Vísbending


Vísbending - 24.03.2000, Blaðsíða 3

Vísbending - 24.03.2000, Blaðsíða 3
ISBENDING Kynþáttamismunun í ljósi hagfræðinnar Ásgeii' Jónsson hagfræðingur Asíðasta ári ásakaði blökku- mannaleiðtoginn Jesse Jackson hátæknifyrirtækin í Kísildal í Kaliforníu um kynþáttamismunun vegna þess hversu fáir blökkumenn eru þar við vinnu. Þetta var aðeins ein af mörgum slíkum herferðum. Árið áður hafði Jackson ráðist gegn verð- bréfafyrirtækjum á Wall Street og upp- skorið drjúgar fjárhæðir í sjóði hreyfing- ar sinnar auk loforðs um lokun fjármála- markaða á fæðingardegi Marteins Lút- ers King. En fyrirtækin í Kísildal voru fljót að benda á að um 30% af vinnuafli þar um slóðir væri dökkt á hörund og t.d. af indverskum eða kínverskum upp- runa. Ástæðan fyrir því að blökkumenn væru þar ekki fleiri væri sú að fáir úr þeirra hópi hefðu tæknimenntun eða áhuga á því að starfa við tæknifyrirtæki. Eftir nokkurt þóf varð Jackson að gefast upp og sneri athygli sinni að banda- rískum sjónvarpsstöðvum og um síðustu jól hafði honum heppnast að herja út bæði fé og loforð um að fleiri blökkumenn sæjust í sjónvarpsþáttum. Hins vegar vekur þetta spurningar um áhrif hörundslitar og uppruna á efnahagslega velgengni. Kynþættir og menning Pólitísk umræða hefur lengi snúist um kynþætti. Á fyrri hluta aldarinnar hafði sú skoðun fylgi að erfðafræði réði því að sumir kynþættir væru einfaldlega betri en aðrir. Nú virðist hins vegar margir neita því að nokkur munur geti verið til staðar og kynþáttahatur sé eina skýr- ingin á því að fólk af mismunandi uppruna er misjafnlega áberandi eftir greinum. Þó er ljóst að það er munur á milli kynþátta í margvíslegum efnum en jafnframt að mjög erfitt er að skýra hann með líffræði- eða samsæriskenningum. Meiru máli skipta þau menningargildi sem ólíkir hópar aðhyllast og geta verið mjög breytileg innan samfélags. Svo vill til að menning skiptist oft upp eftir kynþáttum eða þjóðernisuppruna og rennur því saman við líkamseinkenni í hugafólks. Þessi menningarmunurgetur haft efnahagslega þýðingu. Landnáms- saga Bandaríkjanna geymir ótal dæmi um hvernig ólík þjóðarbrot lögðu sig eftir mismunandi atvinnugreinum. Nærtækast er þó að líta til Kanada. Á síðustu öld seltust Úkraínumenn og íslendingar að í Manitoba. Þeir fyrr- nefndu voru ólæsir en vanir kornrækt pg þeim aðstæðum sem ríkja þar vestra. íslendingar voru aftur á móti læsir en vissu ekkert um akuryrkju. Fljótlega myndaðist sérhæfmg þar sem Úkraínu- menn héldu sig við landbúnað en íslendingar fóru út í verslun og þjón- ustu þar sem kunnátta þeirra nýttist betur. Þessi sérhæfing varð til þess að sem hópur urðu Vestur-íslendingar vel efnaðir og áberandi í viðskiptum og stjómmálum og þó að nú sé rúmlega öld liðin frá landnámi er enn nokkur munur á þessum hópum. Hagfræðiskýringar? Hagfræðikenningar um hvernig utanríkisviðskipti verða til þess að lönd og þjóðir sérhæfa sig í framleiðslu em vel kunnar. Stundum er þetta vegna náttúruskilyrða eða auðlinda, en oft virðast tilviljanir og sögulegar ástæður ráða því hvaða sérhæfingarmynstur myndast. Hið sama ætti því að geta gerst innan hagkerfa þegar ólfkir menningar- hópar versla sín á milli og ætti það að vera til góðs. En hvað á við ef sérhæfingin sprettur fyrst og fremst af mismunandi menntunarstigi? Slíkt gerist í utannkis- viðskiptum þar sem þróunarlönd flytja út vinnuaflsfrekar vörur en iðnþróuð lönd sérhæfa sig í hugvitsgreinum. Ber að líta á menntun sem val eða forréttindi? Það er heldur ekki