Vísbending - 08.08.1984, Blaðsíða 1
VISBENDING
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL
31.2
8. ÁGÚST 1984
Gjaldeyrismarkaður
Enn er von á hækkandi gengi dollarans
Metgengi í síðustu viku
Þann 1. ágúst sl. náði gengi Banda-
ríkjadollara hærra gagnvart sterlings-
pundi og franska frankanum en nokkru
sinni fyrr og gengi hans gagnvart
þýsku marki varð hið hæsta síðan
1973. Var haft á orði á gjaldeyrismark-
aði að dollarinn væri orðinn margfaldur
ólympíumethafi. Taflan sýnir gengi
dollarans gagnvart helstu myntum í
vendipunktunum 10. janúarog 7. mars
1984, reiknað eftir skráningu Seðla-
bankans, auk nýjasta metdagsins, 1.
ágúst sl. Innbyrðis afstaða erlendra
gjaldmiðla til hvers annars í gengis-
skráningu Seðlabankans er sam-
kvæmt skráningu Englandsbanka
snemma morguns og eftir þeirri skrán-
ingu var 1. ágúst metdagurinn í síð-
ustu viku. Á gjaldeyrismarkaði í New
York náði dollarinn þó enn hærra þann
31. júlí sl. og var hæsta gengi hans þar
2,9203 gagnvart þýsku marki, 1,2985
gagnvart sterlingspundi og 8,9555
gagnvart frönskum franl-a. Gengi doll-
arans gagnvart svissneska frankanum
varð hið hæsta í sjö ár, 2,4578, og
246,90 gagnvart yeni. Talið er að
skammt muni I að dollarinn kosti 250
yen en það gengi gilti síðast í nóvem-
ber 1982. Þá eru menn farnir að spá
hækkun í DM 3,00 og 1,25 gagnvart
sterlingspundi.
Ástæðumar
Menn sjá nú ýmsar ástæður fyrir
hágengi dollarans aðrar en háa vexti í
Bandaríkjunum og mikinn vaxtamun
miðað við samkeppnisþjóðirnar. Gengi
dollarans er nú hærra en nokkru sinni
síðan fastgengisskeiðinu lauk. Bent er
á að dollarinn kunni í vaxandi mæli að
taka við hlutverki varasjóðsmyntar á
sama hátt og áður en gengi hans var
látið fljóta 1973. Dollarinn er þannig að
verða gulli, þýsku marki og svissneska
frankanum yfirsterkari sem fjárfesting-
armynt. Mikill hagvöxtur og sterkt og
sveigjanlegt efnahagslíf hefur átt sinn
þátt í að skapa dollaranum það traust
sem hann virðist njóta nú.
Gengi dollarans gagnvart helstu
myntum 19841)
gagnvart 10.janúar 7. mars 1. ágúst
þýsku marki 2,8434 2,5355 2,9143
sterlings- pundi 1,3932 1,4853 1,3003
svissn. franka 2,2612 2,1040 2,4707
frönskum franka 8,6816 7,8212 8,9466
yeni 234,95 221,96 245,83
Reiknað eflir gengisskráningu Seðlabanka
Islands
I nýrri opinberri skýrslu um efna-
hagsmál í Bandaríkjunum er áætlað
?ð hagvöxtur í árverði 6%. Hérá landi
hefur ekki verið svo mikill hagvöxtur
síðan 1973. Það ár varð hagvöxtur
7,9%, en árin 1970-72 var hagvöxtur
7,8%, 12,7% og 6,5%. Þá mætti
Efni:
Gjaldeyrismarkaður 1
Vísitölur útfiutningsverðmætis 2
Fjármögnun fyrirtækja 3
Gengisfellingar 4
Töflur:
Gengi helstu gjaldmiðla 4
Gengi íslensku krónunnar 4