Frjáls verslun - 01.10.1946, Side 39
Starfsmannadeildir V. R.
Aðalfundur Skrifslofumannadeildar V.R. var hald-
inn 22. nóv. s.l.
Form. setti fundinn og tilnefndi Guðjón Einars-
son til fundarstjórnar, en hann fól Pétri Nikulássyni
fundarbókun.
Síðan flutti form. skýrslu um starfsemi deildar-
innar á fyrsta starfsári hennar. Voru haldnir 2 deild-
arfundir og tekinn þáttur í 3 launþegafundum, auk
nokkurra stjórnarfunda.
Félagatalan er næstum hin sama sem á stofnfundi,
ca. 80 manns, og er þess að væhta að aðalfélags-
stjórnin gefi bráðlega út skipun um, að allir laun-
þegar í félaginu skuli sjálfkrafa ganga inn í viðkom-
andi starfsmannadeild. En þá fyrst fenginn sjálfsagð-
asti starfsgrundvöllur deildanna.
Stjórnarkosning: Baldur Pálmason var endurkosinn
form. til næsla árs. Meðstjórnendur: Pétur Nikulás-
son, endurk., og Olafur Sveinsson. Varastjórn: Sveinn
Ólafsson, Kristmann Hjörleifsson og Jóhann Ólafsson.
Form. bar fram svohljóðandi tillögu, sem var sam-
þykkt í einu hljóði:
„Aðalfundur Skrifstofumannadeildar V.R., haldinn
22. nóv. 1946 að félagsheimilinu, lieimilar stjórn
deildarinnar að skipa trúnaðarmann á hverjum vinnu-
stað (skrifstofu), þar sem deildarmeðlimir eru starf-
andi, og hafi þeir umsjón með að launa- og kjara-
samningar V.R. séu í hvívetna haldnir á hverjum
stað en tilkynni stjórn deildarinnar tafarlaust, ef
út af er brugðið, og skal hún þá, eða launakjaranefnd
V.R. skerast í málið og fá það leiðrétt. Skal atvinnu-
rekendum tilkynnt í hverju tilfelli, hver sé úlnefndur
trúnaðarmaður deildarinnar á vinnustað. Farið skal
með þessi mál sem alger trúnaðarmál“.
Fleira gerðist ekki á fundinum.
Sölumannadeild V.R. hélt aðalfund sinn 23. nóv. s.l.
Form. setti fundinn og skipaði Marinó Ölafsson
sem fundarstjóra. Guðmundur Sölvason var lilnefndur
fundarritari.
Form. flutli skýrslu um störf deildarinnar á liðnu
félagsári. Hann hvatti og deildarmeðlimi til að sýna
áhuga' gagnvart málefnum deildarinnar og V.R., svo
og stundvísi.
Stjórnarkosning: Carl Hemming Sveins var endur-
kosinn form. næsta starfsár, í einu hljóði. Meðstjórn-
endur voru kjörnir: Bjarni Halldórsson og Jón Guð-
FRJÁLS VERZLUN
bjartsson. í varastjórn hlutu kosningu: Guðmundur
Sölvason, Haraldur Jóhannesson og Marinó Ólafsson.
Fleiri mál komu ekki fyrir fundinn.
Aðalfundur Afgreiðslumanandeildar V.R. var hald-
inn 27. nóv. s.l.
Form. setti fundinn og tilnefndi Lárus Hermanns-
son sem fundarstjóra. Ritari var skipaður Guðmundur
Friðriksson.
Að svo búnu gaf form. yfirlit um starfsemina á liðnu
starfsári. I lok máls síns beindi hann tilmælum til
verðandi deildarstjórnar um að hún komi af stað
málfundum innan deildarinnar. Nokkrir menn létu
í Ijós fylgi sitt við þessa tillögu.
Stjórnarkosning: Fráfarandi form., Björgúlfur
Sigtirðsson, baðst undan endurkosningu. í hans stað
var kosinn Jón Ólafsson. Til meðstjórnar voru kosin:
Guðrún Þórðardóttir og Sigurður H. Ólafsson, endurk.
I varastjórn: Einar Ingimundarson, Guðrún Þorsteins-
dóttir og Svavar Ármannsson.
Eftirfarandi tillaga kom fram frá Sigurði H. Ólafs-
syni, og var hún samþykkt í einu hljóði:
„Aðalfundur Afgreiðslumannadeildar V.R. heimil-
ar stjórn deildarinnar að skipa allt að 30 manna trún-
aðarráð. Verkefni ráðsins sé m. a. að fylgjast með
því, að samningar V.R. við atvinnurekendur séu haldn-
ir. Ennfremur að vekja áhuga afgreiðslufólks fyrir
deildinni“.
Fleira var ekki tekið fyrir, en áður en fundi var
slitið, tók hinn nýkjörni form. til máls, þakkaði traust-
ið og hvatti menn til að sækja vel fundi.
199