sjálfgefið að allir sætti sig við sérhæfingarmynstrið sem mynd- ast og oft vakna grunsemdir um að velgengni eins sé á kostnað annars. Tuttugasta öldin geymir mörg dæmi um átök á milli stétta en versta hatrið blossar upp ef hægt er tengja „efna- hagslegt óréttlæti" við kynþætti og þjóðerni, sérstaklega ef einhverjum minnihluta gengur vel og meirihlutanum finnst á sér troðið og reynir að leiðrétta niðurstöðu frjálsrar samkeppni með pólitískum leiðum. Sé aftur litið til Úkraínumanna og íslendinga er ljóst að þessir tveir hópar hafa áþekkt útlit, samlöguðust ágætlega og því var ekkert tilefni til kynþáttatogstreitu. Þeirbjuggu líka ílandi þar sem hagvöxtur hefur skilað sér til allra þjóðfélagsþegna og auði er dreift í gegnum skatta, skóla og heilsu- gæslu. En önnur lönd eru ekki svo láns- söm. Kúgun meirihlutans Arið 1994 fylltist öll heimsbyggðin hryllingi þegar fregnir bárust af þjóðarmorði hálfrar milljónar manna í Rúanda. Þar í landi bjuggu tveir þjóð- flokkar, hinir upprunalegu svörtu bænd- ur sem kallast Hútú og mynduðu 82% þjóðarinnar og svo þjóðflokkur frá norðanverðri Afríku sem kallast Tútsí en í honum eru margir kaupsýslumenn og ýmsir sem eru áberandi í stjómmálum og viðskiptum. Sá þjóðflokkur hefur lengi vakið hatur og öfund nágranna sinna. Svo fór að upp úr sauð og Hútú- meirihlutinn hóf að „hreinsa" landið með því að drepa Tútsí-menn með skipulögðum fjöldaaftökum. Morðin stóðu yfir í tvo mánuði og enduðu loks eftir að Tútsí-menn höfðu gert uppreisn og náð öllu landinu á sitt vald þrátt fyrir að þeir væru mun færri en Hútú-menn. Þetta er aðeins eitt dæmi af mörgum um hvernig fátækur meirihluti getur brugð- ist við velgengni minnihluta með kyn- þáttahatri. Hið sama gerðist í Úganda þar sem Idi Amin rak indverskar „blóð- sugur“ úr landi og gerði eignir þeirra upptækar. Sama gerðist þegar Indónes- ar hófu uppþot og réðust á fólk af kín- verskum uppruna nú fyrir stuttu. Saga gyðingaofsókna í Evrópu lýsir því einnig vel hvernig svipaðir híutir áttu sér stað á Vesturlöndum. Menningai'gildi? Allir frnna fyrir menningargildum en þó er erfitt að henda reiður á þeim. Efnahagsleg velgengni hefur oft verið tengd trúarbrögðum, s.s. kenningar Max Webers um ágæti mótmælendatrúar í auðsköpun. Á seinni árum hefur hag- fræðingurinn Avner Greif t.d. sýnt fram á með leikjafræði hvemig einstaklings- frelsi varð til þess að byggja upp stofnanir sem tryggðu samkeppni og eignarrétt á Ítalíu. En hið sama gat ekki gerst í Múhameðstrúarlöndum Norður- Afríku þar sem samfélagið stóð strangan vörð um hegðun fólks. Þjóðareinkenni eiga sér þó yfirleitt djúpar rætur sem ná oft aldir aftur í tímann og varða grund- vallarlífsgildi s.s. vinnusemi, áhættu- sækni og velferð afkvæma. Áhersla evrópskra gyðinga á menntun stafar ef til vill af því að þekking er sá auður sem ekki er hægt að gera upptækan. Asíubúar eru oft fljótir að vinna sig upp innan þjóðfélaga vegna þess að foreldrar eru fúsir að fóma sinni eigin velferð og spara til þess að koma börnum sínum áfram. Lokaniðurstaðan gæti jafnvel verið sú að yppa öxlum og tala aðeins um smekk. Það kynni ef til vill að skýra fjarveru blökkumanna í Kísildal. En þrátt fyrir að æ fleiri blökkumenn gangi nú menntaveginn leita flestir í þjóðfélags- greinar, s.s. lögfræði, kennslu og félags- fræði, en leiða hjá sér tæknigreinar. Ef sá póllinn er tekin í hæðina verður að virða skoðanir hvers og eins svo lengi sem (Framhald á síðu 4) 3

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.