japan 1
Gjaldeyrisstýring: Samsetning
lána eftir myntum 2
Innflutningur 3
Skattur á arðgreiðslur til útlanda 4
Töflur:
Gengi helstu gjaldmiðla 4
Gengi íslensku krónunnar 4
gengi sterlingspunds gagnvart yenum
hefur lækkað verulega allt frá 1981 og
gengi marksins hefur lækkað gagnvart
yeni frá síðari hluta árs 1982.
Hækkandi gengi?
Efnahagslíf í Japan stendur á
traustum fótum. Hagvöxtur á árinu
1983 var um 3% og verðbólga ekki
nema 1,5%. Atvinnuleysi í Japan var
2,5-3% og búist er við lítilli breytingu í