Vísbending


Vísbending - 22.08.1997, Side 2

Vísbending - 22.08.1997, Side 2
V ISBENDING Miðstjóm og markaður: Eitt dæmi enn M Hversu algild eru lögmál efna- hagslífsins? Á eitt við á einum stað og annað á öðrum? Margir hagfræðingar töldu lengi vel, að s vo væri á vissum sviðum. Menn gerðu að vísu mismikið úr þessu. Þetta leiddi til þess, að til varð sérstök tegund hagfræði handa þróunarlöndum, þróunarhagfræði. Fá- tækralönd þriðja heimsins voru eftir þessari kenningu talin svo frábrugðin iðn- ríkjunum, að venjuleg hagfræði var ekki talin henta í hitabeltinu. Menn settu sig þá í allt aðrar stellingar, þegar efnahagsvandamál fá- tækra landa bar á góma. Sumir töldu jafnvel, að tilskipanabúskapur gæti hentað í Afríku og annars staðar um þriðja heim- inn, þótt hann ætti ekki við í Evrópu og Ameríku. Nú er öldin önnur. Það eru líklega engar umtals- verðarýkjur, þótt sagt sé, að þróunarhagfræði sé í þann veginn að innlim- ast í aðra hagfræði: það virðist m.ö.o. gagnlegra yfirleitt að leggja rækt við það, sem rík lönd og fátæk eiga sameiginlegt, en hitt, sem skilur þau að. Eitt af því, sem skildi þau helzt að fyrr á þessum aldarhelmingi, var það, að mörg þróunarlönd kusu að taka upp miðstýrðan áætlunarbúskap að sovézkri fyrirmynd að fengnu sjálfstæði eftir 1960 frekar en markaðsbúskap. Nú er Ijóst, að markaðslöndunum hefur reitt miklu betur af en miðstjórnarlöndum, án undantekningar, nær og fjær. Það er hægt að nefna mörg pör 1 anda, sem stóðu í svip- uðum sporum í efnahagslegu tilliti og bjuggu nokkrum áratugum síðar við gerólík lífskjör vegna þess, að annað stundaði áætlunarbúskap og hitt mark- aðsbúskap. Kunnustu dæmin eru Eistland og Finnland, Austur- og Vestur-Þýzka- land, Tékkland og Austurríki, Tansanía og Kenía, Búrma og Tafland, Norður- og Suður-Kórea, Kína og Taívan. Ég sagði söguna af Tansaníu og Keníu og af Búrmu, sem herforingjarnir kalla nú Mjanmar, og Taílandi hér í Vísbendingu í sumar leið, og nú langar mig að bæta einu dæmi við. Víkur þá sögunni austur á Indlandshaf. Madagaskar og Máritíus ar eru m.a. eyjar tvær, og heitir önnur Madagaskar og hin Máritíus. Mada- gaskar er risavaxið eyland um 400 kfló- metra frá austurströnd Afríku, fjórða stærsta eyja heims, tæplega 600 þúsund ferkflómetrar að flatarmáli eins og Texas, þ.e.a.s. stærra en Frakkland. Máritíus er hins vegar dvergvaxin í allar áttir, aðeins um 2 þúsund ferkílómetrar. Madagaskar er miklu strjálbýlli: þar búa nú 14 millj- ónir manns á móti 1 milljón á Máritíus. Madagaskar var frönsk nýlenda og fékk sjálfstæði árið 1960. Máritíus var fyrst undir hollenzkum yfirráðum, síðan frönskum og loks brezkum, áður en eyjan varð sjálfstæð árið 1968. Frakkar mörk- uðu djúp spor í Máritíus eins og víða annars staðar, svo að margireyjarskeggjar eru betur heima í frönsku en ensku. Myndin sýnir, hvernig landsframleiðsla á mann hefur þróazt í löndunum tveim s.l. 30 ár. Þennan tíma hefur framleiðsla á mann á Máritíus aukizt um 3lA% á ári að jafnaði, á meðan hún hefur dregizt saman um næstum 2% á ári á Madagaskar. Við upphaf tímabilsins, 1966, voru tekjur á mann í Máritíus u.þ.b. tvöfalt meiri en á Madagaskar. Fram til ársins 1972 virtist miðstjórnin (sjálfir kölluðu þeir það rót- tækan sósíalisma) á Madagaskar hafa vinninginn yfir hið blandaða búskaparlag á Máritíus, en þá skildu leiðir. Síðan hafa tekjur á mann minnkað um helming á Madagaskar, á meðan þær hafa aukizt um 150% á Máritíus. Á kaupmáttar- kvarða, sem er ætlað að eyða áhrifum óraunhæfrar gengiskráningar á skráðar þjóðartekjur, ertekjumunurinn enn meiri: þáeru tekjur á mann orðnarríflega tuttugu sinnum meiri á Máritíus en á Madagaskar, eða 13200 Bandaríkjadollarar á móti 600. Sem sagt: tvöfaldur munur er orðinn tví- tugfaldur á minna en einum mannsaldri. Hagvaxtarmunurinn hefur verið enn meiri s.l. 10 ár, eða næstum 6% vöxtur á ári að jafnaði á Máritíus 1985-1995 á móti -2% á Madagaskar. Aðrir hagvísar, sama saga Ef menn vissu ekkert annað en þetta um þessi tvö lönd, á hvað my ndu þeir þá gizka varðandi aðra hagvísa? • í hvoru landinu ætli verðbólgan hafi verið meiri? Svarið er Madagaskar. Þar var verðbólga 13% áári aðjafnaði s.l. 30 ár og 18% ár ári s.l. 10 ár á móti 9% á ári á Máritíus, hvort tímabilið sem tekið er. Meiri verðbólga hélzt í hendur við minni hag- vöxt—og kemur Islend- ingi ekki á óvart. • Hvort landið ætli flytji meira út af hráefnum? Svarið er aftur Madagask- ar. Þar nemur hráefnaút- flutningur 80% af heildar- útflutningi á móti 10% á Máritíus. Þetta rímar vel við þá hugmynd, að of mikil hráefnaútgerð geti verið blendin blessun. Hvort landið ætli sé skuldugra við umheim- inn? Svarið er enn Mada- gaskar. Þar neinur núvirði erlendra skulda 160% af landsframleiðslu á móti 35% í Máritíus. Erlendu lánsfé var á Madagaskar mokað í óarðbærar fram- kvæmdir, sem drógu úr hagvexti, þegar frá leið. • Hvort landið ætli leggi annars meiri rækt við erlend viðskipti? Svarið er Máritíus. Þar námu útflutningur og innflutningur samtals 120% af landsframleiðslu 1994 á móti 54% á Madagaskar. Munurinn var enn meiri fyrr á tímabilinu. Erlend við- skipti örva hagvöxt og öfugt—ekkert nýtt í því. • Hvort landið ætli verji meira fé til fjár- festingar? Svarið er aftur Máritíus. Þar nam fjárfestingin fjórðungi af landsfram- leiðslu 1994 á móti 11% á Madagaskar. Arðbær ljárfesting er ein helzta upp- spretta hagvaxtar, engu síður í afskekkt- um plássum en annars staðar. ■ Hvort landið ætl i sé lengra komið á leið- inni frá landbúnaði til iðnaðar, verzlunar og þjónustu? Svarið er enn Máritíus. Þar stendur landbúnaður á bak við 9% af Framhald á síðu 4 Þorvaldur Gylfason prófessor 2

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.