Vísbending


Vísbending - 22.09.2006, Page 1

Vísbending - 22.09.2006, Page 1
V V i k u ISBENDING rit um viðskipti og efnahagsmál 22. september 2006 36. tölublað 24. árgangur ISSN 1021-8483 Skuldir fyrirtækja Mynd: Skuldir nokkui ra aðila i milljördum króna J) 200,0 150,0 100,0 50,0 -50,0 □ Skuldir alls m Skuldir-veltufé Heimild: Arsreikningar Jyrirtœkjanna. Að undanförnu hafa í Morgunblaðinu ver- ið birt greinaskrif um skuldir Dagsbúnar annars vegar og íslenska ríkisins hins vegar. Kveikjan er færsla á vefsíðu Björns Bjarnasonar (BB) 12. september síðastliðinn: „I frétt- um var sagt frá því, að Dagsbrún, Baugsmiðlafyrirtækinu, hefði verið skipt í tvennt. Mikill tap- rekstur var á fyrri hluta ársins eða nálægt 1,5 milljörðum og Dagsbrún skuldar um 73 millj- arða króna eða meira en íslenska ríkið.“ Hreinn Loftsson (HL) segir í Mbl. 19. september: „Hannsegir að skuldir Dagsbrúnar séu um 73 milljarðar króna „eða meiri en skuldir íslenska ríkisins". Sam- kvæmt mánaðarskýrslu Lána- sýslu ríkisins nú í september árið 2006 nema innlendar skuldir rík- isins tæplega 122 milljörðum króna og erlendar skuldir tæpum 84 milljörðum króna. Samtals erþví um að ræða u.þ.b. 206 milljarða króna.“ BB í Mbl. 20. september: „Staðatek- inna lána lækkaði úr 253 milljörðum í 196 milljarða í árslok 2005. Þar afvoru erlend lán 85 milljarðar samanborið við 141 milljarðáriðáður. Hreinskuldastaða rikissjóðs, þ.e. skuldir að frádregnum veittum lánum, var í árslok 60 milljarðar í stað 156 milljarða króna i ársbyrjun, að því er fram kemur.“ HL í Mbl. 21. september: „Nú þyk- ist Björn hafa sagt 73 milljarða króna skuld Dagsbrúnar„hærri en 60 milljarða hreina skuldastöðu ríkisins." Ef þetta er það sem Björn vildi sagt hafa, þá hefði hann til samanburðar átt að draga veltufjármuni frá heildarskuldum Dags- brúnar. Þá kemur út mun lægri fjárhæð en 73 milljarðar króna eða u.þ.b. 54 milljarðar króna. I grein minni dró ég enga dul á, að þetta væru nriklar skuldir hjá Dagsbrún og að skuldastaða ríkis- sjóðs væri góð“. Orðaskiptin sýna hve mikilvægt er að menn séu sammála um grundvallarat- riði áður en deilur hefjast, en hún vekur upp áhugaverða spurningu: Hve rnikið skulda íslensk fyrirtæki? Hve hreinar skuldir? itt afþví sem hefur einkennt hagkerf- ið álslandi að undanfömu er hve auð- velt hefur verið að fá lán. Sumir orða það svo að góðærið hafí verið fengið að láni. Skuldsettar yfirtökur hafa verið algengar á undanfömum ámm og mörg fyrirtæki hafa vaxið hratt með þeim hætti. Hér skoðum við hve mikið nokkur þekkt íslensk fyrirtæki skulda. Eins og kemur fram í ofan- greindri deilu er ljóst að mikil- vægt er að menn skilgreini vel hvað átt er við þegar talað er um skuldir. Sá sem á peninga í banka eða aðrar eignir sem hann getur fengið greiðslu fyrir fyrir- varalaust (eða a.m.k. með mjög skömmum fyrirvara) á auðvitað létt með að greiða skuldir sínar. Astæður fyrir því að menn gera það ekki geta verið margvísleg- ar. Heildarskuldir er auðvelt að finna í ársreikningum. A með- fylgjandi mynd koma í flestum tilvikum fram skuldir samkvæmt sex mánaða uppgjöri árið 2006. I sumum tilvikunr er miðað við lokauppgjör árið 2005. Markmið- ið er ekki að raða fyrirtækjunum í gæða- röð eftir skuldum heldur að fá hugmynd um það af hvaða stærðargráðu skuldir stórra íslenskra fyrirtækja eru. 1 mörg- um tilvikum hefur skuldastaðan batnað síðan þessar upplýsingar komu frarn vegna þess að krónan hefur styrkst. í öðrum fyrirtækjum hafa skuldir hækkað vegna þess að fyrirtæki hafa fjárfest. Þar að auki skipta umsvif fyrirtækjanna líka miklumáli. Skuldirsemhlutfall afveltu eru áhugaverð kennitala. Hún segir þó ekki allt vegna þess að sum fyrirtæki, til dæmis stóriðja og orkuver, eru byggð upp í kringum langtímafjárfestingar. Hreinar skuldir (nettóskuldir) er erf- iðara að skilgreina svo að allir séu sanr- mála. Ein leiðerað draga veltufjármuni frá líkt ogHL gerir. Ekki virðast þó allir (Framhald á síðu 4) IFyrirtæki hafa meðal an- A Norðmenn hafa farið aðra ^ Er auglýsingakrónunum A íslenskan er í vörn og nars stækkað með skuld- / leið í sínu kvótakerfi en “S rétt varið? Mikilvægt er <lJ.enskanístórsókn.Útkoman settum yfirtökum. Skuldir íslendingar. Kerfið er að auglýsa fyrir þann hóp 1 verður ófögur blanda. rnargra þeirra nema tugum flókið. sem hefur kaupgetu. ^ milljarða.____________________________________________________________________________________________________

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.