Vísbending


Vísbending - 19.12.2001, Blaðsíða 3

Vísbending - 19.12.2001, Blaðsíða 3
ISBENDING Horfur um orku í heiminum Þórður Friðjónsson hagfræðingur Horfur um orku í heiminum virðast með ágætum þrátt fyrir þráláta umræðu um hið gagnstæða. Staðfest hefur verið að orkuforði sé nægur til að mæta eftirspurn til 2020 og vel það. Upp úr 2020 er búist við að ný tækni ryðji sér til rúms og geri m.a. kleift að hagnýta vetni og kolefnisbindingu (e. carbon sequestration) til orkufram- leiðslu í þeim mæli að næg orka verði tryggð um langa framtíð. Orkukreppa virðist því ekki í sjónmáli þegar litið er fram eftir öldinni. Hér á eftir verður gerð grein fyrir líklegri þróun á efitirspurn eftir orku á næstu tuttugu árum. Einkum er stuðst við ritið World Energy Outlook 2001 sem Alþjóðaorkumálastofnunin gaf nýlega út. Orkuspá r Aætlað er að spurn eftir frumorku muni aukast um 57% milli áranna 1997 og2020, eðasem samsvararárlegum vexti um 2,0%. Til samanburðar jókst eftirspurnin árlega um 2,2% frá 1971 til 1997. Eftirspurnin er talin minnka um 1,1 % á ári að tiltölu við Iandsfranileiðslu á umræddu tímabili sem er það sama og gerðist frá 1971. Á mynd 1, sem fylgir hér með, er sýnd þróun eftirspurnar eftir mismunandiorkugjöfumfrá 1971 ogspá til ársins 2020. Nánar verður fjallað um einstaka orkugjafa hér á eftir. Olía Samkvæmt spánni verður olía áfram inikilvægasti orkugjafinn með um 40% af heildareftirspurninni árið 2020. Þetta jafngildir 1,9% vexti á ári og fyrir vikið verðurhlutdeild olíu áfram nær hin sama og hún er um þessar mundir. Magnið semhérumræðirer 115 milljónir hráolíu- fata á dag, borið saman við 75 milljónir fata árið 1997. Aukin eftirspurn er eink- um talin koma frá flutningastarfsemi og samgöngum því takmarkaðir möguleik- ar eru á að aðrir orkugjafar geti leyst olíunaafhólmi í sIíkumgreinum.Nægur ol íuforði er til að mæta þessari eftirspurn en þó er talið að svokölluð óhefðbundin olía, sem unnin er úr olíusandi, skipi smám saman veigameiri sess. Gas Eftirspum eftir gasi fer ört vaxandi í heiminum og er búist við að hún aukist um 2,7% á ári fram til 2020. Hlutur þess í heildareftirspurninni er talinn fara úr Mynd 1. Spá um spurn eftir orku til ársins 2020 Mynd 2. Koltvíoxíðlosun við raforkuframleiðslu eftir orkugjöfum milljón tonn C02 10.000/ Kjarnorka □ 1997 12020 22% í 26%. Mikill gasforði er til í heim- inum. Þannig dugar þekktur gasforði til næstu 60 ára miðað við framleiðslu um þessar mundir og með áætluðum en óstaðfestum forða dugar hann til 170- 200 ára. Kol Áætluð spurn eftir kolum eykst um 1,7% á ári og lækkar hlutdeild þeirra í heildareftirspurninni nokkuð á næstu tveimuráratugum, eða úr 26% í 24% árið 2020. Þetta stafar ekki af skorti á kolum þvíaðgífurlegtmagn ertil afþeim. Miðað við núverandi franileiðslu nægir forðinn til a.m.k. 200 ára. Að baki liggja hins vegar umhverfissjónarmið og er Ijóst að hagnýting kola í framtíðinni verður mjög háð því hvernig gengur að þróa tækni sem skilar nægjanlega hreinni orku á samkeppnishæfu verði. Aðrir orkugjafar Aðrir orkugjafar vega ekki þungt í heildareftirspurn eftir frumorku eins og meðfylgjandi rnynd sýnir. Hins vegar er talið að hagnýting vatnsafls aukist verulega og söniu sögu er að segja af öðrum endurnýjanlegum orkulindum, svo sem vindorku, sólarorku og lífræn- um orkugjöfum. Framtíð kjarnorku er óviss en þó er gert ráð fyrir að hlutdeild hennar í orkuframleiðslunni fari minnk- andi. Sérstaða vatnsorkunnar Af því sem hér á undan hefur verið rakið má sjá að vatnsaflið er ekki stór þáttur í orkuframleiðslu heimsins. Rétt er þó að benda á að ef eingöngu er litið til raforkuframleiðslu er hlutur vatnsorkunnar áætlaður 15,2% árið 2020. Einnig er rétt að benda á að hag- nýting vatnsafls leiðirtil mun minni los- unar gróðurluisalofttegunda en helstu orkugjafar aðrir. Þetta má sjá á mynd 2 sem fylgir hér með (sjá Pál Harðarson 0. fl. Conventional Energy Resources for (Framhald á síðu 4) 3

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.