Vísbending


Vísbending - 20.07.1989, Blaðsíða 1

Vísbending - 20.07.1989, Blaðsíða 1
yiKURlT UM VIÐSKIPTIOG EFNAHAGSMÁL 28.7. 20. JÚLÍ 1989 LÖG GEGN HAGSÆLD Dr. Þráinn Eggertsson í hagfræðikenningum um markaðsbúskap er því lýst, hvernig óheft gróðasókn einstaklinga geti leitt til farsællar niðurstöðu fyrir þjóðar- búið. Rök eru færð fyrir því, að fullkomin samkeppni tryggi hámarks- afköst á þjóðarbúinu. Að vísu mála ýmsir hagfræðingar þessa mynd nokkuð dökkum litum og álíta, að ýmsir markaðsbrestir, svo sem mengun og einokunarvald stórfyrirtækja, kalli óhjákvæmilega á þátttöku embættis- manna í rekstri hagkerfisins, ef góður árangur eigi að nást. Enda þótt vest- rænir hagfræðingar séu ekki á einu máli um ágæti markaðsbúskapar, byggja þeir flestir kenningar sínar á sama klenningakerfinu, nýklassískri hag- fræði. A tuttugustu öld hafa hagfræð- ingar eytt miklu púðri bæði í útfærslu á líkaninu um fullkomna samkeppni og í gagnrýni á líkanið, en sérfræðingar, sem skipuleggja aðstoð iðnríkja við þróunarlönd, hafa sótt vit sitt í þessi fræði. Ahersla hefur verið lögð á fjárfeslingu (oft á vegum ríkisins), hátækni og áætlanagerð embættis- manna. Víða er árangurinn lítill og milljónir manna svelta eftir sent áður. Það er eðli fræðikenninga að einfalda hlutina og hagfræðikenningar eru ekki undantekning, þær byggja á forsendum, sem eru ekkj fyllilega í samræmi við veruleikann. í kenningum um markaðsbúskap er lagt til grund- vallar, að einstaklingar stundi viðskipti í þjóðfélagi þar sem séreignarrétturinn er nákvæmlega skilgreindur og ótvíræður og enginn kostnaður við sjálf viðskiptin (viðskiptakostnaður). Jafnframt er reiknað með, að lög og reglur beini kröftum alhafnamanna stystu leið að verðmætasköpun, en hamli ekki gegn henni. Skipulagsbrestur Þessar forsendur um þjóðfélags- gerðina eiga við, þegar spurt er almennra spurninga um markaðsvið- skipti, t.d. hvort frjáls markaðsbúskap- ur muni ávallt leiða til öngþveitis eða hvort ósýnileg hönd stýri viðskiptunum að farsælli niðurstöðu. En forsendur um fullkomið réttarkerfi og stjórn- skipan og kostnaðarlaus viðskipti eiga ekki við, þegar fjallað er um þróun hagkerfa. A okkar tímum, tímum hátækni, er ljóst að efnahagsvandi þjóða stafar fremur af skipulagsbresti en markaðsbresti. Viðskiptakostnaður við samninga, bæði í stjórnmálum og atvinnulífi, hefur víða leitt til skipulags, sem kemur í veg fyrir hámarksafköst í þjóðarbúskapnum, þannig að oft gæti tiltölulega einföld skipulagsbreyting fært öllum þjóðfélagsþegnum betri lífskjör. Ljóst er, að nýjar hagfræðirannsókn- ir eftir óhefðbundnum leiðum geta skilað þjóðfélaginu milkum arði, ef vel er að þeim staðið. Mikil þörf er á því að kanna, hvernig óhagkvæmt skipulag verður til og hvaða áhrif ýmsar skipulagsgerðir hafa á viðskiptakostnað og niðurstöðu viðskipta. Nú er flestum ljóst, að hnignun sovésku ríkjanna í Austur- Evrópu á rætur að rekja til skipulags- brests. Einnig blasir við, að það er einkum skipulagsbrestur, sem veldur því, að íslenska hagkerfið skilar minni árangri en vænta mætti. Til dæmis eru flestir sammála um það, að með einfaldri skipulagsbreytingu megi auka verðmæti sjávarafla og lækka verulega framleiðslukostnaðinn. Sama máli gegnir um fleiri greinar, svo sem landbúnað og banka- og fjármálakerfi þjóðarinnar. Perú: Hin leiðin Sennilega eru brestir í skipulaginu hvergi meiri en í þróunarríkjunum. Perúsk hagfræðistofnun hefur gert stórmerka úttekt á viðskiptakostnaði í Perú, en forstöðumaður stofnunar- innar, Hernando de Soto, greinir frá ýmsum niðurstöðum rannsóknarinnar í nýrri bók, El Otro Sendero (1986) eða Hin leiðin.') Efnahagsvandi Perú- manna er stórbrolnari en vandi okkar Islendinga, en liann er sama eðlis: afleiðing af lélegu skipulagi. Perúmenn búa við svipað skipulag og Englendingar á 17du öld, en þá högnuðust Englandskóngar á því að selja ýmsum aðilum einkaleyfi til atvinnurekstrar. I Perú hefur aðeins lílill hópur manna Ieyfi til atvinnu- rekstrar í borgunt. en kostnaður við lögskráningu hamlar gegn stofnun nýrra fyrirtækja. De Soto gerði út lögfræðing og fjóra aðstoðarmenn, sem þóttust ætla að stofna litla saumastofu í Líma. Ef miðað er við 8 stunda vinnudag, tók það samtals 289 daga að fá tilskilin leyfi, en leita þurfti til 11 opinberra skrifstofa. Þeir félagar leituðu einnig el'tir samskonar rekstrarleyfi í Tampa á Flórída og í New York borg, en þar tók það aðeins 3-4 klukkutíma að verða sér úti um slíka heimild. Sama máli gegnir um verslunar- fyrirtæki, verslunarleyfi eru torsótt og samkvæmt landslögum eru fólksflutn- ingar með bifreiðum algerlega á vegum ríkisins. Ekki er heldur auðvelt að reisa sér þak yfir höfuðið. Ef hópur manna tekur sig saman og sækir um leyfi til að byggja nokkur íbúðarhús á einhverri sandspildunni, sem ríkið á í útjaðri L.íma, þarf að leita til 52 stjórnarskrifstofa og fylla út 207 aðskiljanlegar skýrslur, en að meðal- tali tekur þessi málarekslur tæp sjö ár. Loks er ríkið iðið við að semja ný lög og nýjar reglur: reglur er lúta að atvinnulífinu eru unt hálf milljón, en um 27.000 reglur eru settar árlega (að meðaltali 111 hvern virkan dag). Forstjórar löggildra fyrirtækja eyða 40% af tíma sínum í viðureign við kerfið, en aðalforstjórar flestra fyrirtækja utan Líma eru búsettir í höfuðborginni til að vera í návígi við möppudýr og pólitíkusa. Athafnasamir utangarðsmenn Almenningur hefur brugðist við þessu kerfi með því að stunda ólöglega atvinnustarfsemi. I Perú (og víðar í Rómönsku Ameríku) starfar um helmingur þjóðarinnar utangarðs að staðaldri. Rannsókn de Soto sýndi meðal annars, að utangarðsmenn reka 87% af strætisvögnum í Líma, 70% af byggingaframkvæmdum eru ólöglegar og 90.000 gölusalar gegna lykil- hlutverki við dreifingu matvæla án þess Efni: • Lög gegn hagsœld • Mútur • Erlend fréttahrot

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.