Vísbending - 28.09.1988, Qupperneq 2
VÍSBENDING
Hlutdeild óbeinna skatta í veröi
á 1 litra af víni
Viröisaukaskattur
I I Vörugjald
Hlutdeild óbeinna skatta í veröi
á 1 lítra af bensíni
I I Virðisaukaskattur
I I Vörugjald
Verö fyrir skatt ECU/10001.
M-------------------------------—800
700
600
ur á hinn bóginn bent mönnum á líkur
þess að samræming komi af sjálfu sér.
Samkeppnin muni einfaldlega knýja
þjóðimar til þess þegar vörur, þjón-
usta og vinnuafl fá að flæða hindrun-
arlaust yfir landamæri. Sérstaklega ef
linað verður á takmörkunum á því að
fólk taki með sér gjaldeyri. Og að því
er kostnaðarsamt Iandamæraeftirlit
varðar þá megi einfalda það frá því
sem nú er og t.d. færa það í það horf
sem nú ríki á milli Beneluxlandanna.
Övíst um framhaldið
Aðalhvatamaður tillagnanna um
samræmingu óbeinna skatta er Lord
Cockfield, fulltrúi Breta í EB-nefnd-
inni, en hann mun láta af störfum um
næstu áramót. Hefur einmitt verið lát-
ið að því liggja að honum hafi verið
vikið úr nefndinni vegna harðrar af-
stöðu sinnar í þessu máli. Cockfield
fullyrti hins vegar eftir fundinn með
fjármálaráðherrunum að áfram yrði
unnið að málinu af fullum krafti.
Hann benti á að mikill meirihluti væri
fyrir því að taka skyldi upp tvær skatt-
prósentur á þeim bilum sem nefndin
hefur lagt til. Hins vegar yrði reynt að
koma til móts við gagnrýnisraddir og
þá einkum þær er varða hugmyndina
um sama gjald á áfengi og tóbak, sem
hefur mætt hvað mestri andstöðu.
Mun nefndin leggja fram endurskoð-
aðar tillögur væntanlega í lok ársins.
Það ríkir samt fremur mikil svart-
sýni um að löndunum takist að komast
að samkomulagi um samræmingu
skatta fyrir árið 1992. Engin sérstök
dagsetning hefur t.d. verið sett af hálfu
EB-nefndarinnar um það hvenær
þessu samræmingarstarfi skuli lokið.
Forseti nefndarinnar, Jacques Delors,
hefur á hinn bóginn Iagt mikla áherslu
á að þetta mál skyggi ekki á áætlunina
um sameiginlegan markað í heild
sinni. í höfuðstöðvum EB er sú skoð-
un síðan óopinberlega sett fram, að
líklega verði niðurstaðan sú að ýmis
lönd innan bandalagsins muni taka sig
sjálf saman um að samræma skatta
sína.
Hvort sem samræming óbeinna
skatta verður að veruleika fyrr eða síð-
ar hjá löndum Evrópubandalagsins,
þá er ljóst að nágrannalönd þess geta
ekki verið með mjög frábrugðið skatt-
kerfi. Annars er hætta á að þau lendi
undir í hinni ört vaxandi samkeppni.
AGALEYSII
RÍKISFJÁR-
MÁLUM
Dr. GuðawúurMagnássoa
Enn sem fyrr virðist ætla að ganga
illa að ná jöfnuði í ríkisfjármálum.
Ríkisstjórnir liggja vel við höggi með-
an svo er. En hversu alvarlegt vanda-
mál er ríkishallinn og eru allar syndir
greyinu honum Garmi að kenna?
Hagstjórn og ríkishalli__________________
Umsvif ríkisins eru orðin það mikil í
þjóðfélaginu að stærð þess ein er farin
að skipta máli um þróun efnahags-
mála. Hið opinbera getur með ráðstöf-
unum sínum haft veruleg áhrif á eftir-
spurn og framboð í hagkerfinu.
2