Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1947, Blaðsíða 5

Frjáls verslun - 01.09.1947, Blaðsíða 5
Fulltruarnir á alþjofiaþingi J. (.. I. í borginni Dallas s. i. vor. A myndinni sjást borfifánar allra þátttakandi þjófia. Þ. á. m. er íslenzki jáninn. liendur. Meðlímatala hafði aukizt að mun eftir að stríðinu lauk og aðkallandi þarfir voru víða fyrir hendi til þess að hrinda af stað ýmsum málum í þágu bæjarfélaga og þjóðfélaga í lieild. Verkefnin voru misjöfn í hinurn ýmsu lönd- um, en þau áttu það sameiginlegt að vera þörf- menningar- og hagsmunamál á þeint stöðum, er þeim var hrundið í framkvæmd. Sókn var víða hafin, með aðstoð útvarps og blaða gegn slíkum óskyldum þjóðfélagsvandamálum sem kynsjúk- dómum, umferðaslysum, skorti á fullnægjandi menntun til handa börnum á skólaskyldualdri, o. s. frv. Þá var rekin ýmiskonar fræðslustarfsemi fyrir meðUmi á sviði verzlunar- og atvinnumála og þeim gefinn köstur á að æfa sig í ræðu- mennsku, sem er mjög þýðingarmikið atriði fyr- ir hvern þann ungan mann að leggja stund á, sem ætlar sér að komast áfram í þjóðfélaginu. Rœtt um heimsmál. Einum fulltrúa frá hverju hinna 27 ríkja, sem sátu þetta alþjóðaþing, var gefinn kostur á að taka til máls og tala frá eigin brjósti um ástand og horfur í alþjóðamálum. Stóðu þessar umræð- ur í þrjá daga og bar þar margt á góma. Umræð- unnar fóru fram á fjórum tungumálum, ensku, frönsku, spönsku og portúgölsku. Sett höfðu ver- ið upp heyrnartæki fyrir fundarmenn, líkt og notað er hjá Sameinuðu þjóðunum í Lake Success, svo að menn gátu heyrt ræðu, sem flutt var á spönsku, í enskri, franskri eða portú- gakskri þýðingu, með því að færa til sérstakan stilli. Gátu menn því fylgzt með öllu, sem fram fór, þótt ekki skildu þeir þá tungu, er mælt var á. Sjónarmið hinna ttngu manna, sem tóku til máls í þe'ssum umræðum voru ótrúlega lík, þótt þjóðernin væru fjarskyld og sundurleit. Viss stefna markaði allar ræðurnar, en hún var sú. að vandasamasta hlutverk un.gu kynslóðaririnar væri að afstýra öðru stríði, sent leiða mundi al- gert böl yfir mannkynið. Hin sameiginlegu sjónarmið, sent fram kotnu í þessum umræðum um heimsmál, voru aðal- lega þessi: 1. Leggja yrði niður með öllu jtá vfirdrottnun- FRJÁLS VERZLUN 157

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.