Vísbending


Vísbending - 13.02.1992, Side 1

Vísbending - 13.02.1992, Side 1
V viku ISBENDING 'rit um viðskipti og efnahagsmál 13. febrúar 1992 7. tbl. 10. árg. Sexföldun innstæðna á húsnæðis- sparnaðar- reikningum á árinu 1991 Ólafur K. Ólafs Megintilgangur laga nr. 49/1985 um húsnæðissparnaðareikninga er að hvetja fólk til spamaðar áður en hafist er handa um kaup á íbúðarhúsnæði. I ó.tbl. Vísbendingar 1990, „Húsnæðis- spamaðarreikningar: Gleymd leið til lækkunar skatta“, var fjallað um meginreglur reikninganna og athygli vakin á því hversu fáir höfðu í reynd nýtt sér þessa ágætu leið til að lækka skattana og fá um leið óvenju háa ávöxtun. Á árinu 1991 var húsnæðis- spamaðarreikningum hins vegar gefinn aukinn gaumur. Aukin kynning banka og sparisjóða leiddi til stórfelldrar aukningar í innlánum á þessa reikn- inga. Þau tæplega sexfölduðust á árinu 1991, voru 610 millj. kr. í lok árs 1991 en 107 millj. kr. 1990. Raunaukning varð 436%! Hlutdeild húsnæðis- spamaðarreikninga í innlánum banka og sparisjóða var þó aðeins 0,45 % í lok ársins 1991 en 0,08% 1990. Tafla 1 sýnir að innstæður á þeim fóru stigvaxandi á árinu 1991, einkum undir lok ársins. ^Tafla 1 ' Húsnæðissparnaðarreikningar Stöðutölur í lok árs,milljónirkr. 1990 107 1991 610 Hreyfingar I’91 44 II’91 101 IIT91 126 IV’91 233 Heimild: Seðlabanki Islands Ný markaðssetning Á árinu 1991 fóru bankar og spari- sjóðir af stað með auglýsingaherferð fyrir húsnæðissparnaðarreikningum. Þeir markaðssettu þá öðruvísi en áður. Hver stofnun nefndi reikningana sérstökum nöfnum. Til dæmis nefnist reikningurinn í Landsbanka Gmnnur, Islandsbanka Sparileið 5, Búnaðar- banka Bústólpi en hjá sparisjóðunum Húsnæðissparnaðarreikningar. I auglýsingunum hefur einkum verið lögð áhersla á fernt. I fyrsta lagi bestu innlánskjör, í öðru lagi 25% skattafslátt af hverju innleggi, í þriðja lagi lána- möguleika í lok spamaðartímans og í fjórða lagi að skilyrði um reglubundinn sparnað sé kjörin leið til að mynda sinn eigin lífeyrissjóð. Það síðast- nefnda hefur fæstum verið ljóst. Samkvæmt ákvæðum laganna gefst fólki ekki aðeins kostur á að fá mikinn skattafslátt vegna húsnæðissparnaðar heldur einnig vegna almenns spamaðar. Munurinn felst í mismunandi binditíma. Tafla 2 sýnir verulega aukningu innstæðna á húsnæðissparnaðar- reikningum hjá öllum stofnunum á árinu 1991. Mest var lagt inn í Landsbanka en hlutdeild hans varð þó minni 1991 en 1990. Töluverður munur var á bestu ávöxtun eftir þv í h var reikningurinn var. Hæstu vextir voru hjá sparisjóðunum 1991 og er svo einnig um þessar mundir. r n Tafla 2 Húsnæðissparnaðarreikningar Stöðutölur í lok árs (milljónir kr.) 1990 1991 Hreyfing LÍ 79 387 308 ÍB 6 108 102 BÍ 13 59 46 SP 8 56 46 Raunávöxtun i (%)1 1990 1991 11/2 '92 LÍ 5,75 6,6 7,0 ÍB 6,30 7,1 7,0 BÍ 5,65 7,0 7,0 SP 6,60 7,2 7,75 1 Án skattafsláttar V__________________J Ríkisuppbót á vexti Húsnæðisspamaðarreikningar eru á margan hátt ntjög óvenjulegir reikningar. Þeir tryggja í senn bestu innlánskjör í viðkomandi bankastofnun og skattafslátt sem nemur fjórðungi af innleggi. Raunávöxtun með slíkum niður- greiðslum getur því orðið mjög há, einkum af innstæðum bundnum til þriggja ára. Sveiflur geta verið í raun- ávöxtuninni eftir því hversu mikið er lagt inn hverju sinni. Til dæmis væri hægt að ná hærri ávöxtun ef lægri fjárhæðir væru lagðar inn á fyrri hluta sparnaðartímans en á seinni hluta vegna þess að skattafsláttur reiknast aðeins einu sinni af hverju innleggi. Mikilvægt er því að stofna sem fyrst til húsnæðis- spamaðarreiknings enda þótt innlegg séu ekki há í upphafi. Þannig minnkar sá tími sem eftir er af binditíma reikning- anna. Mat á raunávöxtun húsnæðis- sparnaðarreikninga miðast við þær forsendur sem gefnar eru. Ef gert er ráð fyrir að ætíð sé lögð inn sama upphæð ársfjórðungslega og að bestu inn- lánskjör bankanna séu 5-7% að meðaltali á ári væri meðalraunávöxtun ásamt skattafslætti 22-24% miðað við þriggja ára sparnað en 9-11% miðað við 10 ára sparnað. Meira en 100 milljónir í skattafslátt Á árinu 1992 er áætlað að um 2500 einstaklingar fái töluvert á annað hundrað milljónir króna í skattafslátt vegna innleggs á hússnæðissparnaðar- reikningaáárinu 1991. Það er margföld aukning miðað við fyrri ár. Hins vegar fá margfalt fleiri skattafslátt vegna hlutabréfakaupa eins og töflur 3 og 4 sýna. Það má meðal annars rekja til mikillar umfjöllunar fjölmiðla um íslenska hlutabréfamarkaðinn. Hluta- bréfakaup hafa verið tískufyrirbrigði hérálandi.Áhinnbóginnhafafjölmiðlar lítið sinnt öðrum skattalækkunar- leiðunt, t.d. húsnæðissparnaðar- reikningum. • Húsnœðissparnaðar- reikningar • Skattur á eignatekjur

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.